Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Gíslína Torfadóttir (1937-2007) Óslandi ov
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
8.6.1937 - 17.9.2007
Saga
Gíslína Torfadóttir fæddist á Kringlu í Grímsnesi 8. júní 1937. Hún lést á kvennadeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn 17. september 2007.
Foreldrar Gíslínu voru Torfi Sigurjónsson frá Kringlu í Grímsnesi, f. 14.3. 1906, d. 13.2. 1996, og Margrét Sæmundsdóttir úr Reykjavík, f. 9.6. 1914, d. 16.1. 2003.
Gíslína fluttist með foreldrum sínum að Miðhúsum í Garði árið 1940 þar sem foreldrar hennar hófu búskap.
Lína, eins og hún var alltaf kölluð, ólst upp með stórum systkinahópi í Miðhúsum þar sem verkefnin voru alltaf næg, svo fór hún að vinna í fiski í Garðinum og vann einnig í bakaríi í Reykjavík. Eftir að hún giftist Gústa byrjuðu þau að búa á Lambastöðum í Garði en fluttu á Blönduós vorið 1965, að Óslandi fyrst um sinn en byggðu sér svo hús á Urðarbraut 1 og bjuggu þar frá árinu 1971 þar til þau fluttu suður í Garð í desember 1998. Eftir að þau fluttu suður í Garð starfaði Lína við heimilishjálp. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag kl. 14.
Staðir
Kringla í Grímsnesi Árn: Miðhús í Garði á Suðurnesjum: Reykjavík:
Ósland Blönduós:
Urðarbraut 1
Réttindi
Starfssvið
Lína starfaði við ýmis störf á Blönduósi; í Pólarprjóni í mörg ár, á leikskóla og sem ráðskona í vegavinnu í Húnavatnssýslunni, á Ströndum og í Skagafirði, þar sem Gústi maður hennar vann á þessum sömu stöðum við vegavinnu á ýtunni sinni.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar Gíslínu voru Torfi Sigurjónsson frá Kringlu í Grímsnesi, f. 14.3. 1906, d. 13.2. 1996, og Margrét Sæmundsdóttir úr Reykjavík, f. 9.6. 1914, d. 16.1. 2003.
Gíslína fluttist með foreldrum sínum að Miðhúsum í Garði árið 1940 þar sem foreldrar hennar hófu búskap. Gíslína átti 13 systkini, þau;
1) Guðrún, f. 6.5. 1936,
2) Þórunn f. 19.9. 1938,
3) Sæmundur, f. 4.1. 1940,
4) Þorsteinn, f. 3.5. 1941,
5) Geirdís, f. 16.6. 1942,
6) Ólafur f. 7.10. 1943, d. 22.10. 1983,
7) Sigurjón, f. 20.9. 1944,
8) Sigurgeir, f. 20.3. 1946,
9) Torfhildur Margrét, f. 15.1. 1948,
10) Jón Gunnar, f. 29.6. 1949,
11) Rafn, f. 29.9. 1950,
12) Svandís, f. 29.9. 1951,
13) Magnús, f. 12.11. 1952.
Gíslína giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Ágústi Fannberg Friðgeirssyni frá Sviðningi á Skaga, 16.5. 1964. Ágúst er sonur hjónanna Friðgeirs Ágústs Eiríkssonar og Fanneyjar Halldórsdóttur. Gíslínu og Ágústi varð ekki barna auðið en áður átti Gíslína synina
1) Torfa Gunnþórsson, f. 11.8. 1958, Börn Torfa eru Jóhanna, f. 31.12. 1979, Ágúst Fannberg, f. 1.9. 1982, Ólafur Árni, f. 18.5. 1986, Elísabet, f. 10.11. 1977, og Kolbrún, f. 28.3. 1979. Sambýliskona Torfa er Fjóla Svavarsdóttir.
2) Guðmundur Guðmundsson, f. 2.8. 1960, Guðmundur á eina dóttur: Söndru Hlín, f. 7.1. 1985.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
18.5.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði
Íslendingabók
mbl 24.9.2007. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1166523/?item_num=1&searchid=92f6507d899b0de7ade87922d7be168616161795
Athugasemdir um breytingar
Stafræn eining metadata
Aðgengi
Heiti skjals
Gslna_Torfadttir1937-2007____slandi_ov.jpg
Latitude
Longitude
Gerð miðla
Mynd
Mime-type
image/jpeg