Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Ólafur Helgi Kristjánsson (1913-2009) skólastjóri Reykjaskóla
Parallel form(s) of name
- Ólafur Helgi Kristjánsson (1913-2009) skólastjóri
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
11.12.1913 - 5.4.2009
History
Ólafur Helgi Kristjánsson, fyrrverandi skólastjóri Reykjaskóla í Hrútafirði, fæddist á Þambárvöllum í Bitrufirði, Strandasýslu, þann 11. desember 1913. Hann andaðist á Vífilsstöðum 5. apríl síðastliðinn. Ólafur var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að mennta- og félagsmálum.
Útför Ólafs fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag, föstudaginn 17. apríl 2009, og hefst hún kl. 15.
Places
Þambárvellir Í Bitrufirði: Reykjavík 1937: Hrafnagil 1938: Núpur í Dýrafirði 1939-1956: Reykir í Hrútafirði 1956-1981: Kópavogur 1981:
Legal status
Ólafur var nemandi héraðsskólans að Reykjum í Hrútafirði fyrstu tvö starfsár hans, 1931-1932. Tók kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands 1936. Sótti ýmis námskeið fyrir kennara í Svíþjóð, Noregi og Danmörku á árunum 1937-1938 og aftur árið 1967. Námskeið á Englandi 1949, m.a. á vegum British Council.
Functions, occupations and activities
Var þingritari og heimiliskennari með kennaranáminu 1932-1936. Forfallakennari við Austurbæjarskólann í Reykjavík 1937-1938; kennari í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði 1938-1939; héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði 1939-1956 og skólastjóri héraðsskólans að Reykjum í Hrútafirði frá 1956 til ársins 1981 er hann lét af störfum og bjó eftir það í Kópavogi. Félagsstörf Ólafs voru margvísleg. Hann var gjaldkeri Ungmennasambands Vestfjarða 1944-1956; hreppsnefndarmaður Mýrarhreppi í Dýrafirði 1950-1956 og hreppstjóri sama hrepps 1954-1956. Formaður Ungmennasambands Vestur Húnvetninga 1960-1962, í sýslunefnd V-Hún. 1958-1978. Í sóknarnefnd Staðarsóknar, Hrútafirði, 1978-1981. Í stjórn byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna 1964-1981. Formaður þjóðhátíðarnefndar V.-Hún. 1974. Í fræðsluráði Nl. vestra 1975-1982.
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans voru hjónin Kristján Helgason, bóndi á Þambárvöllum, f. 23. maí 1880, d. 28. janúar 1940, og Ásta Margrét Ólafsdóttir, f. 9. ágúst 1878, d. 29. júní 1962. Bróðir Ólafs var Magnús, f. 18. júní 1905, d. 12. ágúst 2001. Uppeldissystir var Halldóra Björnsdóttir, f. 9. nóvember 1920, d. 30. desember 2007.
Ólafur kvæntist Sólveigu Kristjánsdóttur, kennara, þann 7. júní 1941. Hún var fædd 27. mars 1918, d. 11. ágúst 2001.
Þeirra synir eru:
1) Kristján, lögfræðingur, f. 1943, kvæntur Helgu Snorradóttur. Synir hans og fyrri konu, Bryndísar Guðmundsdóttur, eru: Ólafur Helgi, f. 1968, og Hrafnkell, f. 1975. Börn Helgu af fyrra hjónabandi eru: Rakel Ýr, f. 1975, Rebekka Ýr, f. 1979 og Kristófer, f. 1989.
2) Sigurður Páll , kennari, f. 1945, kvæntur Guðjónu Benediktsdóttur. Þeirra börn eru: Sólveig, f. 1965, Hrafnhildur, f. 1968, Berglind, f. 1975 og Kristján, f. 1979.
3) Þórður, f. 1948, sérfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington, D.C, kvæntur Láru Alexandersdóttur. Þeirra börn eru: Gígja, f. 1973; Orri, f. 1975 og Silja, f. 1982.
4) Ástmar Einar, f. 1956, tónlistarkennari í Perth, Skotlandi, kvæntur Helen Anne Ólafsson. Þeirra börn eru: Magnús Eric, f. 1990 og Anna Elizabeth, f. 1993.
Auk þess ólst upp á heimili þeirra Ólafs og Sólveigar frá 9 ára aldri
0) Hulda Friðþjófsdóttir, sjúkraliði, f. 1943, gift Gunnari Friðrikssyni. Þeirra börn eru: Kristín Ólöf, f. 1966 og Gerður Sif, f. 1971.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the child of
Ólafur Helgi Kristjánsson (1913-2009) skólastjóri Reykjaskóla
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the spouse of
Ólafur Helgi Kristjánsson (1913-2009) skólastjóri Reykjaskóla
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is controlled by
Ólafur Helgi Kristjánsson (1913-2009) skólastjóri Reykjaskóla
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 8.7.2017
Language(s)
- Icelandic