Hulda Friðfinnsdóttir (1910-2002) Friðfinnshúsi Blönduósi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Hulda Friðfinnsdóttir (1910-2002) Friðfinnshúsi Blönduósi

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        11.8.1910 - 30.6.2002

        History

        Hulda Friðfinnsdóttir var fædd á Blönduósi 11. ágúst 1910. Hún lést 30. júní síðastliðinn. Hulda ólst upp í foreldrahúsum á Blönduósi, en fluttist til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum árið 1947. Auk almennrar skólagöngu á Blönduósi var hún veturinn 1929-30 á Héraðsskóla á Laugarvatni. Hulda vann ýmis störf, ekki síst á heimilinu, með og fyrir foreldra sína og fjölskyldu. Á Blönduósi bjó fjölskyldan í Finnshúsi, en þar voru einnig í heimili hjónin Sigþrúður, móðursystir Huldu, og Páll Sigurðsson. Þá bjuggu þar einnig um skeið, eða þar til Hulda var um sjö ára gömul, feðginin Jónína, móðursystir Huldu, og Hannes Guðmundsson.

        Á Blönduósi vann Hulda m.a. við smíðar og málningarvinnu með föður sínum og systur. Er til Reykjavíkur kom tóku við almenn verkakvennastörf. Áfram vann Hulda mikið á heimilinu, bæði við prjónaskap, en ekki síður við almennt heimilishald. Hún annaðist foreldra sína, en þau urðu bæði fullorðin og þurftu aðstoðar við. Hulda hélt lengi heimili með Sigríði systur sinni og dætrum hennar, og var þeim sem önnur móðir. Þær bjuggu lengi á Gunnarsbraut 34, en síðustu árin dvaldi Hulda á Hrafnistu í Reykjavík. Hún var ógift og barnlaus.

        Útför Huldu fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.

        Places

        Friðfinnshús Blönduósi: Reykjavík:

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hennar voru Friðfinnur Jónas Jónsson, hreppstjóri, f. 28. mars 1873, d. 16. september 1955, og Þórunn Ingibjörg Hannesdóttir, f. 15. ágúst 1873, d. 22. janúar 1957.
        Systkini Huldu eru: 1) Gunnhildur, f. 28. mars 1906, d. 4. ágúst 1954, maki Stefán Runólfsson, f. 22. ágúst 1903, d. 30. apríl 1961, þau voru barnlaus. 2) Sigríður, f. 24. desember 1907, d. 26. janúar 1992, maki (skildu) Magnús Óskar Magnússon, f. 10. september 1904, d. 23. júlí 1988, dætur þeirra eru; Þórunn, maki Jóhann Þ. Bjarnason og eiga þau þrjú börn, auk tveggja barnabarna, og Ásdís, en hún á einn son. 3) Skafti, f. 9 september 1916, maki Sigríður Svava Runólfdóttir, f. 5. júlí 1920, börn þeirra eru: Runólfur, Þórunn, maki Jónas Pálsson, Inga, maki Birgir V. Sigurðsson, Gunnhildur, maki Guðmundur Magnússon, Friðfinnur, maki Sigríður Ingibjörnsdóttir, Einar, maki Lydía Jónsdóttir, og Páll, maki Hrund Þórarinsdóttir, en alls eiga þau 12 barnabörn.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Friðfinnshús Blönduósi / Læknahús 1897-1901 (1896 -)

        Identifier of related entity

        HAH00100

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1910

        Description of relationship

        Fædd þar

        Related entity

        Skafti Friðfinns Friðfinnsson (1916-2007) Friðfinnshúsi (9.9.1916 - 29.5.2007)

        Identifier of related entity

        HAH01994

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Skafti Friðfinns Friðfinnsson (1916-2007) Friðfinnshúsi is the sibling of Hulda Friðfinnsdóttir (1910-2002) Friðfinnshúsi Blönduósi

        Dates of relationship

        9.9.1916

        Description of relationship

        Related entity

        Sigríður Friðfinnsdóttir (1907-1992) Friðfinnshúsi (24.12.1907 - 26.1.1992)

        Identifier of related entity

        HAH06962

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Sigríður Friðfinnsdóttir (1907-1992) Friðfinnshúsi is the sibling of Hulda Friðfinnsdóttir (1910-2002) Friðfinnshúsi Blönduósi

        Dates of relationship

        11.8.1910

        Description of relationship

        Related entity

        Gunnhildur Friðfinnsdóttir (1906-1954) Friðfinnshúsi (28.3.1906 - 4.8.1954)

        Identifier of related entity

        HAH04549

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Gunnhildur Friðfinnsdóttir (1906-1954) Friðfinnshúsi is the sibling of Hulda Friðfinnsdóttir (1910-2002) Friðfinnshúsi Blönduósi

        Dates of relationship

        11.8.1910

        Description of relationship

        Related entity

        Þórunn Hannesdóttir (1873-1957) Friðfinnshúsi (15.8.1873 - 2.1.1957)

        Identifier of related entity

        HAH07380

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Þórunn Hannesdóttir (1873-1957) Friðfinnshúsi is the parent of Hulda Friðfinnsdóttir (1910-2002) Friðfinnshúsi Blönduósi

        Dates of relationship

        11.8.1910

        Description of relationship

        Related entity

        Friðfinnur Jónas Jónsson (1873-1955) Hreppstjóri og smiður Friðfinnshúsi (28.3.1873 - 16.6.1955)

        Identifier of related entity

        HAH03444

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Friðfinnur Jónas Jónsson (1873-1955) Hreppstjóri og smiður Friðfinnshúsi is the parent of Hulda Friðfinnsdóttir (1910-2002) Friðfinnshúsi Blönduósi

        Dates of relationship

        11.8.1910

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH01461

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 21.6.2017

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes