Kristín Thorarensen (1900-1994) Sigtúni Selfossi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Kristín Thorarensen (1900-1994) Sigtúni Selfossi

Parallel form(s) of name

  • Kristín Daníelsdóttir Thorarensen (1900-1994) Sigtúni Selfossi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      4.8.1900 - 6.1.1995

      History

      KRISTÍN D. THORARENSEN Í dag, föstudaginn 6. janúar 1995, verður jarðsett frá Garðakirkju, Garðabæ, kl. 13.30, Kristín D. Thorarensen, sem andaðist fimmtudaginn 29. desember sl. í Hafnarbúðum. Kristín var fædd í Reykjavík 4. ágúst aldamótaárið 1900 og var því á 95. aldursári er hún lést. Móðurætt Kristínar lá um Hafnarfjörð í Ölfus og er hún í sjötta ættlið frá Guðna Jónssyni, bónda í Reykjakoti, f. 1716. Föðurætt Kristínar má rekja um Húnarvatnssýslu í Eyjaförð og er hún fimmti ættliður frá Andrési Ólafssyni, f. 1749, Sláttu-Andrési, frá Ásgerðarstöðum, héraðsfrægum sláttumanni. Frá Guðna Jónssyni er komin fjölmenn ætt, Reykjakotssætt, um Ölfus og Suðurland. Árið 1917 flytur afi Daníel að Sigtúnum við Ölfusársbrú með fjölskyldu sína og veldur með því straumhvörfum í lífi móður minnar. Þar kynnast þau móðir mín og faðir, Egill Gr. Thorarensen, og ganga í hjónaband vorið 1919. Daníel selur Agli Sigtún og segist leiður orðinn á hóglífi og vilji tilbreytingu. Sennilegra sýnist mér að Daníel hafi með sölunni viljað sýna trú sína á framtíð ungu hjónanna og traust á tengdasyninum, til farsælla verka. Honum varð að trú sinni.
      Um árabil rak Egill verslun sína á Selfossi. Bú ungu hjónanna óx og dafnaði og börnin uxu úr grasi. Heimilið að Sigtúnum stóð um þjóðbraut þvera, í orðsins fyllstu merkingu og annir hlóðust á ungu húsfreyjuna. Heimilið var jafnan mannmargt en hjúasæld ungu hjónanna einstök, utan stokks sem innan, og gestir ávallt velkomnir. Heilsuleysi föður míns, á köflum, reyndi á þrek móður minnar, sem unni sér ekki hvíldar í hjúkrun hans, en stóð sem klettur við hlið hans.
      Fjölskyldan flutti síðan í nýbyggt íbúðarhús kaupfélagsins og átti þar meiri friðsæld að fagna, en í gömlu Sigtúnum, verslunarmiðstöðinni, með sínum önnum og erli, nótt sem nýtan dag. Grímur frá Kirkjubæ og Jónína frá Múla, afi og amma byggðu sér snoturt íbúðarhús í næsta nágrenni, en Grímur vann síðustu ár sín á kontór K.Á. Þau voru móður minni sem bestu foreldrar, enda öndvegismanneskjur.

      Places

      Reykjavík: Brautarholt á Kjalarnesi 1909-1914: Lágafell 1914: Sigtúnum á Selfossi 1917:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Húsfreyja: naut tilsagnar í píanóleik, m.a. hjá Sigfúsi Einarssyni. Tólf ára gömul var hún organisti við Lágafellskirkju og lék talsvert á píanó fram yfir miðjan aldur,

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Hún var yngst þriggja dætra Nielsínu A. Ólafsdóttur og eiginmanns hennar Daníels Benedikts Daníelssonar ljósmyndara. Systur hennar, Guðrún, elst, og Sólveig eru löngu látnar.
      Á vordögum 1919 gekk Kristín að eiga Egil Grímsson Thorarensen, síðar kaupfélagsstjóra á Selfossi, en leiðir skildu 1942, eftir tæplega aldarfjórðungs hjúskap. Egill lést 15.1. 1961. Kristín og Egill áttu fjögur börn:
      1) Grímur E. Thorarensen, f. 6.6. 1920, d. 3.8. 1991. Hann var kvæntur Bryndísi G. Thorarensen, sem lifir mann sinn. Þau áttu átta börn. Erla E. Thorarensen, f. 29.4. 1923, gift Ólafi Sveinssyni og eiga þau eina dóttur. Benedikt Thorarensen, f. 1.2. 1926, kvæntur Guðbjörgu M. Thorarensen, barnlaus. Jónína Guðrún Thorarensen, f. 15.3. 1928, gift Gunnari Pálssyni og eiga þau þrjár dætur.
      Barnabörnin eru nú orðin 28.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Guðmundur Þorkelsson (1846-1919) Miðgili (4.5.1846 - 27.12.1919)

      Identifier of related entity

      HAH04147

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      sjá texta

      Related entity

      Guðrún Sveinbjörnsdóttir (1912-2002) Danmörku (17.1.1912 - 7.4.2002)

      Identifier of related entity

      HAH04474

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      sjá texta

      Related entity

      Guðni Vigfússon (1934-1992) bifreiðastjóri Blönduósi, frá Selfossi (3.5.1934 - 10.4.1992)

      Identifier of related entity

      HAH01297

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Örn bróðir hans er giftur Kristínu Grímsdóttur Thorarensen sonardóttur Kristínar

      Related entity

      Þóra Thoroddsen Pétursdóttir (1847-1917) biskupsdóttir Kaupmannahöfn (3.10.1847 - 22.3.1917)

      Identifier of related entity

      HAH09278

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      föðursystir Egils manns hennar var Kristín Thorarensen kona Boga bróður hennar

      Related entity

      Stefán Bergmann Magnússon (1885-1969) ljósmyndari Keflavík (9.9.1885 - 17.1.1969)

      Identifier of related entity

      HAH09453

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Kona Daníels dóttursonar hans var systir Kristínar

      Related entity

      Guðrún Daníelsdóttir (1895-1967) Reykjavík (24.4.1895 - 1.2.1967)

      Identifier of related entity

      HAH09387

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Daníelsdóttir (1895-1967) Reykjavík is the sibling of Kristín Thorarensen (1900-1994) Sigtúni Selfossi

      Dates of relationship

      4.8.1900

      Description of relationship

      Related entity

      Solveig Daníelsdóttir (1898-1980) Reykjavík (10.4.1898 - 7.4.1980)

      Identifier of related entity

      HAH09385

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Solveig Daníelsdóttir (1898-1980) Reykjavík is the sibling of Kristín Thorarensen (1900-1994) Sigtúni Selfossi

      Dates of relationship

      4.8.1900

      Description of relationship

      Related entity

      Daníel Daníelsson (1866-1937) ljósmyndari (25.5.1866 - 6.12.1937)

      Identifier of related entity

      HAH03006

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Daníel Daníelsson (1866-1937) ljósmyndari is the parent of Kristín Thorarensen (1900-1994) Sigtúni Selfossi

      Dates of relationship

      1900

      Description of relationship

      Related entity

      Abigael Ólafsdóttir (1870-1958) Reykjavík (28.12.1870 - 6.9.1958)

      Identifier of related entity

      HAH09386

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Abigael Ólafsdóttir (1870-1958) Reykjavík is the parent of Kristín Thorarensen (1900-1994) Sigtúni Selfossi

      Dates of relationship

      4.8.1900

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01658

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 1.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes