Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Jóna Sigþrúður Stefánsdóttir (1925-2017) Fossum
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
19.12.1925 - 21.1.2017
Saga
Jóna Sigþrúður Stefánsdóttir. Var á Ekru, Hjaltastaðarsókn, N-Múl. 1930. Húsfreyja á Fossum í Bólstaðarhlíðarhreppi. Síðast bús. á Blönduósi. Fæddist á Ekru í Hjaltastaðaþinghá 19. desember 1925. Jóna ólst upp á Ekru í Hjaltastaðaþinghá. Þar vann hún við hin hefðbundnu sveitastörf. Hún var mikið náttúrubarn og leið best úti í náttúrunni. Vorið 1959 réð hún sig sem ráðskona að Fossum í Svartárdal til þeirra feðga þar. Jóna og Bjössi fóru fljótlega að búa saman og bjuggu félagsbúi með aðskilið skepnuhald en unnu sameiginlega að heyöflun og öðrum bústörfum með bræðrum hans og föður. Hún var bóndi af lífi og sál. Eftir að Bjössi lést 2010 bjó hún til haustsins 2011 með aðstoð Guðmundar sonar síns. Þá flutti hún til Blönduóss að Hnitbjörgum.
Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 21. janúar 2017. Jóna var jarðsungin frá Bergstaðakirkju 4. febrúar 2017, klukkan 14.
Staðir
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar; Stefán Jónsson frá Heyskálum í Hjaltastaðahreppi, bóndi á Ekru, f. 12. febrúar 1893, d. 1. janúar 1968, og Sigurborg Sigurðardóttir frá Litlasteinsvaði í Tunguhreppi, f. 9. ágúst 1890, d. 4. október 1969.
Systkini
1) Aðalheiður Ástdís Stefánsdóttir f. 4. júlí 1920, d. 1. janúar 2006, búsett lengst af í Smiðsgerði í Skagafirði,
2) Sigrún Stefánsdóttir f. 13. desember 1921, d. 16. júlí 1987, búsett lengst af í Reykjavík,
3) Gerður Ingibjörg Stefánsdóttir f. 8 júlí 1927, d. 14. desember 2007, búsett lengst af á Egilsstöðum,
4) Gunnsteinn Stefánsson 23. júní 1930, d. 10. janúar 1986, búsettur á Egilsstöðum.
Maður hennar; Guðmundur Sigurbjörn Guðmundsson 20. febrúar 1930 - 24. september 2010. Var á Fossum, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Var á Fossum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Bóndi á Fossum í Bólstaðarhlíðarhreppi.
Börn þeirra;
1) Stefán Sigurbjörn Guðmundsson 25.1.1961, búsettur á Sauðárkróki, kvæntur Unu Aldísi Stefánsdóttur og eiga þau þrjá syni: Sigurð Pál, Rúnar Inga og Atla Stein.
2) Guðrún Guðmundsdóttir 16.1.1962, búsett í Hólmi, Hornafirði, gift Magnúsi Guðjónssyni og eiga þau þrjú börn: Guðjón Örn, Birnu Jódísi og Arndísi Ósk.
3) Guðmundur Guðmundsson 12. október 1966. Fossum Svartárdal og Skagafirði. Kona hans; Helga Þorbjörg Hjálmarsdóttir 11. júlí 1968. Faðir hennar; Hjálmar Sigurjón Guðjónsson 15. mars 1943 - 20. júní 2007 Bóndi á Tunguhálsi í Lýtingsstaðahreppi og deildarstjóri hjá KS. Sinnti ýmsum stjórnunar-, nefndar- og félagsstörfum. Söngáhugamaður og kórfélagi. Systir Helgu er Þórey Elsa (1990).
4) Borgþór Ingi Guðmundsson 13.3.1972, búsettur í Reykjavík.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS-HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ skráning 28.5.2023
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði 28.5.2023
Íslendingabók
Niðjatal. http://gudmundurpaul.tripod.com/magnus.html
Mbl 4.2.2017. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1628038/?item_num=0&searchid=d64c5eec0000b7c2bf99e52ba0de44e21d036ca3
Athugasemdir um breytingar
Stafræn eining metadata
Aðgengi
Heiti skjals
Jna_Sigr__ur_Stefnsdttir1925-2017__Fossum.jpg
Latitude
Longitude
Gerð miðla
Mynd
Mime-type
image/jpeg