Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Jóna Sigríður Sveinbjarnardóttir (1912-2005)
Hliðstæð nafnaform
- Jóna Sigríður Sveinbjarnardóttir (1912-2005) frá Bjargarstöðum í Miðfirði
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
14.9.1912 - 18.7.2005
Saga
Jóna Sigríður Sveinbjarnardóttir fæddist á Bjargarstöðum í Miðfirði hinn 14. september 1912. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 18. júlí síðastliðinn. Jóna ólst upp á Bjargarstöðum og stundaði nám við húsmæðraskólann á Blönduósi 1935-1936. Jóna og Ólafur hófu síðan búskap sinn á Bjargarstöðum í Miðfirði. Árin 1942-1944 bjuggu þau á Akureyri en fluttust þá í Mosfellssveit og stofnuðu ásamt fleirum nýbýlið Hamrafell. Þar var hún húsfreyja í nær 50 ár en stundaði ávallt ýmis störf utan heimilis. Hún tók virkan þátt í starfi Kvenfélags Lágafellssóknar og sat í sóknarnefnd um árabil. Á Hvítasunnu árið 1992 fluttust þau á Dvalarheimili aldraðra á Hlaðhömrum í Mosfellsbæ. Síðasta eina og hálfa árið dvaldist Jóna á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Útför Jónu fer fram frá Lágafellskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.
Staðir
Bjargarstaðir í Miðfirði: Akureyri 1942: Hamrafell í Mosfellssveit 1945-1992:
Réttindi
Kvsk á Blönduósi 1935-1936:
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Jóna var dóttir hjónanna Sigríðar Guðmundsdóttur, f. 25.8. 1885, d. 11.1. 1970 og Sveinbjörns Benediktssonar, f. 2.5. 1873, d. 13.7. 1941.
Systkini Jónu voru Sesselja Margrét, f. 4.5. 1906, d. 27.8. 1985, Guðmundur, f. 17.2. 1908, d. 23.8. 1981, Guðný, f. 28.7. 1909, lést í frumbernsku og Benedikt, f. 4.3. 1915, d. 29.12. 1989.
Jóna giftist hinn 15.8. 1937 Ólafi Helgasyni frá Hnausakoti í Miðfirði, f. 30.5 1909, d. 21.3. 1999. Foreldrar hans voru Helgi Jónsson, bóndi í Hnausakoti og Ólöf Jónsdóttir frá Hömrum í Þverárhlíð.
Dætur þeirra eru:
1) Sigríður Birna hjúkrunarfræðingur, f. 2.5 1941. Maki Ingimar S. Hjálmarsson læknir. Synir þeirra eru: a) Finnur líffræðingur, f. 20.6 1967. Maki Kolbrún Guðjónsdóttir. Börn þeirra eru Sigmar Jósep, Katrín Rós og Ingibjörg Sólveig. b) Ólafur læknir, f. 12.5 1970. Maki María Pálsdóttir. Sonur þeirra er Úlfur. c) Hjálmar lögreglumaður, f. 18.5 1976. Maki Elísa Hörn Ásgeirsdóttir. Dóttir þeirra er Svanhildur Sól.
2) Guðný Margrét lyfjafræðingur, f. 29.4 1953. Maki Elías Ingvarsson verkstjóri. Dætur þeirra eru Ólöf Jóna læknanemi, f. 20.8 1982, og Sigríður Birna læknanemi, f. 20.8 1982, maki Daniel Helgi Reynisson.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 27.6.2017
Tungumál
- íslenska