Gunnar Óskarsson (1933-2000)

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Gunnar Óskarsson (1933-2000)

Hliðstæð nafnaform

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

15.6.1933 - 6.10.2000

Saga

Gunnar Óskarsson fæddist í Búðardal í Laxárdal 15. júní 1933. Hann lést í Landsspítalanum við Hringbraut 6. október síðastliðinn.
Gunnar starfaði lengst af hjá Pósti og síma, síðar Landssímanum sem tæknimaður við Loran-kerfið og síðar GSM-kerfið.

Útför Gunnars fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.

Staðir

Búðardalur:

Réttindi

Starfssvið

Tæknimaður Pósts og Síma síðar Lanssímanum:

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hans voru þau hjónin Henríetta Björg Berndsen frá Skagaströnd, f. 7. nóvember 1913, d. 15. febrúar 1998, húsmóðir og símaafgreiðslukona í Búðardal, og Óskar Sumarliðason, f. 29. júlí 1904 í Búðardal, d. 23. júlí 1992, bifreiðastjóri og vélgæslumaður í Búðardal og var heimili þeirra Óskars og Hennýjar í Búðardal alla tíð.
Systkini Gunnars eru:
1) Birgir Óskarsson, f. 21. júní 1939, kvæntur Jóhönnu Birnu Sigurðardóttur, f. 10. nóvember 1942, og eiga þau tvær dætur og fimm barnabörn.
2) Hildur Óskarsdóttir, f. 12. desember 1940, gift Róbert Fearon, f. 22. febrúar 1942, og eiga þau þrjú börn og sex barnabörn.
3) Hilmar Óskarsson, f. 11. október 1950, kvæntur Ingu Maríu Pálsdóttur, f. 26. apríl 1952, og eiga þau fjögur börn og fimm barnabörn.

Gunnar kvæntist Jakobínu Kristjánsdóttur, f. á Ísafirði 31.1. 1933, verslunarmanni í Reykjavík og er einkadóttir þeirra
Henný Ósk, f. 2. september 1955, þjónustufulltrúi hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga í Reykjavík. Dóttir Hennýjar og Reynis Valtýssonar er Vala Kolbrún, f. 16. júlí 1975, og eru börn hennar Gunnar Þór Berg Traustason, f. 31. mars 1998, og óskírður Traustason, f. 19. september 2000.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01351

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 22.5.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir