Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
María Hallgrímsdóttir (1905-1994) læknir Rvk
Hliðstæð nafnaform
- María V Hallgrímsdóttir (1905-1994) læknir Rvk
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
21.8.1905 - 16.12.1994
Saga
María Hallgrímsdóttir var fædd í Reykjavík 21. ágúst 1905. Hún lést í hjúkrunarheimilinu Eir 16. desember 1994. María lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1925 og embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1931. Það ár hélt hún til Danmerkur og starfaði þar sem læknir fram til ársins 1940, er hún hvarf aftur til Íslands og setti upp læknastofu í Reykjavík. Árið 1951 hóf hún störf við fæðingardeild Landspítalans og starfaði þar næstu 24 árin.
María var ógift og barnlaus. Útför hennar var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 29.12.1994.
Staðir
Reykjavík: Danmörk 1931-1940:
Réttindi
María lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1925 og embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1931.
Starfssvið
1931 hélt hún til Danmerkur og starfaði þar sem læknir fram til ársins 1940, er hún hvarf aftur til Íslands og setti upp læknastofu í Reykjavík. Árið 1951 hóf hún störf við fæðingardeild Landspítalans og starfaði þar næstu 24 árin.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru Hallgrímur Jónsson (f. 1875, d. 1961) skólastjóri við Miðbæjarbarnaskólann í Reykjavík og kona hans Vigdís Erlendsdóttir (f. 1871, d. 1948) frá Breiðabólstöðum á Álftanesi.
Hallgrímur og Vigdís eignuðust sex börn:
1) María, sem var elst,
2) Jónas, f. 1907, d. sama ár,
3) Meyvant Óskar, f. 1909, d. 1980,
4) Ólafur Davíð, f. 1911, d. 1914,
5) Erlendur Óskar, f. 1914, d. sama ár,
6) Anna, f. 1912.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 7.7.2017
Tungumál
- íslenska