Auðkenni
Tegund einingar
Fyrirtæki/stofnun
Leyfileg nafnaform
Pólarprjón Blönduósi
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
13.2.1971 -
Saga
Fyrirtækið var stofnað 13. febrúar 1971. Byggt var við hús fyrirtækisins að Húnabraut 13 og flutt í það húsnæði í ársbyrjun 1980. Var það til mikilla bóta, en ennþá býr fyrirtækið við mikinn húsnæðisskort og ber brýna nauðsyn til að leysa þau mál til frambúðar. Á árinu 1980 var Pólarprjón h.f. úthlutað lóð undir verksmiðjuhús vestan við Olísskálann. Í framhaldi af því var óskað eftir tillögum og tilboðum í 2000 m2 hús fyrir Pólarprjón h.f. Er nú verið að vinna úr tilboðum og hugmyndum sem fram komu og verður endanleg ákvörðun tekin mjög fljótlega. Á árinu 1980 unnu hjá fyrirtækinu að meðaltali 60-70 manns, en hefur fjölgað og eru nú starfandi 110 manns. Pólarprjón h.f. hefur hafið rekstur saumastofu í Skólahúsinu við Sveinsstaði og einnig í Reykjavík.
Í Skólahúsinu vinna að jafnaði 8-10 manns og hefur rekstur þar gengið eftir áætlun. Í Reykjavík rekur fyrirtækið einnig saumastofu í Borgartúni 29 þar sem vinna 12-15 manns. Þá var sett upp hönnunarsaumastofa og var Anna Einarsdóttir, fatahönnuður ráðin þar til starfa i fullt starf.
Ástæðan fyrir því að Pólarprjón h.f. hefur farið út í rekstur saumastofa annars staðar, er sú, að aldrei hefur fengist nægilegt vinnuafl hér á Blönduósi til að vinna þau verkefni sem fyrirtækið hefur haft og eins til að auka hlut Pólarprjón h.f. í fullnaðarvinnslu á prjónavoð sem fyrirtækið framleiðir.
Á árinu 1980 voru framleidd 180 tonn af prjónavoð og reiknað er með 30% aukningu á árinu 1981 eða 235 tonn, þá voru framleiddar á saumastofum fyrirtækisins u.þ.b. 30 þús. flíkur. Heildarvelta nam 1.450 millj. gkr.,laun á árinu voru 350 millj. gkr. Pólarprjón h.f. hefur aukið og endurnýjað vélakost sinn á árinu og þá aðallega tölvustýrðar prjónavélar og fullkomnari saumavélar. Áætlað er að kosta þurfi á árinu 1981 u.þ.b. 100 millj. gkr. til endurnýjunar á vélum. Söluhorfur fyrir árið 1981 virðast mjög góðar og var t.d. samið um framleiðslu á 20 þús. peysum sem fara eiga til Rússlands. Eins og áður er getið eru aðalvandamál Pólarprjón h.f. fyrst og fremst húsnæðisskortur og vöntun á starfsfólki og hefur Pólarprjón h.f. þurft að láta verulegan hluta af framleiðslu á eigin flíkum til annarra fyrirtækja til þess að hægt sé að anna eftirspurn. í áætlun er að þreifa fyrir sér með eigin útflutning á þessu ári og með því gera hlut Pólarprjón h.f. tryggari í heildar framleiðsluog útflutningskeðjunni.
Staðir
Blönduós;
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Alríkisdómur í Los Angeles hefur kveðið upp þann dóm að innheimtukrafa Pólarprjóns hf. á Blönduósi gegn fyrirtækinu Icelander Inc. og hjónunum Doriet og Árna Egilssyni skuli viðurkennd að fullu. Dómurinn staðfesti sömuieiðis sanngirni vaxtakröfu, sem mun óvenjulegt í Bandaríkjunum.
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH-Blö
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 9.4.2019
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
Húnavaka, 1. tölublað (01.05.1981), Blaðsíða 188. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=6347076
Tíminn, 117. Tölublað (27.05.1988), Blaðsíða 20. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=4046127