Pétur Sigurðsson (1933-2000) Skeggstöðum í Svartárdal

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Pétur Sigurðsson (1933-2000) Skeggstöðum í Svartárdal

Parallel form(s) of name

  • Pétur Sigurðsson(1933-2000) Skeggstöðum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      23.10.1933 -11.5.2000

      History

      Pétur Sigurðsson var fæddur að Skeggsstöðum í Svartárdal 23. október 1933. Hann andaðist á Sjúkrahúsinu á Blönduósi 11. maí síðastliðinn. Ekki er hægt minnast Péturs án þess að tala um hest sem honum var mjög kærkominn. Það var rauður hestur kallaður Ómars Rauður sem hann átti til fjölda ára og hann hafði mikið dálæti á. Það sama má segja um hestinn, hann var mjög hændur að húsbónda sínum. Sú vinátta sem þar var, á milli hests og manns, lýsir þeirri persónu sem Pétur hafði að geyma betur en mörg orð. Síðustu ár ævi sinnar átti Pétur í baráttu við mjög erfiðan sjúkdóm. Fyrir mann á besta aldri var erfitt að ganga í gegnum þá baráttu sem fylgir því að uppgötva að hann væri haldinn ólæknandi sjúkdómi og ekki síður fyrir alla þá sem í kringum hann voru að átta sig á hvað var að gerast.

      Places

      Skeggstaðir í Svartárdal:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Hann var bóndi á Skeggsstöðum mestan hluta starfsævi sinnar og vann einnig við skriftir, bókhald og sinnti ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sitt sveitarfélag. Hann var í hreppsnefnd Bólstaðarhlíðarhrepps til margra ára og einnig hreppstjóri. Pétur lét til sín taka í ýmsum félagsmálum í Austur-Húnavatnssýslu. Pétur var góður leikari og lék í mörgum góðum verkum sem voru sett upp í Bólstaðarhlíðarhreppi á hans yngri árum og starfaði að mörgum félagsmálum í hreppnum.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Pétur var sonur hjónanna Kristínar Sigvaldadóttur (1900-1946) og Sigurðar Þorfinnssonar (1891-1966) bónda á Skeggsstöðum.
      Systkin hans samfeðra voru Þórir (1918), Ósk (1920).
      Pétur var ókvæntur og barnlaus.

      General context

      Fyrir Ísland áttu að vinna ævistörf hins góða manns, helga dáð og drauma þína dal og ströndum ættarlands. Fyrir Ísland áttu að rækta akur, tún og lund og garð, gefa hug þinn gróðri jarðar, gefa framtíð skraut og arð. Fyrir Ísland áttu að nota íslenskunnar fagra hljóm, elska í ljóði og lausu máli lands og þjóðar helgidóm.

      Relationships area

      Related entity

      Bergur Sveinsson (1856-1911) Þorbrandsstöðum og Mánaskál (12.7.1865 - 18.3.1911)

      Identifier of related entity

      HAH02602

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      23.10.1933

      Description of relationship

      Pétur var sonur Sigurðar Þorfinnssonar sem var giftur Sigríði (1898-1921) dóttur Bergs, móðir hans var Kristín Sigvaldadóttir (1900-1976) seinni kona Sigurðar.

      Related entity

      Guðrún Þorfinnsdóttir (1881-1961) Brandsstöðum (8.9.1881 - 12.8.1966)

      Identifier of related entity

      HAH04318

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Þorfinnsdóttir (1881-1961) Brandsstöðum is the cousin of Pétur Sigurðsson (1933-2000) Skeggstöðum í Svartárdal

      Dates of relationship

      1933

      Description of relationship

      Sigurður faðir Péturs var bróðir Guðrúnar.

      Related entity

      Skeggsstaðir í Bólstaðarhlíðarhreppi ([1200])

      Identifier of related entity

      HAH00170

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Skeggsstaðir í Bólstaðarhlíðarhreppi is controlled by Pétur Sigurðsson (1933-2000) Skeggstöðum í Svartárdal

      Dates of relationship

      1954

      Description of relationship

      Related entity

      Kristín Sigvaldadóttir (1900-1976) Skeggstöðum í Svartárdal (23.6.1900 - 1.1.1976)

      Identifier of related entity

      HAH07250

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Kristín Sigvaldadóttir (1900-1976) Skeggstöðum í Svartárdal is the parent of Pétur Sigurðsson (1933-2000) Skeggstöðum í Svartárdal

      Dates of relationship

      23.10.1933

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01845

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 11.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes