Heggstaðanes

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Heggstaðanes

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        (874)

        History

        Landamerki jarðarinnar Heggsstaða í Melstaðarsókn og Ytri Torfalækjahreppi.

        Milli Útibleiksstaða og tjeðra jarða liggja merkin úr fremstu flöguodda á svokölluðum Landamerkjaranga beina sjónhendingu, norðanve3rt í bölum, í flatan stein á Lyngás, norðanverðan Árnaþúfu, á hvern að eru klappaðir stafirnir L.M, og svo áfram allt upp á tanga, sem gengur norður í Þorgeirsvatn. Beri hval eða anna reka að landi, á flögu þá er merkin liggja um, skal hann tilheyra báðum jörðunum, sinn helminginn hvorri. Milli Bálkastaða og tjeðrar jarðar liggja merkin úr áðurnefndum Þorgeirsvatnstanga beina sjónhending í norður um þúfu, sem stendur suðvestan á Heggsstaðaheiði, og þá beint áfram um slakka, er liggur frá norðri til suðurs vestanvert við háheiðina, og er þar settur marksteinn með stöfunum L.M., og svo í stein, merktan L.M., sem stendur austanvert í miðri vík, sem er sú næsta fyrir austan Hvítabjarnargjá. Flaga gengur í sjó fram undan steininum, beri hval eða annan reka á þá flögu, skal hann til helminga skiptast milli jarðanna. Tólf vætta ítak í tvítugum hval og stærri telur fjárráðari Gilsbakkakirkju í Hvítársíðu hana eiga í hvalreka á Heggsstöðum.

        Heggsstöðum, 20. maí 1889.
        P.Leví, eigandi jarðarinnar Heggstaða
        Jón Skúlason, eigandi Útibleiksstaða.
        Jóhann Zakariasson eigandi ½ Bálkastaða
        Þorvaldur Bjarnason, prestur að Mel, umráðandi ½ Bálkastaða.

        Places

        Melstaðarsókn; Ytri-Torfalækjahreppur; Útibleiksstaðir; Lyngás; Árnaþúfa; Þorgeirsvatn; Bálkastaðir; Þorgeirsvatnstangi; Heggsstaðaheiði; Hvítabjarnargjá; Gilsbakkakirkja í Hvítársíðu.

        Legal status

        Heggstaðanes eða Bálkastaðanes kallast nesið milli Hrútafjarðar og Miðfjarðar. Er það framhald af Hrútafjarðarhálsi með áþekku landslagi en láglendara. Þar er mýrlent með melholtum á milli. Hæst er nesið utanvert, milli bæjanna Heggstaða (að austanverðu) og Bálkastaða (að vestanverðu), 184 metrar yfir sjávarmáli. Kallast landið þar Heggstaðaheiði.

        Sauðfjárrækt er mikil á nesinu; er það grösugt og mikil sauðalönd. Þar fóru fyrstu fjárskipti á Íslandi fram árið 1937 og var fé tekið á ný úr Norður-Þingeyjarsýslu. Þá er þar æðardúntekja - mest á Heggstöðum en einnig á Bálkastöðum og Bessastöðum. Yfir Heggstaðanesháls liggur malarvegur fær öllum fólksbílum en hann var mikið betrumbættur haustið 2006. Var þetta aðalvegurinn á nesinu lengst af þar sem fólk á nesinu hafði lítið að sækja fram í Hrútafjörð. Heggstaðanes tilheyrði Ytri-Torfustaðahreppi fram til ársins 1998 en er síðan hluti af Húnaþingi vestra. Kirkjusókn er að Melstað. Fjórir bæir eru á nesinu: Bessastaðir og Bálkastaðir að vestanverðu og Útibleiksstaðir og Heggstaðir að austanverðu. Útibleiksstaðir eru í eyði.

        Frá botni Miðfjarðar út á Heggstaðanestá eru 13,6 kílómetrar beina sjóleið en frá botni Hrútafjarðar eru 34,7 kílómetrar beina sjóleið, þar af 20,3 kílómetrar frá Heggstaðanestá að Reykjarifi í Hrútafirði.

        Á Heggstaðanesi er fjölskrúðugt fuglalíf og finnst mörgum skemmtilegt að ganga fyrir nesið frá Heggstöðum til Bálkastaða, eða öfugt. Þar má sjá fugla eins og hrafn, æðarfugl, fýl og kríu, að ógleymdum haferni ásamt ýmsum smáfuglum.

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Bæir á Heggstaðanesi;
        Heggsstaðir
        Bálkastaðir
        Bessastaðir
        Útibleiksstaðir (fóru í eyði 1972 eftir að nýbyggt íbúðarhúsið brann)
        Sandar
        Mýrar
        Barð

        Internal structures/genealogy

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Seltangabúð á Heggstaðanesi ((1900))

        Identifier of related entity

        HAH00595

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        um1900

        Description of relationship

        Related entity

        Bessastaðir á Heggstaðanesi ((1300))

        Identifier of related entity

        HAH00818

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Bálkastaðir í Miðfirði (um900)

        Identifier of related entity

        HAH00811

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Bálkastaðir í Miðfirði is the associate of Heggstaðanes

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Sandar í Miðfirði ((900))

        Identifier of related entity

        HAH00812

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Sandar í Miðfirði is the associate of Heggstaðanes

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Útibleiksstaðir Ytri-Torfustaðahreppi V-Hvs ((1780))

        Identifier of related entity

        HAH00931

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Útibleiksstaðir Ytri-Torfustaðahreppi V-Hvs is the associate of Heggstaðanes

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00577

        Institution identifier

        IS HAH-Nat

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 18.2.2019

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          Guðmundur Paul
          Landamerkjabók Húnavatnssýslu, No. 108, fol. 57. Lesið upp á manntalsþingi að Svarðbæli, hinn 4. júní 1889, https://is.wikipedia.org/wiki/Heggsta%C3%B0anes

          Maintenance notes