Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Guðrún Steinsdóttir (1916-1999) frá Hrauni á Skaga
Hliðstæð nafnaform
- Guðrún Steinsdóttir frá Hrauni á Skaga
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
4.9.1916 - 7.3.1999
Saga
Guðrún Steinsdóttir fæddist á Hrauni á Skaga 4. september 1916. Hún lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 7. mars síðastliðinn. Guðrún lauk prófi frá Kvennaskólanum á Blönduósi 1938. Hún var ráðskona við Reykjaskóla í Hrútafirði í eitt ár, stundaði verslunarstörf í Reykjavík í sjö ár en hefur verið húsfreyja á Reynistað frá 1947. Guðrún starfaði í Ungmennafélaginu Æskunni, var í mörg ár formaður Kvenfélags Staðarhrepps, formaður sóknarnefndar Reynistaðarkirkju um árabil auk þess sem hún hafði umsjón með Reynistaðarkirkju í áraraðir. Útför Guðrúnar fer fram frá Reynistaðarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 16.
Staðir
Hraun á Skaga: Kvsk á Blönduósi 1937-1938: Reykjavík: Reynisstaður í Skagafirði:
Réttindi
Húsfreyja:
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru hjónin Steinn L. Sveinsson, f. 17.1. 1886, d. 27.11. 1957, bóndi og hreppstjóri á Hrauni á Skaga, og k.h., Guðrún Sigríður Kristmundsdóttir, f. 12.10. 1892, d. 24.10. 1978.
Systkini Guðrúnar eru: Gunnsteinn Sigurður, f. 10.1. 1915, búsettur á Sauðárkróki; Rögnvaldur, f. 3.10. 1918, búsettur á Hrauni á Skaga; Svava, f. 17.11. 1919, búsett á Skagaströnd; Guðbjörg Jónína, f. 30.1. 1921, búsett í Reykjavík; Tryggvina Ingibjörg, f. 7.4. 1922, búsett í Reykjavík; Kristmundur, f. 5.1. 1924, búsettur í Reykjavík; Svanfríður, f. 18.10. 1926, búsett á Sauðárkróki; Sveinn, f. 8.9. 1929, búsettur í Geitagerði í Skagafirði; Ásta, f. 27.11. 1930, búsett í Reykjavík; Hafsteinn, f. 7.5. 1933, búsettur í Reykjavík; Hrefna, f. 11.5. 1935, d. 19.8. 1935.
Guðrún giftist 18.9. 1947 Sigurði Jónssyni, f. 4. september 1917, bónda á Reynistað. Foreldrar: Jón Sigurðsson, fyrrverandi bóndi og alþm. á Reynistað, f. 13.3. 1888, d. 5.8. 1972, og Sigrún Pálmadóttir húsfreyja, f. 17.5. 1895, d. 11.1. 1979. Guðrún og Sigurður eignuðust fjóra syni, þeir eru:
1) Jón, f. 26.9. 1948, bifreiðastjóri á Sauðárkróki, kvæntur Sigurbjörgu Guðjónsdóttur og eiga þau þrjú börn: a) Hjördísi, sambýlismaður hennar er Hjörtur Pálmi Jónsson, börn hennar eru Andrea Kristjánsdóttir og Gísli Þráinn Kristjánsson, b) Brynju Dröfn og c) Sigurð Guðjón.
2) Steinn Leó, f. 2.2. 1951, bifreiðastjóri, búsettur á Mel í Skagafirði, kvæntur Salmínu S. Tavsen og eiga þau þrjú börn: a) Sigurð Rúnar, b) Aðalheiði Báru, og c) Pétur Tavsen. Barn Salmínu er Ástríður Margrét Eymundsdóttir, sambýlismaður hennar er Már Halldórsson, þeirra barn er Vignir Már.
3) Hallur, f. 11.5. 1953, bifvélavirki hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki, kvæntur Sigríði Svavarsdóttur og eiga þau þrjár dætur: a) Guðrúnu Ösp, b) Margréti Helgu og c) Bryndísi Lilju.
4) Helgi Jóhann, f. 14.2. 1957, bóndi á Reynistað, kvæntur Sigurlaugu Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú börn: a) Jóhann, b) Óskar Bjarka og c) Sigrúnu Evu.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Guðrún Steinsdóttir (1916-1999) frá Hrauni á Skaga
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 21.5.2017
Tungumál
- íslenska