Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum

Parallel form(s) of name

  • Hallgrímur Mýrmann Einarsson (1920-1998)

  • Hallgrímur Mýrmann Einarsson

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      8.7.1920 - 3.4.1998

      History

      Hallgrímur Mýrmann Einarsson var fjórða og yngsta barn Einars Guðmundssonar og Guðrúnar Margrétar Hallgrímsdóttur, búandi hjóna á Neðri-Mýrum í Engihlíðarhreppi á fyrstu áratugum aldarinnar. Að honum stóðu húnvetnskar og austfirskar ættir í bland við ættstofna af Suðurnesjum.
      Ævidaga sína átti hann alla á Neðri-Mýrum og kvæntist ei né átti börn. Hann var með hæstu mönnum, 195 sm á hæð og bar sig vel á velli. Snemma kom fram glöggskyggni hans á búfé og lagni að fara vel með hesta.

      Hann varð að vera nokkuð á sjúkrahúsum og var síðast á annan mánuð, fyrst á Héraðshælinu á Blönduósi og síðan á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og andaðist nyrðra. Útför Hallgríms var gerð frá Höskuldsstaðakirkju 11. apríl 1998

      Places

      Neðri-Mýrar:

      Legal status

      Hallgrímur naut nokkurrar skólagöngu í farskóla Engihlíðarhrepps en var að öðru leyti vel menntaður úr skóla lífsins.

      Functions, occupations and activities

      Um átta ára aldur fór hann með hest fyrir kerru (var kúskur) í vegagerð nærri heimili sínu. Samsumars hóf hann að standa við slátt með orfi og ljá. Með aldri gerðist hann slyngur sláttumaður, með þeim bestu þegar vinnufærni hans var sterkust. Öll búskaparstörf léku í höndum hans. Þegar störf með hestum við jarðyrkju, heyöflun eða hvað annað, sem um var að ræða, náði Hallgrímur frábærum afköstum.

      Hallgrímur var gangnaforingi á Langadalsfjalli í um tvo áratugi og fórst það vel enda ávallt vel ríðandi, hestamaður af Guðs náð. Fjölmarga fola vandi hann við taum og til reiðar og einnig til vinnu fyrir plóg, herfi eða sláttuvél og heysleða. Fjármaður var hann einnig glöggur og gætinn, hélt nær 200 kinda hjörð til beitar á vetrardegi að fornum hætti. Lítt gaf Hallgrímur sig að vélum og vélvæðingu en hélt sig við hand og hestunnin störf.

      Bóndi á Neðri-Mýrum gerðist hann 1956 og var það fjóra áratugi. Um tvítugt amaði honum mjög bakbilun og aftur um fertugt. Það tók sinn tíma að yfirvinna þau áföll. Síðasta hálfa áratuginn háði honum mjög brjóstbilun og andnauð. Þá sýndi hann færni sína í innanhússstörfum, einkum eftir heilsuáfall Unnar, systur hans.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans; Einar Guðmundsson 12. febrúar 1875 - 16. janúar 1934 Bóndi og organisti á Neðri-Mýrum og kona hans 19.11.1906; Guðrún Margrét Hallgrímsdóttir 15. október 1885 - 14. september 1956 Húsfreyja á Neðri-Mýrum, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja á Neðri-Mýrum.
      Systkini hans;
      1) Guðmundur Mýrmann Einarsson 24. júní 1907 - 14. september 1976 Bóndi á Neðri-Mýrum. Var á Neðri-Mýrum, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930.
      2) Guðrún Einarsdóttir 28. febrúar 1909 - 28. desember 1986 Var á Neðri-Mýrum, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja í Vestmannaeyjum.
      3) Unnur Einarsdóttir 6. maí 1911 - 8. júní 1998 Vinnukona á sjúkrahúsinu á Blönduósi 1930. Var á Neðri Mýrum, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Guðmundur Einarsson (1907-1976) Neðri-Mýrum (24.6.1907 - 14.9.1976)

      Identifier of related entity

      HAH04103

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Einarsson (1907-1976) Neðri-Mýrum is the sibling of Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum

      Dates of relationship

      8.7.1920

      Description of relationship

      Related entity

      Unnur Einarsdóttir (1911-1998) Neðri-Mýrum (6.5.1911 -8.6.1998)

      Identifier of related entity

      HAH02095

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Unnur Einarsdóttir (1911-1998) Neðri-Mýrum is the sibling of Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum

      Dates of relationship

      8.7.1920

      Description of relationship

      Related entity

      Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum (28.2.1909 - 28.12.1986)

      Identifier of related entity

      HAH01312

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum is the sibling of Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum

      Dates of relationship

      8.7.1920

      Description of relationship

      Related entity

      Neðri-Mýrar í Refasveit ((1920))

      Identifier of related entity

      HAH00206

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Neðri-Mýrar í Refasveit is controlled by Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum

      Dates of relationship

      8.7.1920

      Description of relationship

      Fæddist þar og bjó þar alla ævi

      Related entity

      Guðrún Hallgrímsdóttir (1885-1956) Neðri-Mýrum (15.10.1885 - 14.9.1956)

      Identifier of related entity

      HAH04402

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Hallgrímsdóttir (1885-1956) Neðri-Mýrum is the parent of Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum

      Dates of relationship

      8.7.1920

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH04751

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 14.7.2019

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði.
        Húnavaka, 1. tölublað (01.05.1999), Blaðsíða 161. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=6359452

        Maintenance notes