Hólmfríður Einarsdóttir (1925-2002) ljósmóðir

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Hólmfríður Einarsdóttir (1925-2002) ljósmóðir

Parallel form(s) of name

  • Hólmfríður Einarsdóttir ljósmóðir

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      19.5.1925 - 6.3.2002

      History

      Hólmfríður Einarsdóttir fæddist í Varmahlíð undir Eyjafjöllum 19. maí 1925.
      Hún lést á Sóltúni 6. mars síðastliðinn. Hólmfríður vann á unglingsárum öll almenn störf sem tilheyrðu sveitabúskapnum. Árið 1946-1947 var hún við nám í Húsmæðraskólanum á Varmalandi.
      Hólmfríður bjó síðustu árin í íbúð sinni á Sléttuvegi 13 í Reykjavík.
      Útför Hólmfríðar fór fram frá Bústaðakirkju 15.3.2002 og hófst athöfnin klukkan 13.30.

      Places

      Varmahlíð undir Eyjafjöllum Rang.: Sunnuhvoll Blönduósi 1960: Selfoss 1960-1962: NLFÍ Hveragerði 1965-1997: Reykjavík:

      Legal status

      Húsmæðraskólinn á Varmalandi 1946-1947: Hólmfríður lauk ljósmæðraprófi frá Ljósmæðraskóla Íslands 1953:

      Functions, occupations and activities

      Sumarið 1951 var hún kokkur á síldarbát suður með sjó. Hólmfríður lauk ljósmæðraprófi frá Ljósmæðraskóla Íslands 1953 og vann sem ljósmóðir við Sjúkrahúsið á Blönduósi og starfaði þar sem héraðsljósmóðir til 1960, jafnframt sinnti hún hjúkrunarstörfum á skurðstofu sjúkrahússins í forföllum. 1960-1962 var ljósmóðir á Sjúkrahúsi Selfoss. Árið 1965 réðst hún til Heilsustofnunar Náttúrlækningafélags Íslands í Hveragerði og starfaði þar við hjúkrunarstörf til ársins 1997. Hólmfríður bjó síðustu árin í íbúð sinni á Sléttuvegi 13 í Reykjavík.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru hjónin Einar Sigurðsson bóndi í Varmahlíð, f. 4. apríl 1894, d. 19. júlí 1981 og Ingibjörg Bjarnadóttir, f. 17. febrúar 1895, d. 25. maí 1980.

      Systkini Hólmfríðar eru:
      1) Þóra Dóra Einarsdóttir f. 3. desember 1918 - 25.1.2013. Var í Varmahlíð, Ásólfsskálasókn, Rang. 1930. Starfaði við póst- og símaþjónustu í Varmahlíð undir Eyjafjöllum og síðar í Reykjavík.
      2) Bjarni Einarsson f. 3. mars 1923, d. 28. júní 1990. Bifreiðastjóri í Reykjavík. Var í Varmahlíð, Ásólfsskálasókn, Rang. 1930. Síðast bús. í Kópavogi.
      3) Sigríður Bjarney Einarsdóttir f. 7. júní 1927. Var í Varmahlíð, Ásólfsskálasókn, Rang. 1930.
      4) Einar Ingi Einarsson f. 15. desember 1931, d. 27. júní 1996. Bóndi í Varmahlíð undir Eyjafjöllum. Síðast bús. í Vestur-Eyjafjallahreppi.
      5) Guðný Svana Einarsdóttir f. 31. október 1934.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Sunnuhvoll Blönduósi (1907 -)

      Identifier of related entity

      HAH00133

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1960

      Description of relationship

      leigjandi þar 1960-1962

      Related entity

      Héraðshæli Austur Húnvetninga Blönduósi (1955-) (31.12.1955)

      Identifier of related entity

      HAH10014

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1960

      Description of relationship

      Ljósmóðir þar 1960 - 1962

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01448

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 20.6.2017, breytt 6.7.2019 GPJ

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes