Helga Baldvinsdóttir Freeman (1859-1941) frá Litlu Ásgeirsá

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Helga Baldvinsdóttir Freeman (1859-1941) frá Litlu Ásgeirsá

Parallel form(s) of name

  • Helga Steinvör Baldvinsdóttir Freeman (1859-1941) frá Litlu Ásgeirsá

  • Helga S Freeman (1859-1941) Ontario

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Undína

      Description area

      Dates of existence

      3.12.1858 - 23.10.1941

      History

      Helga Steinvör Baldvinsdóttir (Helga S. Freeman) 3. des. 1858 - 23. okt. 1941. Fór til Vesturheims 1873 frá Gröf, Kirkjuhvammshreppi, Hún. Skáldkona í Vesturheimi og skrifaði undir nafninu „Undína“. Jarðsett; Deer Island, Columbia, Oregon, United States of America

      Places

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Mandates/sources of authority

      Trausta fleyið flytja má
      fölva mey á bárum,
      kaldri eyju ísa frá
      út í reginhafið blá.

      Nú í báru á söltum sjá
      sólin klára hnígur,
      líkt og tárið ljúfa má,
      er líður sárum augum frá.

      Hverfur tindur, hverfur bær,
      hverfur í skyndi dalur,
      hverfur lindin kristaltær,
      hverfur yndi fjær og nær.

      Kveð ég sprund og korðaver,
      kveð ég lundinn blóma;
      kveð ég grund, sem kærst er mér,
      kveð ég stund, sem farin er.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar; Baldvin Helgason 15. sept. 1826 - 24. feb. 1905. Var á Skútustöðum, Skútustaðasókn, Þing. 1835. Var hjá foreldrum þar til um 1844. Vinnumaður í Mývatnssveit 1845-47. Fór til Reykjavíkur 1847 „að læra handverk“ segir í Þingeyingaskrá. Við bú á Skútustöðum 1849-51. Flutti þaðan vestur í Húnavatnssýslu 1851. Fór til Vesturheims 1873 frá Gröf, Kirkjuhvammshreppi, Hún. Bjó í Ontario í fyrstu en síðan í Norður-Dakota og kona hans 13.5.1849; Soffía Jósafatsdóttir 9. sept. 1831 - 23. okt. 1902. Var á Stóru-Ásgeirsá, Víðidalstungusókn, Hún. 1845. Fór til Vesturheims 1873 frá Gröf, Kirkjuhvammshreppi, Hún. Ranglega nefnd Soffía Jónatansdóttir á einum stað í Vesturf. Þing.

      Systkini;
      1) Ásgeir Vídalín Baldvinsson (Ásgeir V. H. Baldwin) 9. des. 1850 - 20. sept. 1947. Fór til Vesturheims 1873 frá Gröf, Kirkjuhvammshreppi, Hún. Bóndi og póstmeistari í Rosseau í Ontario, síðar bús. í Edmonton í Alberta og loks í Campbell River í BC, Kanada.
      2) Friðrika Soffía Baldvinsdóttir 1. jan. 1853 - 1946. Fór til Vesturheims 1873 frá Gröf, Kirkjuhvammshreppi, Hún.
      3) Jósefína Hólmfríður Baldvinsdóttir 3. okt. 1857 - 1887. Fór til Vesturheims 1873 frá Gröf, Kirkjuhvammshreppi, Hún.
      4) Oddný Júlíana Baldvinsdóttir 1.7.1860 [1859] - 6.6.1865. Var á Litlu-Ásgeirsá, Víðidalstungusókn, Hún. 1860.
      5) Jósafat Helgi Baldvinsdóttir 5. júlí 1866 - 5. sept. 1937. Fór til Vesturheims 1873 frá Gröf, Kirkjuhvammshreppi, Hún. Barnlaus.
      6) Baldvin Tryggvi Baldvinsson 2. des. 1867 - 1951. Fór til Vesturheims 1873 frá Gröf, Kirkjuhvammshreppi, Hún. Tvíkvæntur.
      7) Óli Pétur Baldvinsson 8.9.1873, sagður fæddur á Sporði, finnst ekki í Íslendingabók.

      Fyrri maður hennar; Jakob Líndal Jónatansson 2. sept. 1852 - 11. okt. 1904. Fór til Vesturheims 1873 frá Miðhópi, Þorkelshólshreppi, Hún. Settist að vestanhafs, rak um tíma gistihús á Garðar, hafði umboðssölu á akuryrkjuverkfærum í Milton og var ritari í efri stofu ríkisþingsins í N-Dakota. Fluttist síðar til Mountain og hafði þar fasteignasölu og var kosinn friðdómari þar. Þau skildu.
      Seinni maður hennar; Skúli Árni Stefánsson Freeman 9.2.1867 - 4.5.1904. Bóndi á Syðra-Vatni á Efribyggð, Skag. Fór þaðan til Vesturheims 1887. Bóndi í Calder, Sask., Kanada.

      Börn þeirra;
      1) Kristín Jakobsdóttir Líndal um 1884
      2) Jósefína Jakobsdóttir Líndal um1886
      3) Stefán Jakobsson Líndal um 1888 - 1915
      4) Soffía Kristín Jakobsdóttir Líndal 2.6.1890
      5) Ásgeir Jakobsson Líndal um 1892
      6) Walter Baldvin Freeman 1893

      General context

      Helga Steinvör Baldvinsdóttir, sem tók sér skáldanafnið Undína, er fædd 3. desember 1858 í Litlu-Ásgeirsá í Víðidal, Vestur-Húnavatnssýslu. Tæplega fimmtán ára að aldri fluttist hún með foreldrum sínum til Vesturheims. Hún kvaddi nauðug ættjörðina og þar var hugur hennar til æviloka. Fjölskyldan settist að í Ontario og síðar Norður-Dakota. Helga giftist ung Jakobi Jónatanssyni Líndal. Hjónabandið var erfitt vegna drykkju hans og endaði með skilnaði. Fluttist Helga þá með börn sín til föður síns í Manitoba og bjó þar um skeið. Síðar giftist hún Skúla Árna Stefánssyni Freeman og eignaðist með honum einn son. Bjuggu þau á Kyrrahafsströnd. Skúli lést af slysförum eftir fárra ára hjónaband og sonur Helgu af fyrra hjónabandi nokkrum árum síðar. Helga vann fyrir sér og börnum sínum með prjónaskap, fatasaumi og handavinnu, og varð þekkt fyrir listrænan útsaum. Síðustu ár ævi sinnar bjó hún hjá dóttur sinni í Poulsbo, Washington-fylki, og þar lést hún 23. október 1941.

      Helga dvaldist mestan hluta ævi sinnar í sveit. Hún nam þrisvar land eða tók þátt í landnámi, og bjó stundum mjög afskekkt. Hún fór snemma að fást við ljóðagerð og hélt því áfram fram undir miðjan aldur, en þá hætti hún alveg að yrkja. Ljóð eftir hana birtust í vestur-íslensku blöðunum, fyrst Heimskringlu, en síðar Öldinni og kvennatímaritinu Freyju. Hún hafði mikinn hug á að gefa út ljóðabók en skorti fé til útgáfunnar. Vinur hennar, skáldið Jóhann Magnús Bjarnason, vélritaði síðar fyrir hana ljóðin, og lágu þau í handriti hans fram til ársins 1952, en voru þá gefin út undir nafninu "Kvæði". Þá voru liðin rúm tíu ár frá láti skáldsins.

      Textinn er tekinn orðréttur frá Helgu Kress:
      ◦Helga Kress. 2001. „Undína 1858-1941“, bls. 136. Stúlka. Ljóð eftir íslenskar konur. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, Reykjavík.

      Relationships area

      Related entity

      Gröf á Vatnsnesi, Kirkjuhvammshreppur

      Identifier of related entity

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      3.12.1858

      Description of relationship

      fædd þar

      Related entity

      Jakob Líndal (1852-1904) Mountain N-Dakota, frá Miðhópi (2.9.1852 - 11.10.1904)

      Identifier of related entity

      HAH05228

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jakob Líndal (1852-1904) Mountain N-Dakota, frá Miðhópi is the spouse of Helga Baldvinsdóttir Freeman (1859-1941) frá Litlu Ásgeirsá

      Dates of relationship

      Description of relationship

      þau skildu

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH09217

      Institution identifier

      IS-HAH

      Rules and/or conventions used

      Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ skráning 26.1.2023

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði 26.1.2023
        Íslendingabók
        ◦Helga Kress. 2001. „Undína 1858-1941“, bls. 136. Stúlka. Ljóð eftir íslenskar konur. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, Reykjavík.

        Maintenance notes