Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Friðrik Brynjólfsson (1923-2008)
Hliðstæð nafnaform
- Friðrik Brynjólfsson
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
24.12.1923 - 18.8.2008
Saga
Friðrik Brynjólfsson 24. desember 1923 - 18. ágúst 2008 Var í Laufási, Þingeyri 1930.
Friðrik ólst upp á Þingeyri til 10 ára aldurs er fjölskyldan fluttist að Klukkulandi í Núpsdal í Mýrarhreppi, Vestur-Ísafjarðarsýslu.
Eftir að Friðrik hætti atvinnumennsku í húsasmíðunum og flutti að Austurhlíð átti búskapurinn hug hans allan. Þegar þau Friðrik og Guðríður hættu búskap árið 1988 og seldu jörðina syni sínum tóku þau undan sem séreign um 7 hektara lands. Árið 1992 reistu þau sér notalegt timburhús og stofnuðu löglegt iðnaðarbýli til trjáræktar. Síðustu veturna meðan Friðrik hélt heilsu lærði hann að binda bækur og hafði það áhugamál sér til dægrastyttingar. Heilsu Friðriks hrakaði ört síðasta árið sem hann lifði. Hann lagðist inn á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi þann 21. apríl og átti þaðan ekki afturkvæmt. Í veikindunum var áberandi að Friðrik hélt húmornum og glettninni, sem var svo einkennandi fyrir hann, allt fram á síðasta dag.
Útför Friðriks Brynjólfssonar var gerð frá Bergsstaðakirkju 30. ágúst 2008.
Staðir
Klukkuland; Patreksfjörður; Reykjavík; Austurhlíð:
Réttindi
Barna og Alþýðuskólinn á Núpi í Dýrafirði 1942-1943. Friðrik lærði húsasmíði hjá Helga Gestssyni, mági sínum á Patreksfirði, gekk í iðnskólann þar og lauk prófi með ágætiseinkunn. Meistarabréf hans í iðninni er stimplað og útgefið 13. ágúst 1952.
Starfssvið
Hann vann við húsasmíði og um tíma við gerð Sogsvirkjunar og var virkur félagi í Trésmíðafélagi Reykjavíkur.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans; Sigríður Guðrún Brynjólfsdóttir 20. febrúar 1881 - 17. janúar 1971 Húsfreyja í Laufási, Þingeyri 1930. Síðast bús. í Hafnarfirði og maður hennar; Brynjólfur Einarsson 8. ágúst 1874 - 4. júlí 1953 Bóndi á Brekku á Ingjaldssandi, og á Lækjarósi, Mýrarhr., V.-Ís., síðar á Þingeyri. Bóndi í Laufási, Þingeyri 1930.
Þann 2. maí 1959 gekk Friðrik í hjónaband með Guðríði Bjargey Helgadóttur 16.3.1921,kvenklæðskera, Var á Núpsöxl, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930.. Þau bjuggu fyrstu tvö árin í íbúðinni á Rauðalæk en vorið 1961 ventu þau kvæði sínu í kross og höfðu skipti á íbúðinni og jörðinni Austurhlíð í Blöndudal. Þangað fluttu þau hjónin 2. maí það sama ár og stunduðu blandaðan búskap.
Þau eignuðust saman fjögur börn.
1) Sigríður Guðrún Friðriksdóttir 14. nóvember 1959
2) Brynjólfur Friðriksson 7. nóvember 1960 Bóndi
3) Kristín Friðriksdóttir stuðningsfulltrúi, fædd 28.5.1963
4) Ólína Þóra Friðriksdóttir viðskiptafræðingur, fædd 7.10.1966.
Frá fyrra hjónabandi átti Guðríður tvö börn;
5) Helga Sæmundsson rafvirkjameistara, fæddur 15.7.1946
6) Ásdísi Sæmundsdóttur hjúkrunarforstjóra, fædd 23.11.1947.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 18.4.2018
Tungumál
- íslenska