Kristján Kristjánsson (1934-2007) Steinnýjarstöðum

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Kristján Kristjánsson (1934-2007) Steinnýjarstöðum

Parallel form(s) of name

  • Kristján Kristjánsson (1934-2007) Steinnýjarstöðum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      3.8.1934 - 10.10.2007

      History

      Kristján Kristjánsson fæddist í Hvammkoti í Skagahreppi hinn 3. ágúst 1934, hann lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi hinn 10. október 2007. Kristján fæddist og ólst upp í Hvammkoti, árið 1949 fluttist fjölskyldan að Steinnýjarstöðum. Hann tók mjög ungur virkan þátt í bústörfunum. Hann gekk í skóla í sveitinni og hafði mjög gaman af því að læra. Kristján og Árný byggðu upp jörðina, bæði húsakost og tún af miklum dugnaði og eljusemi, með hjálp og þátttöku barna sinna. Það var Kristjáni mikið ánægjuefni að Steini og Linda tóku við búinu á Steinnýjarstjöðum.
      Kristján verður jarðsunginn frá Hofskirkju í Skagabyggð í dag, laugardaginn 20. október, og hefst athöfnin kl. 14.

      Places

      Hvammkoti á Skaga: Strinnýjarstaðir 1949:

      Legal status

      Þegar hann var 18 ára fór hann einn vetur í Smíðaskóla að Hólmi í Landbroti. Þar lærði hann smíði og einnig bóklegar greinar og hafði mikla ánægju af.

      Functions, occupations and activities

      Á sínum yngri árum var hann til sjós bæði frá Skagaströnd og einnig frá Grindavík. Hann vann einn vetur við byggingarvinnu á Keflavíkurflugvelli. Sumarið 1963 vann hann við bryggjusmíðar í Neskaupstað. Hann vann við togaralöndun á Skagaströnd upp úr 1980. Formaður sóknarnefndar Hofskirkju frá því árið 1985 og til dauðadags. Starfaði mikið við kirkjuna á Hofi.
      Kristján var einn af stofnendum Veiðifélags Langavatns og var ritari í stjórn og sá um að selja veiðileyfi í Langavatn. Hann hafði mikla ánægu af því að veiða og talaði sjálfur um að hans bestu stundir hefðu verið við Langavatn.
      Hann var lengi í stjórn Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd. Kristján gekk í Búnaðarfélag Skagahrepps árið 1965 og var þar ritari fram til þessa dags.
      Hann var deildarstjóri við Kaupfélag Húnvetninga. Í hreppsnefnd Skagahrepps í 20 ár.

      Mandates/sources of authority

      Kristján var mikill bókamaður og átti mikið bókasafn og var víðlesinn. Hann hélt alltaf dagbók.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans voru Kristján Guðmundsson bóndi, f. 12.7. 1896, d. 14.2. 1979, og Guðríður Jónasdóttir, f. 3.8. 1908, d. 20.4. 1982.
      Systkini Kristjáns eru Sigurlaug, f. 13.9. 1935, maki Pétur Mikael Sveinsson. María, f. 3.4. 1937, maki Sveinn Guðberg Sveinsson, Sigurbjörg, f. 11.12. 1938, maki Gunnar Kaprasíus Stefánsson, hann er látinn, Ásta, f. 19.1. 1941, maki Sigurður Einarsson. Guðmundur, f. 16.4. 1944, maki Ragnheiður Grímsdóttir.
      Kristján kvæntist hinn 2. ágúst 1964 Árnýju Margréti Hjaltadóttur frá Skeggjastöðum í Skagahreppi, f. 6.4. 1939. Hún er dóttir Hjalta Árnasonar, bónda á Skeggjastöðum, og konu hans, Önnu Lilju Magnúsdóttur, og er hún látin.
      Börn Kristjáns og Árnýjar Margrétar eru
      1) Anna, f. 23.8. 1965, maki Gunnar Már Ármannsson, f. 28.3. 1964, synir þeirra eru Kristján Már, f. 8.2. 1988, Ármann Steinar, f. 8.4. 1991, Helgi Grétar, f. 5.1. 1996, og Guðmundur Sveinn, f. 25.11. 2004.
      2) Kristján Steinar, f. 21. 9. 1966 maki Linda Björk Ævarsdóttir, f. 13.7. 1973, börn þeirra eru Kristján Heiðmar, f. 1.7. 1991, Andrea Björk, f. 23.8. 1993, Gunnþór Ingi, f. 1.4. 1997, og Feydís Ósk, f. 14.11. 2002.
      3) Guðríður Ingunn, f. 23.11. 1968, maki Sævar Freyr Þorvarðarson, f. 20.6. 1968, börn þeirra eru Fannar, f. 22.5. 1991, Arnór Freyr, f. 10.5. 1993, Svanhildur, f. 21.4. 1997, og Árný Margrét, f. 7.5. 2001.
      4) Hjalti, f. 18.3. 1972, kvæntur Sveinbjörgu Snekkju Jóhannesdóttur, f. 20.8. 1973, synir þeirra eru Almar Knörr, f. 5.1. 1997, Steinar Daði, f. 3.9. 2002, og Þórður Ingi, f. 2.5. 2005.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Hjalti Árnason (1915-2010) Skeggjastöðum á Skaga (11.1.1915 - 4.7.2010)

      Identifier of related entity

      HAH01439

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      2.8.1964

      Description of relationship

      Tengdafaðir Kristjáns, giftur Árnýju Margréti dóttur Hjalta.

      Related entity

      Baldvin Valgarð Hjaltason (1940) Skagaströnd (7.8.1940 -)

      Identifier of related entity

      HAH02554

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      2.8.1964

      Description of relationship

      Kristján var giftur Árnýju systur Baldvins

      Related entity

      Sigurður Einarsson (1938-2010) Hólmavík (25.8.1938 - 23.4.2010)

      Identifier of related entity

      HAH01941

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      29.3.1964

      Description of relationship

      Kona Sigurðar var Ásta Kristjánsdóttir (1941) systir Kristjáns

      Related entity

      Ásta Kristjánsdóttir (1941) (19.1.1941 -)

      Identifier of related entity

      HAH03674

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ásta Kristjánsdóttir (1941) is the sibling of Kristján Kristjánsson (1934-2007) Steinnýjarstöðum

      Dates of relationship

      19.1.1941

      Description of relationship

      Related entity

      Árný Hjaltadóttir (1939) Steinnýjarstöðum (6.4.1939 -)

      Identifier of related entity

      HAH03585

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Árný Hjaltadóttir (1939) Steinnýjarstöðum is the spouse of Kristján Kristjánsson (1934-2007) Steinnýjarstöðum

      Dates of relationship

      2.8.1964

      Description of relationship

      Börn þeirra; 1) Anna, f. 23.8. 1965, maki Gunnar Már Ármannsson, f. 28.3. 1964, 2) Kristján Steinar, f. 21. 9. 1966 maki Linda Björk Ævarsdóttir, f. 13.7. 1973, 3) Guðríður Ingunn, f. 23.11. 1968, maki Sævar Freyr Þorvarðarson, f. 20.6. 1968, 4) Hjalti, f. 18.3. 1972, kvæntur Sveinbjörgu Snekkju Jóhannesdóttur, f. 20.8. 1973,

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01687

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 2.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes