Jóhann Kristmundsson (1906-1953) Goðdal Ströndum

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Jóhann Kristmundsson (1906-1953) Goðdal Ströndum

Hliðstæð nafnaform

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

23.7.1906 - 28.2.1953

Saga

Jóhann Kristmundsson 23. júlí 1906 - 28. feb. 1953. Var í Goðdal, Kaldrananesssókn, Strand. 1930. Búfræðingur og bóndi í Goðdal, Kaldrananeshr., Strand. Síðast skrifstofumaður Reykjavík.

Staðir

Sunndalur á Ströndum
Goðdalur
Reykjavík

Réttindi

Búfræðingur

Starfssvið

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar; Kristmundur Jóhannsson 9. júlí 1868 - 10. júlí 1948. Bóndi í Sunndal og Goðdal, Strand. Bóndi í Goðdal, Kaldrananessókn, Strand. 1930 og kona hans; Þorbjörg Bjarnadóttir 27. sept. 1872 - 26. des. 1932. Húsfreyja í Sunndal og Goðdal. Húsfreyja í Goðdal, Kaldrananessókn, Strand. 1930.
Systkini;
1) Bjarnfríður Kristmundsdóttir
2) Rósa Guðrún Kristmundsdóttir 14. maí 1895 - 19. júní 1895. Sunndal
3) Páll Kristmundsson 15. ágúst 1896 - 4. jan. 1974. Var í Goðdal, Kaldrananessókn, Strand. 1901. Var í Goðdal, Kaldrananesssókn, Strand. 1930. Ókvæntur og barnlaus.
4) Rósa Kristmundsdóttir 25. sept. 1898 - 4. feb. 2002. Húsfreyja í Reykjarvík, Kaldrananessókn, Strand. 1930. Verka- og hannyrðakona. Var mjög virk í félagsmálum.
5) Bjarni Kristmundsson 14. apríl 1901 - 8. ágúst 1975. Smiður og daglaunamaður á Þórustöðum, Óspakseyrarsókn, Strand. 1930. Lausamaður í Innri-Fagradal, Staðarhólssókn, Dal. 1930. Heimili: Fagradalur, Saurbæ, Dal. Húsasmíðameistari í Reykjavík. Ókvæntur og barnlaus. Fd. 13.4.1911 skv. manntalinu 1930.
6) Olgeir Kristmundsson 25. jan. 1905 - 31. jan. 1905.
7) Ingibjörg Kristmundsdóttir 22. mars 1903 - 19. maí 2002. Leigjandi á Drangsnesi V, Kaldrananesssókn, Strand. 1930. Ljósmóðir og húsfreyja á Drangsnesi, Kaldrananeshr., Strand., síðar í Kópavogi. Maður hennar; Jón Guðmundsson 17. sept. 1908 - 5. sept. 1971. Sjómaður á Drangsnesi VI, Kaldrananesssókn, Strand. 1930. Sjómaður á Drangsnesi, Kaldrananeshr., Strand.
8) Anna Kristmundsdóttir 8. jan. 1908 - 29. des. 1999. Var í Goðdal, Kaldrananesssókn, Strand. 1930. Saumakona í Reykjavík.
9) Guðbjörg Kristmundsdóttir 4. sept. 1911 - 7. júní 1977. Húsfreyja á Broddanesi, Fellshr., Strand. Var í Goðdal, Kaldrananesssókn, Strand. 1930.

Kona hans 1934; Sína Vilhelmína Svanborg Ingimundardóttir 19. júlí 1913 - 12. des. 1948. Var á Svanshóli, Kaldrananesssókn, Strand. 1930. Húsfreyja í Goðdal, Kaldrananeshr., Strand. Lést í snjóflóði.
Börn þeirra;
1) Bergþór Jóhannsson 11. des. 1933 - 10. des. 2006. Líffræðingur við Náttúrufræðistofnun Íslands, kennari og fræðimaður. Ritaði Mosaflóru Íslands. Hlaut heiðursdoktorsnafnbót við raunvísindadeild Háskóla Íslands. Eiginkona Bergþórs er Dóra Jakobsdóttir, grasafræðingur, f. 29. maí 1938.
2) Haukur Jóhannsson 25. jan. 1935
3) Erla Jóhannsdóttir 29. jan. 1937 - 22. maí 2019. Húsfreyja á Djúpavogi. Síðar bús. á Egilsstöðum.
4) Svanhildur Jóhannsdóttir 25. des. 1940 - 17. des. 1948. Fórst í snjóflóði.
5) Ásdís Jóhannsdóttir 19. ágúst 1946 - 15. des. 1948 [12.12.1948]. Fórst í snjóflóði.

Almennt samhengi

Ægilegt slys varð s.l. sunnudag [12.12.1948] um hádegisbilið, en snjóskriða féll á bæinn Goðdal í Kaldranarneshreppi í Strandasýslu með þeim arleiðingum, að sex af sjö, sem. á bænum voru, fórust. Aðeins einn maður komst lífs af, bóndin á bænum, Jóhann Kristmundsson,hafði hann þá legið fjóra sólarhringa undir fönninni.

Bærinn Goðdalur stendur innarlega í samnefndum dal sem liggur norður i Trékyllisheiði úr ofanverðri Bjarnarfjarðarbyggðinni. Liggur dalurinn á milli Tungukotsfjalls að vestan og Hólsfjalli að austan og stendur bærinn undir því síðarnefnda. Hólsfjall er um 450 metra hátt þar sem, það er hæst.

Tengdar einingar

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH05335

Kennimark stofnunar

IS-HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ skráning 6.11.2022

Tungumál

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir