Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Kristín Magnúsdóttir (1939-2012)
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
23.1.1939 - 10.10.2012
Saga
Kristín Magnúsdóttir fæddist á Snældubeinsstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði 23. janúar 1939. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 10. október 2012. Kristín ólst upp í Reykholtsdal í Borgarfirði og gekk þar í barnaskóla, veturinn 1957-58 fór hún í Húsmæðraskóla Suðurlands á Laugarvatni. Kristín og Arnoddur hófu búskap á Reykjanesvegi 6 í Ytri-Njarðvík en lengst af bjuggu þau á Suðurvöllum 6, Keflavík. Útför Kristínar verður gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 18. október 2012, og hefst athöfnin kl. 13.
Staðir
Snældubeinsstaðir í Reykholtsdal í Borgarfirði: Ytri-Njarðvík: Keflavík:
Réttindi
Veturinn 1957-58 fór hún í Húsmæðraskóla Suðurlands á Laugarvatni:
Starfssvið
Kristín vann við ýmis störf í gegnum tíðina, m.a. fiskvinnslu, hjá Ragnarsbakaríi og síðast við barnagæslu og sem gangavörður Holtaskóla í Keflavík.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar Kristínar voru Jón Magnús Jakobsson, f. 29.5. 1891, d. 23.4. 1962, og Sveinsína Arnheiður Sigurðardóttir, f. 22.12. 1899, d. 14.4. 1980.
Systkini Kristínar eru Jakob, f. 18.4. 1925, d. 9.8. 2005, Helgi, f. 4.2. 1929, Sigurður, f. 2.3. 1933, og Herdís, f. 1.1. 1941.
Kristín giftist 4.3. 1962 Arnoddi Þorgeiri Tyrfingssyni, f. 17.8. 1938. Arnoddur er sonur Þorbjargar Elísabetar Jóhannesdóttur, f. 16.1. 1919, d. 27.1. 1983 og Tyrfings Þorsteinssonar, f. 30.11. 1918, d. 15.1. 2004.
Kristín og Arnoddur eiga fjögur börn. Þau eru:
1) Arnheiður Magnúsdóttir, f. 14.6. 1957, gift Jóhanni Þór Hopkins. Þeirra börn eru Eva Lind, Adam Þór og Kristín Lind. Eva Lind er gift Unnari Þorsteini Bjartmarssyni. Þeirra börn eru Jóhann Þór og Bjartmar Þór.
2) Elísabet, f. 22.11. 1959, gift Magnúsi Ársælssyni. Elísabet á fyrir Arnodd Þór Jónsson sem er í sambúð með Guðrúnu Ingu Jóhannesdóttur og eiga þau eitt barn, Elísabetu. Fyrir átti Magnús Leó og Herdísi. Leó er í sambúð með Pálu Björk Kúld og eiga þau eitt barn, Sunnevu Huld. Herdís er í sambúð með Karli Hrannari Sigurðssyni.
3) Erla, f. 23.2. 1966, gift Vilhjálmi Ingvarssyni. Þeirra börn eru Anna Margrét og Elísabet. Jón Ármann, f. 14.6. 1968, giftur Svanhildi Leifsdóttur. Þeirra börn eru Kristinn Ásgeir og Hjördísi Arna
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 1.7.2017
Tungumál
- íslenska