Auðkenni
Tegund einingar
Fyrirtæki/stofnun
Leyfileg nafnaform
Orkustofnun (1967)
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
1967
Saga
Um miðjan sjöunda áratuginn þótti tímabært að taka raforkulögin frá 1946 til endurskoðunar. Kom þar hvorttveggja til að með stofnun Landsvirkjunar hafði breyst mjög sú stefnumörkun sem fólst í raforkulögunum og svo hitt að hjá embætti raforkumálastjóra fór þá orðið fram mun veigameiri og víðfeðmari starfsemi en fjallað er um í þeim lögum. Hin nýju orkulög nr. 58/1967 tóku gildi 1. júlí 1967. Jakob Gíslason sat í nefnd þeirri sem endurskoðaði lögin og hafði þar veigamikil áhrif. Endurskoðuninni lauk 1966.
Í orkulögunum er fjallað bæði um vinnslu raforku og jarðhita; um rafveitur og hitaveitur og um jarðboranir. Sérstakur kafli er þar um Rafmagnsveitur ríkisins, núna RARIK. Embætti raforkumálstjóra var lagt niður, en ný stofnun, Orkustofnun, tók við hlutverki embættisins, öðru en umsjón með rekstri Rafmagnsveitna ríkisins, sem voru gerðar að sjálfstæðri stofnun. Jakob Gíslason var skipaður orkumálastjóri um leið og lögin tóku gildi.
Í orkulögunum er Orkustofnun falið að hafa með höndum rekstur Jarðborana ríkisins og Jarðvarmaveitna ríkisins, sem urðu til við stofnun Kísiliðjunnar við Mývatn, en bæði þessi fyrirtæki voru rekin sem svokölluð B-hluta fyrirtæki undir yfirstjórn Orkustofnunar uns Jarðboranir hf. voru stofnsettar í febrúar 1986 og Jarðvarmaveitur lagðar niður í árslok 1986. Þá var Rafmagnseftirlit ríkisins í umsjá orkumálastjóra allt til ársins 1979 en þá var það endanlega gert að sjálfstæðri stofnun.
Samkvæmt lögunum tók Orkusjóður við öllum eigum Raforkusjóðs og Jarðhitasjóðs.
Staðir
Réttindi
Opinber stofnun
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Maintained by
Kennimark stofnunar
IS-HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Hluti
Skráningardagsetning
18.10.2023 frumskráning í AtoM, SR
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
https://orkustofnun.is/saga-orkustofnunar sótt þann 18.10. 2023
Athugasemdir um breytingar
SR