Halldór Jóhannesson (1937-2007) Víðigerði

Original Stafræn eining not accessible

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Halldór Jóhannesson (1937-2007) Víðigerði

Hliðstæð nafnaform

  • Halldór Vilberg Jóhannesson Víðigerði
  • Halldór Vilberg Jóhannesson (1937-2007) Víðigerði

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

28.10.1937 - 29.12.2007

Saga

Halldór Vilberg Jóhannesson frá Víðigerði fæddist á Neðri-Fitjum í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu 28. október 1937. Hann lést á heimili sínu í Gullengi 9 í Reykjavík hinn 29. desember síðastliðinn. Halldór ólst upp í foreldrahúsum á Efri-Fitjum til 17 ára aldurs.

Hann fór þá til Reykjavíkur þar sem hann vann ýmis störf ásamt því að læra bifvélavirkjun.
Árið 1960 keypti hann lóð í landi Auðunnarstaða í Víðidal. Byggðu þau hjónin þar bifreiðaverkstæði og söluskálann Víðigerði.

Halldór og Helga seldu Víðigerði 1986 og fluttu til Reykjavíkur. Halldór vann hjá Olíufélaginu á meðan heilsan leyfði eða til ársins 2002.
Útför Halldórs fór fram frá Grafarvogskirkju 7.1.2008 og hófst athöfnin klukkan 13.

Staðir

Neðri-Fitjar í Víðidal V-Hún.

Réttindi

Starfssvið

Hann sinnti ýmsum félagsstörfum, var meðal annars formaður skólanefndar Laugarbakkaskóla, og í hreppsnefnd Þorkelshólshrepps. Einnig var hann með þjónustu fyrir FÍB.
Halldór sat einnig í stjórn félags sumarhúsaeigenda, og var í trúnaðarráði verkalýðsfélagsins Eflingar.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hans voru Kristín Ásmundsdóttir frá Mosfelli í Mosfellssveit, f. 26. júlí 1912, d. 10. mars 1980, og Jóhannes Árnason frá Neðri-Fitjum, f. 30. júní 1911, d. 12. ágúst 1981.

Systkini Halldórs eru;
1) Árný Sigríður Jóhannesdóttir f. 22. mars 1939, d. 27. júní 1988. Síðast bús. í Kópavogi.
2) Ásbjörn Þór Jóhannesson f. 24. júní 1942, d. 30. júní 1991. Bóndi á Auðkúlu, Svínavatnshr., Hún.
3) Þorgeir Jóhannesson f. 23. ágúst 1945. Var á Neðri-Fitjum I, Þorkelshólshr., V-Hún. 1957.

Kona hans 7. mars 1964; Helga Marsibil Ingvarsdóttir frá Hvammstanga, f. 12 mars 1935. Foreldrar hennar voru Sesselja Ólafsdóttir, f. 10. október 1912, d. 22. maí 2005, og Ingvar Helgi Jakobsson, f. 14. maí 1891, d. 21. febrúar 1939.

Halldór og Helga eiga þrjú börn, þau eru:
1) Ingvar, f. 30. maí 1964, kvæntur Sigurborgu Berglindi Bragadóttur, f. 15. desember 1962, þau eru búsett í Kópavogi og eiga tvö börn, Helgu Guðrúnu og Kristján Óla.
2) Jóhanna, f. 20. september 1965, gift Bergvini Magnúsi Þórðarsyni, f. 30. október 1964, þau eru búsett í Kópavogi og eiga tvö börn, Halldór Reyni og Eyþór.
3) Edda, f. 11. júní 1967, gift Knúti Eyjólfssyni, f. 7. janúar 1949, þau eru búsett í Kópavogi, sonur þeirra er Aron.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Fitjar í Víðidal [efri og neðri] ((1500))

Identifier of related entity

HAH00898

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Árný Jóhannesdóttir (1939-1988) Vatnshlíð, frá Neðri Fitjum (22.3.1939 - 27.6.1988)

Identifier of related entity

HAH01071

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Árný Jóhannesdóttir (1939-1988) Vatnshlíð, frá Neðri Fitjum

er systkini

Halldór Jóhannesson (1937-2007) Víðigerði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Ásbjörn Jóhannesson (1942-1991) Auðkúlu (24.6.1942 - 30.6.1991)

Identifier of related entity

HAH01077

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Ásbjörn Jóhannesson (1942-1991) Auðkúlu

er systkini

Halldór Jóhannesson (1937-2007) Víðigerði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Helga Ingvarsdóttir (1935) Laufási Hvammstanga og Víðigerði (12.3.1935 -)

Identifier of related entity

HAH06921

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Helga Ingvarsdóttir (1935) Laufási Hvammstanga og Víðigerði

er maki

Halldór Jóhannesson (1937-2007) Víðigerði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Víðigerði í Víðidal (1960 -)

Identifier of related entity

HAH00837

Flokkur tengsla

stigveldi

Type of relationship

Víðigerði í Víðidal

er stjórnað af

Halldór Jóhannesson (1937-2007) Víðigerði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01362

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 23.5.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir