Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

Parallel form(s) of name

  • Guðrún Einarsdóttir frá Neðri Mýrum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      28.2.1909 - 28.12.1986

      History

      Guðrún Einarsdóttir Vestmannaeyjum Fædd 28. febrúar 1909. Dáin 28. desember 1986 Norður í Húnavatnssýslu, austan Blöndu, liggur blómlegt hérað, Engihlíðarhreppur. Í þeirri sveit, á bænum Neðri-Mýrum, fæddist Guðrún Einarsdóttir, hinn 28. febrúar árið 1909. Hún lést í sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum 28. desember sl., eftir stranga sjúkdómslegu.
      Foreldrar hennar voru þau Einar Guðmundsson, bóndi á Neðri-Mýrum, og kona hans, Guðrún Margrét Hallgrímsdóttir. Þar ólst amma upp næstelst fjögurra systkina. Af þeim systkinum er nú auk hennar eldri bróðirinn, Guðmundur, látinn en hin tvö yngri, Unnur og Hallgrímur, lifa. Þau búa bæði á æskuslóðunum á Neðri-Mýrum.
      Blönduós er skammt frá NeðriMýrum og í kvennaskólanum þar stundaði hún gagnfræðanám. Leið hennar lá síðan til Reykjavíkur er hún var átján ára að aldri. Fyrstu árin sem hún starfaði þar hafði hún þann hátt á að fara norður á sumrin og koma aftur að hausti til starfa í Reykjavík. Eftir að hún hóf nám og síðan fullt starf við saumaskap hjá Andrési klæðskera varð aðstaða til norðurferða erfiðari. Síðustu ár sín í Reykjavík annaðist hún heimili fröken Ingibjargar H. Bjarnason, skólastýru Kvennaskólans í Reykjavík. Sú dvöl varð henni lærdómsrík og ánægjuleg og hún minntist frk. Ingibjargar jafnan með miklum hlýhug.

      Kaflaskipti urðu í lífi hennar árið 1935. Það sumar lá leið hennar til Vestmannaeyja. Þar hitti hún afa, Jóhannes Gíslason frá Eyjahólum við Hásteinsveg í Vestmannaeyjum, og örlög þeirra voru ráðin. Brúðkaup þeirra fór fram 30. ágúst ári síðar, 1936.

      Ég heyrði hana sjaldan hafa orð á því, en sjálfsagt hafa viðbrigðin verið mikil að flytjast úr sveitum Húnavatnssýslu til Vestmannaeyja, þar sem aðstæður allar eru gjörólíkar. Allur þeirra búskapur eftir þetta var í Vestmannaeyjum, ef gostímabilið er frátalið. Dvölin í Reykjavík varð þó ekki lengri en brýnasta nauðsyn krafði. Út í Eyjar voru þau komin aftur í byrjun árs 1974. Hjónabandið var farsælt og samheldnin mikil. Gullbrúðkaup þeirra var orðin staðreynd hinn 30. ágúst á sl. sumri.

      Á þeim árum, sem ég man fyrst eftir mér, bjuggu amma og afi enn á Kanastöðum við Hásteinsveg, þarsem búskapur þeirra hófst. Vegalengdir milli húsa í Vestmannaeyjum voru þá ekki eins langar og síðar varð. Það var ekki lengi gengið frá Kirkjubæjarbraut að Kanastöðum. Seinna, eða árið 1963, fluttu þau á Brimhólabraut 31. Börnin urðu tvö, Erna Margrét, gift Sveinbirni Hjálmarssyni í Vestmannaeyjum, og Hjálmar Þór, vélvirki hjá Ísfélaginu hf. Barnabörnin urðu sex og barnabarnabörnin fimm.

      Places

      Neðri-Mýrar í Refasveit: Kvsk Blönduósi: Reykjavík: Vestmannaeyjar 1935:

      Legal status

      Klæðskeri:

      Functions, occupations and activities

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar; Einar Guðmundsson 12. febrúar 1875 - 16. janúar 1934 Bóndi og organisti á Neðri-Mýrum og kona hans 19.11.1906; Guðrún Margrét Hallgrímsdóttir 15. október 1885 - 14. september 1956 Húsfreyja á Neðri-Mýrum, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja á Neðri-Mýrum.
      Systkini hennar;
      1) Guðmundur Mýrmann Einarsson 24. júní 1907 - 14. september 1976 Bóndi á Neðri-Mýrum. Var á Neðri-Mýrum, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Kona Guðmundar 28.8.1949; Guðrún Hólmfríður Sigurðardóttir 20. júní 1915 - 18. september 2002 Var í Mánaskál, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var í Mánaskál, Vindhælishr., A-Hún. 1957.
      2) Unnur Einarsdóttir 6. maí 1911 - 8. júní 1998 Vinnukona á sjúkrahúsinu á Blönduósi 1930. Var á Neðri Mýrum, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957.
      3) Hallgrímur Mýrmann Einarsson 8. júlí 1920 - 3. apríl 1998 Var á Neðri-Mýrum, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Var á Neðri Mýrum, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957. Bóndi. Síðast bús. í Engihlíðarhreppi.

      Maður hennar; Jóhannes Gunnar Gíslason 14. júlí 1906 - 2. jan. 1995. Verzlunarmaður á Hásteinsvegi 20 , Vestmannaeyjum 1930. Verslunarmaður í Vestmannaeyjum.
      Börn þeirra;
      1) Erna Margrét Jóhannesdóttir 2. jan. 1937 - 22. maí 2017. Húsfreyja, saumakona og umboðsmaður Happdrættis Háskóla Íslands. Bús. í Vestmannaeyjum. Maður hennar; Sveinbjörn Hjálmarsson 11. sept. 1931 - 27. okt. 2016. Vélstjóri, bæjargjaldkeri og síðar útibússtjóri Skeljungs hf. í Vestmannaeyjum. Gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum.
      2) Hjálmar Þór Jóhannesson 23. sept. 1940. Kona hans; Helga Katrín Sveinbjörnsdóttir 31. okt. 1943. Vestmannaeyjum, þau skildu.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Neðri-Mýrar í Refasveit ((1920))

      Identifier of related entity

      HAH00206

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Einarsson (1907-1976) Neðri-Mýrum (24.6.1907 - 14.9.1976)

      Identifier of related entity

      HAH04103

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Einarsson (1907-1976) Neðri-Mýrum is the sibling of Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

      Dates of relationship

      28.2.1909

      Description of relationship

      Related entity

      Unnur Einarsdóttir (1911-1998) Neðri-Mýrum (6.5.1911 -8.6.1998)

      Identifier of related entity

      HAH02095

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Unnur Einarsdóttir (1911-1998) Neðri-Mýrum is the sibling of Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

      Dates of relationship

      6.5.1911

      Description of relationship

      Related entity

      Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum (8.7.1920 - 3.4.1998)

      Identifier of related entity

      HAH04751

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Hallgrímur Einarsson (1920-1998) Neðri-Mýrum is the sibling of Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

      Dates of relationship

      8.7.1920

      Description of relationship

      Related entity

      Anna Guðrún Guðmundsdóttir (1876-1968) Kárahlíð (9.7.1876 - 14.12.1968)

      Identifier of related entity

      HAH02335

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Anna Guðrún Guðmundsdóttir (1876-1968) Kárahlíð is the cousin of Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

      Dates of relationship

      28.2.1909

      Description of relationship

      Einar faðir Guðrúnar var bróðir Önnu.

      Related entity

      Anna Jónsdóttir (1830-1916) Bollagörðum á Seltjarnarnesi. (3.3.1830 - 14.8.1916)

      Identifier of related entity

      HAH02361

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Anna Jónsdóttir (1830-1916) Bollagörðum á Seltjarnarnesi. is the grandparent of Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

      Dates of relationship

      28.2.1909

      Description of relationship

      Einar faðir Guðrúnar var sonur Önnu

      Related entity

      Kvennaskólinn á Blönduósi 1921-1930 (1921 - 1930)

      Identifier of related entity

      HAH00115 -21-30

      Category of relationship

      associative

      Type of relationship

      Kvennaskólinn á Blönduósi 1921-1930 is the associate of Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

      Dates of relationship

      Description of relationship

      nemandi þar

      Related entity

      Guðrún Hallgrímsdóttir (1885-1956) Neðri-Mýrum (15.10.1885 - 14.9.1956)

      Identifier of related entity

      HAH04402

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Hallgrímsdóttir (1885-1956) Neðri-Mýrum is the parent of Guðrún Einarsdóttir (1909-1986) frá Neðri Mýrum

      Dates of relationship

      28.2.1909

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01312

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 20.5.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði

        Maintenance notes