Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

Parallel form(s) of name

  • Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      18.8.1892 - 4.1.1952

      History

      Loftur Guðmundsson, ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður, fæddist 18. ágúst 1892 í Hvammsvík í Kjós. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson, bóndi og síðar verslunarmaður í Reykjavík, og Jakobína Jakobsdóttir. Loftur var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Stefanía Elín Grímsdóttir og eignuðust þau fjögur börn. Eftir að hún lést bjó hann með Guðríði Sveinsdóttur.
      Loftur fluttist til Danmerkur 1921 og stundaði nám í orgelleik og lærði ljósmyndun og framhaldsnám hjá Peter Elfelt í Kaupmannahöfn 1925. Samhliða ljósmyndanáminu kynnti hann sér kvikmyndagerð. Árið 1945 fór hann til Ameríku til að kynna sér hana frekar.

      Lofti var margt til lista lagt, hann var mikill athafna- og uppfinningamaður. Hann stofnaði verslun ásamt öðrum og rak hana þar til hann tók við rekstri gosdrykkjagerðarinnar Sanitas árið 1913 af bróður sínum Guðmundi gerlafræðingi. Árið 1924 seldi hann hlut sinn og ári seinna stofnaði hann ljósmyndastofu í Nýja bíói í Lækjargötu í Reykjavík. Hún var starfrækt þar til 1943 en flutti þá að Bárugötu 5. Hann rak hana til dánardags en niðjar hans tóku við og ráku til ársins 1996.

      Loftur fann upp sérstaka myndagerð, svokallaða 15-foto-filmfoto, sem var með 15 myndir af fyrirsætunni á einu spjaldi, og lét sérsmíða ramma fyrir sig til að taka slíkar myndir.

      Kvikmyndagerðin heillaði einnig og liggja eftir hann rúmlega 20 myndir í Kvikmyndasafni Íslands. Tvær leiknar myndir byggja á sögu eftir hann sjálfan, Milli fjalls og fjöru (1948) og Niðursetningurinn (1951).

      Hann varð konunglegur sænskur hirðljósmyndari árið 1928 fyrir myndir sem hann sendi sænska konunginum að gjöf. Þá hlaut hann viðurkenningu frá Jupiterlicht verksmiðjunni í Þýskalandi fyrir uppfinningu á sérstaklega heppilegri notkun á ljósmyndalömpum.

      Loftur lést 4. janúar 1952.

      Places

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Ljósmyndari

      Mandates/sources of authority

      "Enginn getur lifað án Lofts"
      Bókin hefur að geyma þrjár greinar um Loft Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndara og kvikmyndagerðarmann, ævi hans og störf eftir Erlend Sveinsson, Ingu Láru Baldvinsdóttur og Margréti Elísabetu Ólafsdóttur.
      Loftur var fjölhæfur maður og afkastamikill. Hann var sönglagahöfundur og lagasmiður.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans; Guðmundur Guðmundsson 30. nóvember 1850 - 12. mars 1934 Trésmiður á Smiðjustíg 11, Reykjavík 1930. Dótturdóttir: Jakobína Jósefsdóttir. Bóndi í Hvammsvík í Kjós, síðar verslunarmaður og smiður í Reykjavík og kona hans 14.10.1879; Jakobína Jakobsdóttir 3. nóvember 1857 - 18. mars 1931 Húsfreyja í Hvammsvík í Kjós og síðar í Reykjavík

      Systkini hans;
      1) Gísli Guðmundsson 6. júlí 1884 - 26. september 1928 Húsbóndi í Reykjavík 1910. Gerlafræðingur og verksmiðjustjóri í Reykjavík. Kona hans 1912; Halldóra Þórðardóttir 14. maí 1891 - 25. janúar 1984 Ekkja á Smiðjustíg 11, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík.
      2) Guðríður Guðmundsdóttir 24. nóvember 1886 - 16. september 1957 Var í Reykjavík 1910. Var á Jaðri, Útskálasókn, Gull. 1930. Húsfreyja í Reykjavík.
      3) Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka 8. október 1888 - 11. júní 1974 Var í Reykjavík 1910. Húsfreyja á Kirkjuvegi 27, Vestmannaeyjum 1930. Var á Héraðshælinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Húsfreyja í Vestmannaeyjum, á Blönduósi og síðast í Reykjavík. Maður hennar 3.11.1916; Páll Valdimar Guðmundsson Kolka 25. janúar 1895 - 19. júlí 1971 Spítalalæknir á Kirkjuvegi 27, Vestmannaeyjum 1930. Var á Héraðshælinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Héraðslæknir í Vestmannaeyjum, á Blönduósi og síðast í Reykjavík. Síðast bús. í Reykjavík.
      4) Ingibjörg Katrín Guðmundsdóttir 25. desember 1890 - 21. janúar 1973 Húsfreyja á Jaðri, Útskálasókn, Gull. 1930. Húsfreyja á Jaðri, Gerðahr., Gull. Maður hennar 1910;
      5) Þorbergur Guðmundsson 18. september 1888 - 2. apríl 1982 Bóndi og sjómaður á Jaðri, Útskálasókn, Gull. 1930. Útgerðarmaður á Jaðri, Gerðahr., Gull.
      6) Fríða Guðmundsdóttir 17. mars 1905 - 3. maí 1987 Var í Reykjavík 1910. Skrifstofustúlka á Smiðjustíg 11, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Maður hennar 3.11.1932: Baldur Sveinsson 18. október 1902 - 2. nóvember 1967 Bankaritari á Skólavörðustíg 21, Reykjavík 1930. Bankafulltrúi í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.

      M1; Stefanía Elín Grímsdóttir 28. október 1898 - 27. apríl 1940 Var í Reykjavík 1910. Húsfreyja á Hjallalandi, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík.
      M2 29.5.1943; Guðríður Sveinsdóttir 22. nóvember 1908 - 18. apríl 2002 Var í Ásum, Grafarsókn, Skaft. 1910. Húsfreyja í Reykjavík. Fyrri maður hennar 1.10.1932; Valdimar Frímann Helgason 21. ágúst 1907 - 29. nóvember 1972 Verkstjóri í Reykjavík. Var í Vík í Mýrdal, Reynissókn, Skaft. 1910. Vélagæslumaður á Hallveigarstíg 6 a, Reykjavík 1930. Þau skildu.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Guðmundur Guðmundsson (1882-1919) skipsstjóri (23.2.1882 - 17.2.1919)

      Identifier of related entity

      HAH04032

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Guðmundsson (1882-1919) skipsstjóri is the sibling of Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

      Dates of relationship

      1892

      Description of relationship

      Related entity

      Guðbjörg Kolka (1888-1974) Blönduósi (8.10.1888 - 11.6.1974)

      Identifier of related entity

      HAH03839

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðbjörg Kolka (1888-1974) Blönduósi is the sibling of Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

      Dates of relationship

      18.8.1892

      Description of relationship

      Related entity

      Gísli Guðmundsson (1884-1928) gerlafræðingur (6.7.1884 - 26.9.1928)

      Identifier of related entity

      HAH03763

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Gísli Guðmundsson (1884-1928) gerlafræðingur is the sibling of Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

      Dates of relationship

      18.8.1892

      Description of relationship

      Related entity

      Guðríður Guðmundsdóttir (1886-1957) frá Hvammshlíð í Kjós (24.11.1866 - 16.9.1957)

      Identifier of related entity

      HAH04204

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðríður Guðmundsdóttir (1886-1957) frá Hvammshlíð í Kjós is the sibling of Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

      Dates of relationship

      18.8.1892

      Description of relationship

      Related entity

      Fríða Guðmundsdóttir (1905-1987) Hvammshlíð í Kjós (17.3.1905 - 3.5.1987)

      Identifier of related entity

      HAH03484

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Fríða Guðmundsdóttir (1905-1987) Hvammshlíð í Kjós is the sibling of Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

      Dates of relationship

      17.3.1905

      Description of relationship

      Related entity

      Jakobína Jakobsdóttir (1857-1931) Hvammsvík (13.11.1857 - 18.3.1931)

      Identifier of related entity

      HAH05248

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jakobína Jakobsdóttir (1857-1931) Hvammsvík is the parent of Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

      Dates of relationship

      18.8.1892

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Guðmundsson (1850-1934) Hvammsvík (30.11.1850 - 12.3.1934)

      Identifier of related entity

      HAH04025

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Guðmundsson (1850-1934) Hvammsvík is the parent of Loftur ljósmyndastofa / Loftur Guðmundsson (1892-1952) ljósmyndari

      Dates of relationship

      18.8.1892

      Description of relationship

      Loftur Guðmundsson ljósmyndari

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH06009

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Partial

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 21.2.2020

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes