Grenjaðarstaður í Kinn

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Grenjaðarstaður í Kinn

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        1865 -

        History

        Grenjaðarstaður var landnámsjörð samkvæmt því er segir í Landnámu, og bjó þar landnámsmaðurinn Grenjaður Hrappsson. Grenjaðarstaður var höfðingjasetur til forna og þar bjó meðal annars Kolbeinn Sighvatsson, sonur Sighvats Sturlusonar. Hann féll í bardaganm á Örlygsstöðum 1238 en var jarðsettur á Grenjaðarstað.

        Grenjaðarstaður var eitt af bestu brauðum landsins. Var staðurinn lagður til jafns við Odda, sem þótti besta brauð í Sunnlendingafjórðungi. Átti staðurinn fjölda jarða auk hjáleigna, reka, laxveiði og önnur ítök en heimaland var mikið og gagnsamt. Á meðal presta á Grenjaðarstað má nefna Þorkell Guðbjartsson (d. 1483), Jón Pálsson Maríuskáld (d. 1471) og Sigurð Jónsson (d. 1595), son Jóns biskups Arasonar, sem gerði skrá um eignir biskupsstólsins á Hólum og eignir kirkna á Norðurlandi. Þá má nefna Gísla Magnússon (1712-1779), síðar biskup á Hólum, sem lét byggja kirkjuna þar.

        Árið 1931 var Grenjaðarstað skipt í 5 býli og er prestssetrið nú aðeins fimmtungur jarðarinnar.

        Places

        Legal status

        Grenjaðarstaður er fornt höfuðból, kirkjustaður og prestssetur í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Á Grenjaðarstað er reisulegur torfbær og er elsti hluti hans byggður árið 1865 en búið var í bænum til 1949. Hann er mjög stór, um 775 fermetrar. Þar er nú byggðasafn sem opnað var 1958.

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Byggðasafnið á Grenjaðarstað á sér nokkra forsögu og hefur margt fólk, bæði menn og konur, lagt þar hönd að verki. Bændafélag Þingeyinga setti á laggirnar nefnd veturinn 1950 til þess að athuga möguleika fyrir stofnun byggðasafns í Þingeyjarsýslu.

        Fljótlega var byrjað að safna munum. Eftir því sem að munum fjölgaði þá varð það ljóst að annað hvort þyrfti að byggja hús með ærnum kostnaði eða finna hentugt húsnæði sem þegar væri til. Á þessum tíma var gamli bærinn á Grenjaðarstað auður því nýtt íbúðarhús hafði verið byggt á staðnum. Tímans tönn hafði nagað torfveggina og þökin á bænum og þarfnaðist hann því töluverðra endurbóta.

        Sumarið 1955 var, fyrir forgöngu þáverandi þjóðminjavarðar,Kristjáns Eldjárns, hafin gagnger viðgerð á bænum, þar sem reynt var að færa hann í upprunalegt horf. Kristján Eldjárn bauð bæinn fram til þess að geyma muni byggðasafnins að viðgerð lokinni. Viðgerð tók sinn tíma en 9. júlí 1958 var bærinn formlega opnaður sem byggðasafn. Hafði þá verið komið fyrir nokkuð á annað þúsund munum í flestum húsum bæjarins sem fólkið í héraðinu hafði gefið til safnsins.

        Internal structures/genealogy

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Ásta Þórarinsdóttir (1859-1929) Grenjaðarstað (20.6.1859 - 22.8.1929)

        Identifier of related entity

        HAH07538

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Ásta Þórarinsdóttir (1859-1929) Grenjaðarstað controls Grenjaðarstaður í Kinn

        Dates of relationship

        26.9.1885 - 20.2.1911

        Description of relationship

        Húsfreyja þar

        Related entity

        Helgi Hjálmarsson (1867-1941) prestur á Grenjaðarstað (14.8.1867 - 17.3.1941)

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Dates of relationship

        1911-1930

        Description of relationship

        prestur þar 1911-1930

        Related entity

        Grenjaðarstaðakirkja í Kinn (1865)

        Identifier of related entity

        HAH00855

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Grenjaðarstaðakirkja í Kinn is the associate of Grenjaðarstaður í Kinn

        Dates of relationship

        1865

        Description of relationship

        Related entity

        Ingibjörg Magnúsdóttir (1849-1946) Klömbrum og Blönduósi (22.1.1949 - 26.8.1946)

        Identifier of related entity

        HAH06681

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Ingibjörg Magnúsdóttir (1849-1946) Klömbrum og Blönduósi is the associate of Grenjaðarstaður í Kinn

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Barn þar 1860

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00746

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 6.5.2020

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes