Jakobína Johnson (1883-1977) skáldkona Vesturheimi

Original Stafræn eining not accessible

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Jakobína Johnson (1883-1977) skáldkona Vesturheimi

Hliðstæð nafnaform

  • Jakobína Sigurbjörnsdóttir Johnson (1883-1977) skáldkona Vesturheimi

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

17.10.1883 - 8.7.1977

Saga

Jakobína Sigurbjörnsdóttir Johnson 17. okt. 1883 - 8. júlí 1977. Skáldkona. Var á Hólmavaði með foreldrum í fyrstu. Fór til Vesturheims 1889 frá Hólmavaði, Helgastaðahreppi, S-Þing. Skáldkona. Hún var húsfreyja í Winnipeg í Manitoba og Victoria á Vancouver-eyju i British Columbia í Kanada en lengst af voru þau hjónin búsett í Seattle í Washington-ríki í Bandaríkjunum eða frá 1909.

Staðir

Hólmavað
Winnipeg í Manitoba
Victoria á Vancouver-eyju i British Columbia í Kanada
Seattle í Washington-ríki í Bandaríkjunum eða frá 1909.

Réttindi

Starfssvið

Hún fluttist 5 ára til vesturheims, og bjó fyrst í Winnipeg og víðar í Manitoba, en síðar í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún lést. Hún þýddi mörg íslensk ljóð á ensku.

Lagaheimild

Skáldkona

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar; Sigurbjörn Jóhannsson 24. des. 1839 - 9. feb. 1903. Skáld, hluti ljóða hans kom út í Winnipeg 1902. Bóndi í Fótaskinni í Aðaldal 1865-81 og á Hólmavaði í Aðaldal, S-Þing. 1883-89. Var á Hólmavaði 1845, fór þaðan til Vesturheims 1889. Vinnumaður í Garði, Nessókn, S-Þing. 1860. Barn vestra með Maríu: Egill, f. 18.4.1893, var í Argyle í fyrstu en tók land hjá Sexsmith í Alberta en dó 21.11.1917. Var skáldmæltur og ritfær og seinni kona hans; María Jónsdóttir 22. okt. 1860 - 16. mars 1916. Húsfreyja á Hólmavaði, Aðaldal 1883-89. Fór til Vesturheims 1889 frá Hólmavaði, Helgastaðahreppi, S-Þing. Seinni kona Sigurbjörns. Var skáldmælt og ritfær.

Maður hennar: Ísak Jónsson Johnson 29. mars 1866 - 13. okt. 1949. Trésmiður, fór til Vesturheims 1892 frá Vopnafirði, Vopnafjarðarhreppi, N-Múl. Byggingameistari, lengst af í Seattle. King, Washington, United States

Börn þeirra;
1) Karl Johnson 1906 - 7.9.1982, Seattle, kona hans Virginia og sonur Peter
2) Ingolf Johnson 1908 - 3.6.1997. King, Washington, United States
3) Konrad Ari Johnson 22.2.1910 - 15.11.1995
4) Harald B Johnson 1911 Selkirk
5) Marie Gudrun Johnson 3.7.1913 - 31.7.1942
6) Johann Isak Johnson 24.11.1915 - 3.11.2004. Seattle. King, Washington, United States. Kona hans 3.4.1936; Ruth Saro 1918 og dóttir Susie 1937
7) Stephan John Johnson 27.3.1925, Honolulu Hawaii

Almennt samhengi

Eftir Jakobínu birtist töluvert af frumsömdu efni og þýðingum í vestur-íslenskum blöðum og tímaritum. Hún sendi frá sér ljóðabókina Kertaljós 1939 og barnaljóðabókina Sá ég svani, 1942. en heildarútgáfa ljóða hennar, Kertaljós, kom út 1955. Þá gaf hún út þýðingarsafnið Northern Lights, 1959.
Jakobina þýddi töluvert íslenskra bókmennta á ensku, s.s. leikritin Lénharð fógeta, eftir Einar H. Kvaran; Nýársnóttina, eftir Indriða Einarsson, og Galdra-Loft eftir Jóhann Sigurjónsson. Þá þýddi hún fjölda íslenskra ljóða sem m.a. birtust í safnritinu Icelandic Lyrics, Icelandic Poems and Stories, og í 20th Century Scandinavian Poetry, og Northen Lights.

Tengdar einingar

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH05255

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ skráning 5.8.2022

Tungumál

Leturgerð(ir)

Heimildir

®GPJ ættfræði 5.8.2022
Íslendingabók
mbl 24.10.2012. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1441381/
ísmus; https://www.ismus.is/einstaklingar/1002647

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir