Ólafur Þórir Jónsson (1914-1996)

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Ólafur Þórir Jónsson (1914-1996)

Hliðstæð nafnaform

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

28.10.1914 - 30.3.1996

Saga

Ólafur Þórir Jónsson var fæddur á Grettisgötu 35b í Reykjavík þann 28. október árið 1914. Hann lést í Landspítalanum 30. mars 1996. Þá hóf hann nám í rafvirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík og hjá föður sínum og starfaði hann við þá iðn alla tíð. Ása Sigurbjörg var heimavinnandi húsmóðir, en vann jafnframt því heima við saumaskap og fleira. Barnabarnabörn þeirra eru fimm talsins. Útför þeirra Ólafs Þóris og Ásu Sigurbjargar fer fram frá Fossvogskirkju í dag 12.4. 1996 og hefst athöfnin kl. 13.30.

Staðir

Reykjavík:

Réttindi

1945 hóf hann nám í rafvirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík og hjá föður sínum og starfaði hann við þá iðn alla tíð

Starfssvið

Ólafur Þórir vann almenna verkamannavinnu allt til ársins 1945.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hans voru Jón Ólafsson rafvirkjameistari og Jóhanna Jónsdóttir húsmóðir.
Hann átti tvær alsystur, Ragnhildi Ágústu og Ingibjörgu (Stellu), sem báðar eru látnar,
og tvo hálfbræður samfeðra, Viggó og Guðmund Kr. Jónssyni. Þegar Ólafur Þórir var níu mánaða lést móðir hans og ólst hann upp hjá föðurafa sínum og ömmu, Ólafi Einarssyni og Ragnhildi Filippusdóttur, á Grettisgötunni. Filippía Ólafsdóttir, föðursystir hans, bjó einnig í sama húsi og lagði sitt af mörkum við uppeldið; hún átti þrjú börn, Þórunni, Baldur og Sigríði Bergsteinsbörn.
Þann 10. nóvember 1934 gengu þau Ólafur Þórir og Ása Sigurbjörg í hjónaband og bjuggu sér heimili í Reykjavík. Ása Sigurbjörg Ásgeirsdóttir var fædd á Blönduósi þann 27. ágúst árið 1914. Hún lést í Landspítalanum 3. apríl síðastliðinn. Foreldrar Ásu Sigurbjargar voru Hólmfríður Zóphoníasdóttir húsmóðir og Ásgeir Þorvaldsson múrarameistari. Þau bjuggu á Blönduósi og ólst Ása Sigurbjörg upp hjá þeim. Systkini hennar voru níu talsins (og var hún þriðja í röðinni): Hrefna, látin, Sigríður, látin, Soffía, Arndís, tvíburarnir Olga, látin, og Þorvaldur, Helga Maggý, látin, Zóphonías og Valgarð. Ása Sigurbjörg fluttist til Reykjavíkur 9. nóvember 1932 og starfaði við ýmis þjónustustörf.
Þau eignuðust sex börn, þrjú þeirra létust ung en þrjú eru á lífi, þau eru:
1) Jóhanna Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur, búsett í Bandaríkjunum, f. 20.9. 1936, gift Braga Sigfússyni, þau eiga fjögur börn, Ragnhildi, f. 9.2. 1956, hún á tvö börn, Jón Kristin, f. 9.2.1957, hann á fjögur börn, Þóri, f. 31.8 1958, hann á tvö stjúpbörn, og Hrefnu, f. 22.9. 1969
2) Hrefna Maren hjúkrunarfræðingur, búsett í Bandaríkjunum, f. 21.10. 1937, gift Bruce Denmark, þau eiga tvo syni, Andrew, f. 22.4. 1972, og Richard, f. 26.4. 1974.
3) Ásgeir Þór rafveitustjóri, f. 10.5. 1947, kvæntur Kristínu Árnadóttur, þau eiga fjögur börn, sveinbarn, f. 19.9. 1971, d. 13.11. 1971, Árna Ólaf, f. 12.3. 1973, Ásu Guðnýju, f. 9.7. 1977, og Þóru Kristínu, f. 17.12. 1979.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Ása Ásgeirsdóttir (1914-1996) Ásgeirshúsi (27.8.1914 - 3.4.1996)

Identifier of related entity

HAH01076

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Ása Ásgeirsdóttir (1914-1996) Ásgeirshúsi

er maki

Ólafur Þórir Jónsson (1914-1996)

Dagsetning tengsla

1934 - 1996-04-12

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01803

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 10.7.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir