Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Hólmfríður Jónsdóttir (1915-2002) Úlfsstöðum
Hliðstæð nafnaform
- Hólmfríður Jónsdóttir (1915-2002) Úlfsstöðum
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
3.4.1915 - 16.5.2002
Saga
Hólmfríður Jónsdóttir fæddist á Vatni á Höfðaströnd í Skagafirði 3. apríl 1915. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 16. maí síðastliðinn. Jón, faðir Hólmfríðar, andaðist frá fjórum ungum börnum 1926, en þá voru þau hjón flutt að Víðivöllum í Blönduhlíð í Skagafirði. Árið 1933 giftist Amalía móðir Hólmfríðar Gunnari Valdimarssyni, f. 16. júní 1900, d. 18. okt. 1989, og fluttist Hólmfríður með þeim hjónum á Víðimýri í Skagafirði 1934. Hún stundaði nám í Kvennaskólanum á Blönduósi. Árið 1939 giftist hún Sigurði og fluttist að Úlfsstöðum í Blönduhlíð og bjuggu þau hjón þar og stunduðu búskap til 1972, að þau brugðu búi og fluttu til Sauðárkróks. Eftir að hún flutti til Sauðárkróks starfaði hún allmörg ár í eldhúsinu á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki.
Útför Hólmfríðar verður gerð frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.
Staðir
Vatn á Höfðaströnd: Víðivellir í Blönduhlíð: Víðimýri Skagafirði 1934: Úlfsstaðir 1939: Sauðárkrókur:
Réttindi
Kvsk Blönduósi:
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru Jón Kristbergur Árnason bóndi á Vatni, f. 2. sept. 1885, d. 6. mars 1926, og kona hans Amalía Sigurðardóttir, f. 25. maí 1890, d. 14. júní 1967.
Systkini Hólmfríðar voru Sigrún, f. 6. mars 1911, d. 22. mars 1986, Árni, f. 21. apríl 1913, d. 10. okt. 1972, og Gísli, f. 21. nóv. 1917, d. 11. janúar 1989. Hálfsystir Hólmfríðar er Sigurlaug Guðrún Gunnarsdóttir, f. 9. okt. 1933.
Hólmfríður giftist 11. júní 1939 Sigurði Jóhannssyni frá Úlfsstöðum í Blönduhlíð í Skagafirði, f. 11. júní 1916, d. 28. febrúar 2002. Foreldrar hans voru Jóhann Sigurðsson, f. 5. júní 1883, d. 14. mars 1970, og Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, f. 25. des. 1885, d. 3. mars 1975.
Börn Sigurðar og Hólmfríðar eru:
1) Jóhann Úlfar, f. 30. des. 1939, maki Elaine Sigurdson, þau eru búsett í Winnipeg í Kanada, börn þeirra eru Eric Jón, f. 9. nóv. 1967, maki Lara Sigurðsson, þau eiga tvö börn; og Kristine Margrét, f. 17. sept. 1970, maki Gerald Diamond, þau eiga tvö börn.
2) Amalía, f. 20. júlí 1945, maki Sigmundur Guðmundsson, synir þeirra eru Sigurður Úlfar f. 5. maí 1967, Brynjar Örn, f. 19. mars 1974, sambýliskona Þorgerður Tómasdóttir, f. 7. okt. 1978, og Hólmar Logi f. 19. des. 1976.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the associate of
Hólmfríður Jónsdóttir (1915-2002) Úlfsstöðum
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 21.6.2017
Tungumál
- íslenska