Identity area
Type of entity
Corporate body
Authorized form of name
Eyjafjörður
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
874 -
History
Fjörðurinn er langur og mjór, 60 km frá mynni að botni. Mesta breidd hans er 25 km á milli Sigluness og Gjögurtáar í mynni fjarðarins en yfirleitt er fjörðurinn á bilinu 6-10 km breiður. Tveir minni firðir ganga út úr Eyjafirði vestan megin, Ólafsfjörður og Héðinsfjörður.
Fjörðurinn er umkringdur fjöllum á báða vegu, þó nokkuð hærri að vestanverðu í fjallgarði Tröllaskaga. Það er nánast ekkert undirlendi meðfram ströndum í utanverðum firðinum en þegar sunnar dregur breikkar láglendið, þó meira að vestanverðu.
Nokkrir dalir ganga inn frá Eyjafirði. Að vestan eru Svarfaðardalur, Þorvaldsdalur og Hörgárdalur þeirra mestir en að austan Dalsmynni. Stærsti dalurinn sem gengur út frá Eyjafirði er þó sá sem gengur beint inn af firðinum og ber hann einnig nafnið Eyjafjörður (sem á ekki að rugla saman við Eyjafjarðardal). Sá dalur er bæði langur og breiður og hýsir eina þéttbýlustu og grösugustu sveit landsins.
Nokkrar ár renna í Eyjafjörð, þeirra stærstar eru Eyjafjarðará, Fnjóská og Hörgá en einnig Svarfaðardalsá.
Places
Eyjafjarðarsvæðið er það næst fjölmennasta á Íslandi á eftir höfuðborgarsvæðinu. Árið 2003 var samanlagður mannfjöldi sveitarfélaganna sem liggja að firðinum 21.536 (að Siglufirði og Grímsey frátöldum, þeir staðir eru í Eyjafjarðarsýslu en tilheyra ekki Eyjafirði í landfræðilegum skilningi.)
Langstærsti bær svæðisins er Akureyri en aðrir bæir og þorp eru: Ólafsfjörður, Dalvík, Hrísey, Árskógssandur, Hauganes, Hjalteyri, Hrafnagil, Svalbarðseyri og Grenivík. Grunnatvinnuvegir flestra þessara staða eru sjávarútvegur og landbúnaður en Akureyri er að auki þjónustumiðstöð svæðisins með mörgum mikilvægum stofnunum á borð við sjúkrahús og háskóla.
Legal status
Eyjafjörður er fjörður á miðju Norðurlandi. Hann er einn af lengstu fjörðum Íslands og héraðið umhverfis fjörðinn og inn af honum er næstfjölmennasta hérað landsins. Nafnið er dregið af Hrísey sem liggur á miðjum firðinum.
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
General context
Relationships area
Related entity
Related entity
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ skráning 21.5.2020
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
Guðmundur Paul https://is.wikipedia.org/wiki/Eyjafj%C3%B6r%C3%B0ur