Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Ólafur Sigurður Guðmundsson (1934-2015) Skipasmiður á Skagaströnd
Hliðstæð nafnaform
- Friðrik Ólafur Sigurður Guðmundsson (1934-2015)
- Ólafur Guðmundsson (1934-2015)
- Friðrik Ólafur Sigurður Guðmundsson
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
19.12.1934 - 7.4.2015
Saga
Friðrik Ólafur Sigurður Guðmundsson 19. desember 1934 - 7. apríl 2015 Skipasmiður á Skagaströnd og fékkst við ýmis smíðastörf.
Ólafur Guðmundsson fæddist 19. desember 1934 á Efstabóli í Önundarfirði. Hann andaðist á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri 7. apríl 2015. Útför Ólafs fór fram 18. apríl 2015.
Útför Ólafs fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag, 18. apríl 2015, kl. 14.
Staðir
Efstaból í Önundarfirði; Flateyri; Stykkishólmur; Skagaströnd:
Réttindi
Hann lærði skipasmíðar í Iðnskólanum í Reykjavík og í Stykkishólmi hjá Kristjáni Guðmundssyni skipasmið.
Starfssvið
Eftir nám var hans starfsferill allur við skipasmíðar, bæði nýsmíði og viðgerðir. Meðal annars kom hann að stofnun Skipavíkur hf. í Stykkishólmi. Eftir að nýsmíðum var hætt á Skagaströnd vann hann við slippinn sem hann rak um tíma. Þegar hann hætti rekstri slippsins fékkst hann við ýmis smíðastörf enda handlaginn maður með eindæmum.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans; Guðmundur Friðriksson 24. desember 1892 - 5. janúar 1974 Léttadrengur á Tungu, Holtssókn, V-Ís. 1901. Bóndi og sjómaður á Efstabóli, Holtssókn, V-Ís. 1930. Síðast bús. í Höfðahreppi og kona hans; Guðrún Jóna Kristjánsdóttir 1. júlí 1902 - 14. mars 1972 Vinnukona á Brekkustíg 17, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Höfðahreppi.
Systkini Ólafs eru:
1) María Guðrún Guðmundsdóttir, f. 18.8. 1933, gift Gunnlaugi Kristjánssyni.
2) Kristjana Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, f. 2.7. 1936, gift Sigurði Reynissyni.
3) Jón Guðmundsson, f. 3.8. 1942, giftur Sigurlaugu Jóhannsdóttur.
- desember 1962 giftist hann eftirlifandi eiginkonu sinni Guðmundu Sigurbrandsdóttur, en áður hafði Ólafur verið trúlofaður Guðrúnu Margréti Ólafsdóttur sem lést ung af völdum veikinda í febrúar 1959.
Ólafur og Guðmunda eignuðust fjögur börn:
1) Kristján Ólafsson, f. 11.10. 1963, giftur Fjólu Lýðsdóttur, þau eiga þrjú börn.
2) Guðrún Margrét Ólafsdóttir, f. 27.2. 1965, gift Hjálmari A. Sigurþórssyni, þau eiga tvo syni.
3) Víðir Ólafsson, f. 28.7. 1966, giftur Sigurbjörgu Bjarnfinnsdóttur, hann á þrjár dætur og tvö barnabörn.
4) Guðmunda Ólafsdóttir, f. 22.12. 1968, gift Sigurði Berntssyni, þau eiga tvö börn.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er barn
Ólafur Sigurður Guðmundsson (1934-2015) Skipasmiður á Skagaströnd
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 18.4.2018
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði
Mbl 18.2.2015. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1550230/?item_num=7&searchid=9a4550b8df54e58531f0256c42070b5e068448f8