Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Matthilde Einarsdóttir Kvaran (1889-1980) Blönduósi
Parallel form(s) of name
- Matthildur Einarsdóttir Kvaran Matthíasson
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
29.9.1889 - 27.1.1980
History
Matthildur Einarsdóttir Kvaran Matthíasson f. 29. sept. 1889 d. 27. jan. 1980. Húsfreyja á Seyðisfirði og í Reykjavík. Var á Akureyri 1901. Var í Reykjavík 1910. Húsfreyja á Túngötu 5, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945.
Hún var fædd í Winnipeg árið 1889, dóttir Einars Hjörleifssonar Kvarans skálds, sem þá var ritstjóri vestan hafs, og Gíslínu Gísladóttur konu hans. Matthildur var elzt barna þeirra sem upp komust, og lifði þeirra lengst. Hún giftist árið 1908 Ara Arnalds, síðar sýslumanni og bæjarfógeta, og áttu þau þrjá syni, þá Sigurð, útgefanda, Einar, fyrrv. Hæstaréttardómara og Þorstein, fyrrv. forstj. Bæjarútg. Reykjavíkur. Matthildur og Ari slitu samvistum og giftist hún síðar Magnúsi stórkaupm. Matthíassyni, Jockumssonar skálds. Hann lézt árið 1963.
Matthildur stundaði fyrr á árum píanókennslu hér í bænum, en síðar tók hún að sér kennslu í ýmsum greinum, en þó einkum íslenzku, og hafa margir kunnir menntamenn
þjóðarinnar notið tilsagnar hennar í þeim efnum á yngri árum.
Hún var jarðsungin frá Fossvogskirkju 6.2.1980, kl. 13.30
Places
Legal status
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hennar; Einar Gísli Hjörleifsson Kvaran 6. desember 1859 - 21. maí 1938 Var í Goðdölum, Goðdalasókn, Skag. 1870. Skólapiltur í Lækjargötu, Reykjavík 1880. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Rithöfundur á Sólvallagötu 3, Reykjavík 1930. Rithöfundur og seinni kona hans 22.9.1888; Gíslína Gísladóttir Kvaran 23. júlí 1866 - 26. júní 1945 Frá Reykjakoti í Mosfellssveit. Fór þaðan til Vesturheims 1887. Kom til Íslands aftur. Húsfreyja í Reykjavík 1910.
Fyrri kona Einars; Matthilde Petersen, lést 1887/1888. Systir Einars var Guðlaug Hjörleifsdóttir (1886-1964)
Systkini hennar;
1) Sigurður Einarsson Kvaran1891-9.10.1905. Var á Akureyri, Eyj. 1901. Skólapiltur.
2) Einar Einarsson Kvaran 9.8.1892 - 24.8.1960. Bankabókari í Reykjavík. Var í Reykjavík 1910.
3) Gunnar Gísli Einarsson Kvaran 11.11.1895 - 17.6.1975. Stórkaupmaður og forstjóri í Reykjavík. Var í Reykjavík 1910.
Fyrri maður hennar var 10.10.1908; Ari Jónsson Arnalds 7. júní 1872 - 14. apríl 1957. Bæjarfógeti á Seyðisfirði og Sýslumaður í N-Múl. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Bæjarfógeti á Seyðisfirði 1930. Fyrrverandi bæjarfógeti í Reykjavík 1945. Settur sýslumaður á Blönduósi 1914-1918.
Seinni maður hennar; Magnús Matthíasson [Jochumsson] 3.4.1888 - 7.10.1963. Kaupmaður á Túngötu 5, Reykjavík 1930. Stórkaupmaður í Reykjavík 1945.
Synir hennar og Ara;
1) Sigurður Arason Arnalds 15. mars 1909 - 10. júlí 1998. Heildsali og útgefandi í Reykjavík. Var í Reykjavík 1910. Var á Seyðisfirði 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Fyrri kona hans var Guðrún (Jónsdóttir) Laxdal (f. 1914) fv. kaupkona, foreldrar Ragnars Arnalds þingmanns. Síðari kona Sigurðar er Ásdís Andrésdóttir Arnalds f. 14.12.1922 - 25.4.2010, frá Neðra-Hálsi í Kjós
2) Einar Arason Arnalds 3. janúar 1911 - 24. júlí 1997. Hæstaréttardómari, og forseti Hæstaréttar. Stud. jur. á Túngötu 5, Reykjavík 1930. Borgardómari í Reykjavík 1945. Átti sæti í Mannréttindadómstól Evrópu til margra ára. Hinn 19. sept. 1935 kvæntist Einar Laufeyju Arnalds, f. 16. okt. 1915, d. 14. apríl 1996. Foreldrar hennar voru Guðmundur, bankagjaldkeri, Guðmundsson prests í Reykholti Helgasonar, d. 12. nóv. 1950 og fyrri kona hans Kristín Gunnarsdóttir, kaupmanns í Rvík Gunnarssonar, d. 10. mars 1929. Dætur Einars og Laufeyjar eru.
3) Þorsteinn Arason Arnalds 24. desember 1915 - 1. ágúst 2001. Forstjóri BÚR. Þorsteinn kvæntist 8.8. 1942 Guðrúnu Hallgrímsdóttur Arnalds Tulinius, f. 28.7. 1919 - 1.8.2000. Var á Lækjargötu 3, Reykjavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Matthilde Einarsdóttir Kvaran (1889-1980) Blönduósi
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the spouse of
Matthilde Einarsdóttir Kvaran (1889-1980) Blönduósi
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is controlled by
Matthilde Einarsdóttir Kvaran (1889-1980) Blönduósi
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Maintained by
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ skráning 4.12.2020
Language(s)
- Icelandic