Húsbyggingar

Taxonomy

Code

Scope note(s)

Source note(s)

Display note(s)

Hierarchical terms

Húsbyggingar

Equivalent terms

Húsbyggingar

Associated terms

Húsbyggingar

674 Archival description results for Húsbyggingar

Only results directly related

Bifreiðastöð Akureyrar

Bifreiðastöð Akureyrar (eða B.S.A.) var umsvifamikið fyrirtæki á Akureyri á fyrri hluta 20. aldar. Bifreiðastöð Akureyrar sá um áætlunarferðir til Reykjavíkur og víða um austur- og norðurland, rak leigubíla, vörubíla og bílaverkstæði - það stærsta utan Reykjavíkur - og einnig yfirbyggingarverkstæði, þar sem smíðað var yfir rútur. Fyrirtækið hóf starsemi sina í Bíó-kjallaranum við Ráðhústorgið.

Bifreiðastöð Akureyrar var stofnuð laugardaginn 2. júní 1923. Stofnandi þess var Kristján Kristjánsson frá Birningsstöðum, oft nefndur: Kristján Birning. Ökumenn ásamt honum fyrsta árið voru þeir: Ebenharð Jónsson og Jón Jósepsson, sem seinna vann á sprautuverkstæði hjá Kristjáni. Hann var bróðir Jóhannesar glímukappa á Hótel Borg.

Árið 1926 var Bifreiðastöð Akureyrar komin með tvo vörubíla, en þá var hafið að byggja Kristneshæli og voru bílarnir notaðir við þá byggingarvinnu. Kristján hóf síðan áætlunarferðir til Reykjavíkur án þess að komið væri á eiginlegt vegasamband milli héraða eða landshluta. Kom sér þá vel að fyrstu bílarnir voru yfirleitt léttir. Hann fór fyrstu ferð sína suður á land árið 1929. Þá var ekki enn orðið bílfært alla leið til Reykjavíkur, svo hann og farþegar hans tóku sér fari með báti frá Borgarnesi. Kristján hélt líka í austur með tíð og tíma og hóf áætlunarferðir til Húsavíkur og Kópaskers og staða á Austurlandi.

Ferð á Þingvöll á Alþingishátíðina 1930 varð kveikjan að því að Kristján hóf áætlunarferðir suður á Hvalfjarðarströnd vorið 1931. Farþegar voru ferjaðir yfir fjörðinn, en þar biðu bílar frá Steindóri Einarssyni eftir þeim og fluttu þá til Reykjavíkur.

Árið 1946 stofnaði Kristján fyrirtækið Bílasöluna h.f. ásamt Ólafi Benediktssyni og á næstu árum dró hann úr bílaútgerð. Áður hafði hann hætt með vörubíla ,en Kea keypti yfirbyggingaverkstæðið og rak það næstu árin.

Results 1 to 100 of 674