Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Jónas Bragason (1958-1991) Sunnuhlíð og Marðarnúpi
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
17.9.1958-3.3.1991
History
Bóndi á Marðarnúpi og síðar í Sunnuhlíð, Áshr., A-Hún. Síðast bús. í Áshreppi.
fæddur á Blönduósi,
Útför hans fór fram frá Undirfellskirkju 8. mars.
Places
Marðarnúpur
Sunnuhlíð, Áshr., A-Hún.
Legal status
Eða var það kannski öræfakyrrðin, sem yfir hvílir, sem heillaði hann mest. Þannig eru hugir þeirra er þrá vorið: „Sjá sólblik í anda og sefgrænar heiðar anga", eins og Ólafur komst að orði í kvæði sínu Vorþrá. Árið 1985 fór að gæta þess sjúkdóms er síðar átti eftir að ágerast og leiddi hann til dauða. Dvaldi hann síðustu ár æfí sinnar öðru hverju á sjúkrahúsum og síðustu mánuði lífs síns á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi, en þar lést hann aðeins 32 ára að aldri. Með Jónasi í Sunnuhlíð er horfínn fyrir aldur fram hógvær og góður drengur. Hvarvetna þar sem hann fór naut hann trausts og álits sem góður verkmaður og félagi.
Functions, occupations and activities
Jónas var fyrstu ár æfi sinnar í Forsæludal, þar sem foreldrar hans bjuggu á árunum 1952 -1962 en þau fluttu síðan að Sunnuhlíð þar sem hann ólst upp ásamt 6 systkinum. Dvaldi hann í foreldrahúsum að mestu tíl ársins 1978, en þá hleypti hann heimdraganum og réðist m.a. að Hvanneyri í i Borgarfirði, þar sem hann vann hjá skólabúinu við heyskap og fleira. Síðar snéri hann heim og hóf búskap að Marðarnúpi. Var með fé og farnaðist vel. En þetta var á árunum 1982 - 1984. Hafði hugur hans snemma hneigst til búskapar og fór hann vel með allan búpening. Engu að síður sneri hann sér að öðrum störfum næstu árin. Vann m.a. á ýtum og við steypustöðina á Blönduósi sumartíma. Jónas tók ungur þátt í göngum og lá á grenjum mörg vor. Hann var náttúrubarn. Engum er til þekkti blandaðist hugur um, er vorilmur var í lofti, hvert hugur hans stefndi.
Mandates/sources of authority
„Ársvalinn ilmi þrunginn
örvandi strýkur kinnar.
Blasa við heiðar í hilling.
Hugurinn leitar innar."
Ólafur í Forsæludal
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans; Bragi Arnar Haraldsson 30. júlí 1932 Var í Forsæludal, Áshr., A-Hún. 1957 og kona hans; Indiana Sigfúsdóttir 16. júní 1927 - 18. október 2008 Var á Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Var í Forsæludal, Áshr., A-Hún. 1957.
Systkini hans;
1) Sigríður Ingibjörg Ragnarsdóttir 25. júní 1949. Var í Forsæludal, Áshr., A-Hún. 1957. Maður hennar; Lúther Þór Olgeirsson 24. apríl 1943 Fæddur 23.4.1943 skv. kb.
Börn Indiönu og Braga Haraldssonar 30.7.1932, eru;
2) Sigfús Indriði Bragason 25. ágúst 1953. Var í Forsæludal, Áshr., A-Hún. 1957.
3) Ólafur Bragason 16. apríl 1957. Sennilega sá sem nefndur er drengur Bragason í A- og V-Hún. 1957, og var í Forsæludal, Áshr., A-Hún. 1957. Sunnuhlíð
4) Jónas Bragason 17. september 1958 - 3. mars 1991. Bóndi á Marðarnúpi og síðar í Sunnuhlíð, Áshr., A-Hún. Síðast bús. í Áshreppi.
5) Helgi Bragason 6. apríl 1961. Blönduósi.
6) Árni Bragason 1. júlí 1965. Bóndi Sunnuhlíð
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Jónas Bragason (1958-1991) Sunnuhlíð og Marðarnúpi
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the sibling of
Jónas Bragason (1958-1991) Sunnuhlíð og Marðarnúpi
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ skráning 9.7.2022
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði 9.7.2022
Íslendingabók
Húnavaka 2009, http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=6454669
Húnavaka 1992, http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=6350929