Langjökull

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Langjökull

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        874 -

        History

        Langjökull er annar stærsti jökull Íslands, um 950 km² að stærð og hæsti punktur hans í 1.355 m hæð.

        Jökullinn er vestan við Hofsjökul á miðhálendi Íslands. Er hann talinn þekja tvær eldstöðvar. Hallmundarhraun rann um árið 900 frá eldvörpum við norðvesturbrún Langjökuls og alla leið til byggða í Hvítársíðu eða um 50 kílómetra leið.

        Austan undir jöklinum er jökullónið Hvítárvatn en það er upphaf Hvítár.

        Places

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Langjökull er næststærsti jökull landsins, um 950 km2. Undir honum norðan- og sunnanverðum liggja allhá móbergsfjöll og þar eru jafnframt megineldstöðvarnar tvær sem jökullinn geymir. Miðhluti jökulsins myndar einskonar mjóa jökulbrú á milli þessara fjallgarða og talið er líklegt að í upphafi landnáms hafi þar verið jökullaust svæði og því um tvo jökla að ræða.

        Jökullinn er víðast hvar frekar þunnur, milli 1-200 metrar. Í norðurhlutanum er askja um 6 km. í þvermál og 400 metra djúp og jökulfyllt. Er hún nálægt nyrðri enda eldstöðvakerfisins sem nær svo um 50 km. til suðvesturs.

        Langjökulseldstöðin hefur ekki verið eins mikið rannsökuð eins og flest önnur eldstöðvakerfi landsins sem enn eru virk og stafar það af því að hún er lítt virk og þaðan af síður með hættulegri eldstöðvum landsins. Það er ekki einu sinni fullljóst hvort um er að ræða eitt eldstöðvakerfi með tveimur megineldstöðvum eða tvö aðskilin eldstöðvakerfi undir jöklinum. Þó er ljóst að eldstöðvakerfið eða kerfin ná nokkuð langt til suðurs til Þingvalla þar sem það nær nánast að norðurhluta Hengilskerfisins.

        Langjökull tilheyrir vestara gosbeltinu, því sama og Reykjanesskaginn og Hengilskerfið. Allmörg kulnuð eldfjöll eru í nágrenni Langjökuls, svo sem Eiríksjökull og Þórisjökull.

        Gossaga á nútíma

        Langjökull hefur ekki verið mikilvirkur á nútíma ef undan eru skilin nokkuð stór dyngjugos á fyrrihluta nútíma. Langstærst þeirra er Skjaldbreiður sem er ein stærsta dyngja landsins. Fjallið er líklega myndað í einu áratuga löngu gosi fyrir um 10.000 árum og er hraunið talið vera allt að 25 rúmkílómetrar sem gerir þetta að einhverju allra mesta hraunflæmi á jörðinni myndað í einu gosi á nútíma. Dyngjugosin eru reyndar á margan hátt frábrugðin hefðbundnum gosum úr megineldstöðvum. Þau voru algengust á fyrrihluta nútíma þegar landið reis eftir að ísaldarjökullinn bráðnaði að mestu. Þrýstingsléttir varð þess valdandi að kvika átti tiltölulega greiða leið beint upp úr möttlinum til yfirborðs. þessi gos hafa mörg hver varað nokkuð lengi en ekki verið kraftmikil. Nokkrar dyngjur eru innan eldstöðvakerfis Langjökuls.

        Fyrir utan dyngjugosin eru aðeins taldar um 5-6 goseiningar frá nútíma, flestar litlar. Stærsta hraunið er þó runnið eftir landnám, Hallmundarhraun. Það rann um árið 900 frá eldvörpum við norðvesturbrún Langjökuls og alla leið til byggða í Hvítársíðu um 50 kílómetra leið. þetta hefur verið allmikið gos því hraunið er um 2-3 rúmkílómetrar og ekki er útilokað að einnig hafi verið eldstöðvar virkar undir jöklinum í þessu gosi. Heimildir um þetta gos eru furðulitlar miðað við að hraunið náði niður í byggð.

        Hraunfossar

        Jarðskjálftavirkni hefur frá upphafi mælinga verið nokkuð mikil við Langjökul sem bendir til þess að þarna séu lifandi eldstöðvar. Eins og áður segir hefur Langjökull ekki verið talinn geyma hættulegar eldstöðvar og hefur því ekki verið í forgangi hvað rannsóknir varðar. Það er þó ljóst að kerfið eða kerfin í jöklinum eru vel fær um að framleiða nokkuð öflug gos.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Suðurjökull í Langjökli / Norðurjökull ((1400))

        Identifier of related entity

        HAH00879b

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Jöklar frá litlu ísöld

        Related entity

        Bláfell hjá Kili (1.204 m) (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00882

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Bláfell hjá Kili (1.204 m) is the associate of Langjökull

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Hvítá í Borgarfirði

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Hvítá í Borgarfirði is the associate of Langjökull

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Hvítá í Árnessýslu (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00375a

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Hvítá í Árnessýslu is the associate of Langjökull

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Hallmundarhraun / Gráhraun

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Hallmundarhraun / Gráhraun is the associate of Langjökull

        Dates of relationship

        um900

        Description of relationship

        Related entity

        Hallmundarhraun

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Hallmundarhraun is the associate of Langjökull

        Dates of relationship

        um900

        Description of relationship

        Related entity

        Hvítárvatn við Langjökul ((1950))

        Identifier of related entity

        HAH00259

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Hvítárvatn við Langjökul is the associate of Langjökull

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00879

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 13.5.2020

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes