Ingunn Anna Hermannsdóttir (1921-2010)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ingunn Anna Hermannsdóttir (1921-2010)

Parallel form(s) of name

  • Ingunn Anna Hermannsdóttir (1921-2010) frá Skútustöðum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      20.8.1921 - 4.1.2010

      History

      Ingunn Anna Hermannsdóttir, húsmóðir, fæddist á Skútustöðum í Mývatnssveit þann 20. ágúst 1921. Hún lést þann 4. janúar 2010. Ingunn Anna ólst upp á prestsetrinu á Skútustöðum í Mývatnssveit og lauk þaðan grunnmenntun. Á Skútustöðum var mjög gestkvæmt og Ingunn tók virkan þátt í heimilishaldinu ásamt foreldrum sínum og systkinum. Hún flutti til Reykjavíkur og lærði saumaskap einn vetur en tók síðan að sér ráðskonustarf í Laugaskóla veturinn 1944–´45 en þar var Hermann faðir hennar skólastjóri. Eftir það flutti hún í stuttan tíma til Akureyrar. Eftir stutta Akureyrardvöl flyst hún ásamt maka og barni til Reykjavíkur og árið 1955 flytja þau til Kópavogs þar sem þau búa óslitið til ársins 1982. Eftir það bjó hún á Kleppsvegi 26. Hún flutti á Hrafnistu árið 2002 þar sem hún lést. Ingunn vann lengst af ævinni við uppeldis- og húsmóðurstörf og vann þau af festu og alúð. Eftir að börnin urðu stálpuð sinnti hún ýmsum öðrum störfum og ber þar hæst störf í prjónaiðnaðinum og rak hún eigin prjónastofu á heimili sínu í mörg ár. Tónlist var alla tíð hennar yndi og nýtti hún flestar frístundir sínar við að hlusta á músík. Einnig vann hún um árabil á dvalarheimilinu fyrir aldraða við Dalbraut við framreiðslu. Útför Ingunnar fer fram frá Langholtskirkju í dag, föstudaginn 15. janúar, og hefst athöfnin kl. 13.

      Places

      Skútustaðir í Mývatnssveit: Reykjavík: Kópavogur 1955-1982:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Prjónakona:

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Kristín Sigurðardóttir, f. 16.6. 1889 í Pálsgerði, prestfrú á Skútustöðum, Laufási og skólastjórafrú í Laugaskóla, d. 10.11. 1973 og Hermann Hjartarson, f. 1887, d. 1950, prestur og skólastjóri frá Ytra-Álandi í Þistilfirði. Systkini hennar eru: 1) Hallur Hermannsson, skrifstofustjóri, f. 31.5. 1917, d. 1997, fyrri kona hans var Hrefna Eyjólfsdóttir, f. 1921, d. 2002. Seinni kona var Sigurveig Halldórsdóttir, f. 1922, d. 2003. 2) Ingibjörg Hermannsdóttir Dinusson, húsmóðir, f. 22.7. 1918, maki William E. Dinusson, f. 1920, d. 2001. 3) Jóhanna S. Hermannsdóttir, f. 30.5. 1923. 4) Álfhildur Hermannsdóttir, f. 26.5. 1925, d. 6.9. 1934. 5) Þórhallur H. Hermannsson, viðskiptafræðingur, f. 12.11. 1927, maki Sigríður Pálsdóttir, f. 21.2. 1930, d. 24.5. 2007.
      Maki Ingunnar var Jónas Pálsson, fyrrverandi rektor KHÍ, f. 26.11. 1922 í Beingarði í Hegranesi, Skagafirði, þau skildu. Foreldrar Jónasar eru Páll Björnsson, f. 1881, d. 1965 og Guðný Jónasdóttir, f. 1897, d. 1997.
      Ingunn Anna og Jónas eignuðust saman 5 börn. Þau eru:
      1) Björn Jónasson, verslunarmaður, f. 20.5. 1946. Ættleiddur, faðir hans er Sigurður Pálsson, f. 1922. Maki Guðrún Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari, f. 1943, d. 2006, þau skildu. Börn þeirra eru Jónas Páll og Bryndís.
      2) Hermann Páll Jónasson, f. 18.11. 1951.
      3) Finnbogi Jónasson, verkamaður, f. 20.1. 1953.
      4) Gunnar Börkur Jónasson, kennari, f. 17.10. 1955, maki Ingibjörg Dóra Hansen, innanhússarkitekt, f. 23.1. 1955. Börn þeirra eru Hera, Halla og Kári.
      5) Kristín Jónasdóttir, skrifstofustjóri, f. 7.2. 1958, maki Ragnar H. Björnsson, rafeindavirki, f. 7.3. 1958, þau skildu. Börn þeirra eru Ingunn Anna og Guðný Ragna.
      Ingunn Anna eignaðist fjögur langömmubörn.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Hallur Hermannsson (1917-1997) Skútustöðum (31.5.1917 - 20.6.1997)

      Identifier of related entity

      HAH04761

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Hallur Hermannsson (1917-1997) Skútustöðum is the sibling of Ingunn Anna Hermannsdóttir (1921-2010)

      Dates of relationship

      20.8.1921

      Description of relationship

      Related entity

      Kristín Sigurðardóttir (1889-1973) Skútustöðum (16.6.1889 - 10.11.1973)

      Identifier of related entity

      HAH09196

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Kristín Sigurðardóttir (1889-1973) Skútustöðum is the parent of Ingunn Anna Hermannsdóttir (1921-2010)

      Dates of relationship

      20.8.1921

      Description of relationship

      Related entity

      Hermann Hjartarson (1887-1950) prestur (21.3.1887 - 12.9.1950)

      Identifier of related entity

      HAH05083

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Hermann Hjartarson (1887-1950) prestur is the parent of Ingunn Anna Hermannsdóttir (1921-2010)

      Dates of relationship

      22.7.1918

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01520

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 24.6.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes