Fagurhólsmýri í Öræfum

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Fagurhólsmýri í Öræfum

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        (1950)

        History

        Fagurhólsmýri er bær í Öræfum. Þar er flugvöllur og leið út í Ingólfshöfða. Þar hefur verið mönnuð veðurathugunarstöð frá árinu 1903.

        Í upphafi hétu Öræfi “Héraðið milli sanda” og vitnar heitið um stærð og auðsæld. Talið erað hún hafi verið með blómlegustu svæðum landsins þegar IngólfurArnarson tók land við Ingólfshöfða um árið 874, skammt frá Skafatafelli. Fyrsti landnámsmaður í héraðinu milli sanda var Þorgerður sem nam land allt frá Kvíá að Jökulfelli við Bæjarstaðaskóg. Öræfi skarta mörgum perlum, m.a. Skaftafelli en þjóðgarðurinn var stofnaður 23. ágúst 1968.

        Sérstaða hans er ósnortin náttúra og sérkenni hennar var talin forsenda fyrir stofnun þjóðgarðs.
        Í gegnum aldirnar hafa jöklar gengið fram eða hopað og við það hefur gróðurlendi rýrnað og verulega verið sorfið að byggðinni. Hesturinn var eina farartækiðyfir óbrúaðan sandinn en árnar á Skeiðarársandi voru helsti farartálminn allt þar til Skeiðarárbrú var vígð árið 1974 en þar með lauk tímabilieinangrunar.

        Í Byggðasögu Austur–Skafftafellssýslu segir að elstu rituðu heimildir um Fagurhólsmýri munu vera sveitarlýsing sr. Gísla Finnbogasonar frá því um 1700 og jarðabók Ísleifs Einarssonar frá 1709. Þar kemur fram að Fagurhólsmýri sé hjáleiga byggð úr Hnappavallaheimalandi. Eins er sagt frá því að sveitin Öræfi liggi í boga undir hæstafjalli landsins; Öræfajökli og að hann skýli sveitinni fyrir norðanátt. Árið 1362 gaus Öræfajökull, sem þá var nefndur Knappafellsjökull,og lagði gosið byggðina í eyði.
        (Sjá “Hérað milli sanda og eyðing þess” eftir dr. Sigurð Þórarinsson, Andvari 1957, bls. 35-47). Öræfajökull er megineldstöð með lögun eldkeilu og langstærsta virka eldfjallið hér á landi. Talið er að undanfari gossins hafi verið snarpur jaðrskjálfti, bæir hafi hrunið og manntjón orðið mikið. Jökulhlaup kom æðandi niður snarbrattar hlíðar fjallsins með vikri, stórgrýti, jökum og mikilli eðju sem sópaði bæjum í burtu. Var eldgos þetta með þeim mestu, sem sögur fara af, og má enn sjá stórar vikurdyngjur frá því gosi víða í Öræfum. Engar öruggar heimildir eru fyrir hendi umhversu mikið tjón varð áfólki eða búpeningi af völdum þessa eldgoss nema annálar, sem færðir voru í letur öldum seinna. Þó eru til heimildir er greina frá því að búpeningi var bjargað og eru því líkur á að eitthvað af fólki hafi einnig bjargast.

        Places

        Öræfi; Ingólfshöfði; Austur–Skafftafellssýsla; “Héraðið milli sanda”; Skafatafell; Kvíá; Jökulfell; Bæjarstaðaskógur; Skeiðarársandur; Skeiðarárbrú; Hnappavellir; Öræfajökull; Knappafellsjökull;

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        (Sjá “Hérað milli sanda og eyðing þess” eftir dr. Sigurð Þórarinsson, Andvari 1957, bls. 35-47).

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Hornafjarðarfljót ((1950))

        Identifier of related entity

        HAH00241

        Category of relationship

        hierarchical

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Austur-Skaftafellssýsla

        Identifier of related entity

        HAH00871

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Austur-Skaftafellssýsla is the associate of Fagurhólsmýri í Öræfum

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00237

        Institution identifier

        IS HAH-Suðurl

        Rules and/or conventions used

        Status

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 20.2.2018

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes