Hjálmfríður Þorsteinsdóttir (1916-2003) Garðyrkjufræðingur. Kvsk 1938-1939

Original Stafræn eining not accessible

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Hjálmfríður Þorsteinsdóttir (1916-2003) Garðyrkjufræðingur. Kvsk 1938-1939

Hliðstæð nafnaform

  • Hjálmfríður Ólöf Þorsteinsdóttir (1916-2003) Garðyrkjufræðingur. Kvsk 1938-1939

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

15.1.1916 - 20.12.2003

Saga

Hjálmfríður Ólöf Þorsteinsdóttir fæddist í Neðri-Miðvík í Aðalvík í N-Ísafjarðarsýslu 15. janúar 1916.
Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík að kvöldi 20. desember 2003. Útför Hjálmfríðar fór fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 5.1.2004 og hófst athöfnin klukkan 10.30.

Staðir

Réttindi

Hjálmfríður lauk húsmæðraprófi frá Húsmæðraskólanum á Blönduósi og prófi í garðyrkjufræði frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi.

Starfssvið

Hún starfaði sem garðyrkjufræðingur framan af ævi, en þau Svavar stofnuðu garðyrkjubýlið Ása í Stafholtstungum í Mýrasýslu. Síðar starfaði hún sem forstöðukona í mjólkurbúðum í Reykjavík og síðustu ár starfsævinnar í eldhúsi Landspítalans.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hennar voru Þorsteinn Bjarnason, f. 16.7. 1892, bóndi í Neðri-Miðvík, d. 15.11. 1985, og kona hans Hólmfríður Ragnheiður Guðmundsdóttir, f. 20.11. 1889, d. 3.8. 1921.

Hjálmfríður átti fimm systkini. Þau eru:
1) María Herborg Þorsteinsdóttir, f. 6.12.1912 - 22.10.2005. Vetrarstúlka á Ísafirði 1930. Síðast bús. í Hafnarfirði.
2) Pálína Valgerður Þorsteinsdóttir, f. 1914, d. 1999,
3) Sigurður Hjálmar Þorsteinsson f. 1918, d. 1984,
4) Kristinn Guðjón Þorsteinsson f. 1919, d. 1980,
6) Hólmfríður Karitas Þorsteinsdóttir f. 1921, d. 1921.

Hjálmfríður giftist 12. júlí 1944 Svavari Kjærnested, f. 9.2. 1920. Þau skildu. Hjálmfríður og Svavar eignuðust þrjú börn, sem eru:
1) Borgþór, f. 3.9. 1943. Borgþór kvæntist Vivan Ann-Mari Sandelin, þau skildu. Börn þeirra: a) Magnús. b) Ann-Marie Erna Elísabet. Seinni kona Borgþórs er Sólveig Pétursdóttir. Þau skildu. Börn þeirra: c) Sólveig Fríða. d) Pétur Friðfinnur.
2) Ragnheiður, f. 20.6. 1947. Ragnheiður er gift Ásmundi Jónssyni. Börn þeirra: a) Jón Hjalti. Kona Jóns Hjalta er Ingunn Jónsdóttir. b) Ragnar Kjærnested. Kona Ragnars er Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir. Sonur þeirra er Ásmundur Smári.
3) Erna, f. 28.7. 1950. Erna er gift Gunnari Benediktssyni. Börn þeirra: a) Fríða Ólöf. Maður hennar er Sverrir Sverrisson. Sonur þeirra er Eyjólfur Andri og dóttir Sverris er Elísa Marey. b) Ragnheiður. Maður hennar er Freyr Hákonarson. Börn hans eru Sandra Sif og Sindri Snær. c) Benedikt. Sambýliskona Benedikts er Lára Valdís Kristjánsdóttir. Sonur þeirra er Dagur Björn.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH07847

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ skráning 27.5.2022

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir