Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Erlingur Magnússon (1931-2001) frá Bæ í Króksfirði
Hliðstæð nafnaform
- Erlingur Bjarni Magnússon (1931-2001) frá Bæ í Króksfirði
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
7.10.1931 - 20.10.2001
Saga
Erlingur Bjarni Magnússon fæddist á Miðjanesi í Reykhólasveit 7.10.1931 - 20.10.2001. Bifreiðarstjóri, bóndi í Melbæ í Reykhólsveit 1959-1974. Síðast bús. í Garðabæ.
Útför Erlings fór fram frá Fossvogskirkju 26.3.2001 og hófst athöfnin klukkan 15.
Staðir
Réttindi
Erlingur stundaði nám við Héraðsskólann í Reykjanesi og við Héraðsskólann á Reykjum í Hrútafirði, stundaði síðan nám við Handavinnukennaraskóla og lauk prófi þaðan 1955.
Starfssvið
Erlingur kenndi tvo vetur við Vistheimilið í Breiðuvík, auk þess stundaði hann smíðar en starfaði lengst af sem vörubifreiðastjóri á eigin vegum í Reykhólasveit. Erlingur og kona hans stofnuðu nýbýlið Melbæ úr landi Bæjar 1959 og bjuggu þar til 1974. Þau fluttu til Reykjavíkur 1976 þar sem hann stundaði einnig vörubílaakstur. Erlingur varð fyrir slysi 1986 og hætti þá akstrinum. Hann hóf þá störf sem sölumaður hjá Húsasmiðjunni og starfaði þar til dauðadags.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans; Magnús Gunnlaugur Ingimundarson 6.6.1901 - 13.8.1982. Húsbóndi í Miðjanesi, Reykhólasókn, A-Barð. 1930. Bóndi á Bæ í Króksfirði, Reykhólahr., A-Barð. 1934-59 og um tíma á Kletti í Geiradal, síðast bús. í Reykjavík. Hreppstjóri í Reykhólasveit og kona hans; Jóhanna Kristín Hákonardóttir 16.8.1901 - 12.7.1937. Húsfreyja í Miðjanesi, Reykhólasókn, A-Barð. 1930. Húsfreyja á Bæ í Króksfirði, Reykhólahr., A-Barð.
Alystkini hans;
1) Sigríður Magnúsdóttir 22.5.1924 - 29.4.2005. Húsfreyja og ræstingarkona, síðast bús. í Reykjavík. Var í Miðjanesi, Reykhólasókn, A-Barð. 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945.
Fyrri maki Friðgeir Sveinsson kennari sem lést ungur og seinni maki Sigurður Sveinsson rafvirkjameistari sem er látinn og á hún fimm börn.
2) Lúðvík Jóhann Kristinn Magnússon 19.8.1925 -2.9.2003. Var í Miðjanesi, Reykhólasókn, A-Barð. 1930. Verkamaður, síðast bús. í Reykjavík. Hann á tvær dætur.
3) Arndís Kristín Magnúsdóttir 20.7.1927 - 30.5.2019. Verkstjóri og síðar forstöðukona í Reykjavík. Var í Miðjanesi, Reykhólasókn, A-Barð. 1930. Gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum, maki Stefán Guðlaugsson húsasmíðameistari sem er látinn og eru börn þeirra þrjú.
4) Hákon Magnús Magnússon 11.9.1933 - 25.12.1999. Byggingameistari. Síðast bús. í Reykjavík. var fyrst kvæntur Unni Jónsdóttur en síðar í sambúð með Sigurlín Ellý Vilhjálmsdóttur og átti hann sex börn.
5) Ingimundur Sigurður Magnússon 11.9.1933 - 21.8.1992. Bóndi á Bæ í Króksfirði, Reykhólahr., A-Barð. 1959-77. Hreppstjóri í Reykhólasveit. Síðast bús. á Seltjarnarnesi, maki Sjöfn Smith og eignuðust þau fjögur börn.
Hálfbræður Erlings eru;
6) Ólafur Jón Magnússon 20.3.1940 - 29.1.2013. Bóndi á Bæ í Króksfirði til 1972. Flutti til Reykjavíkur og starfaði lengst af hjá Skeljungi.
7) Gunnlaugur Magnússon, húsasmiður og öryggisvörður við Seðlabanka Íslands, búsettur á Seltjarnarnesi, kvæntur Guðríði Gýgju og eiga þau tvo syni.
Uppeldissystir Erlings er;
8) Hulda Pálsdóttir, húsmóðir í Hafnarfirði, fyrri maki Hafliði Guðmundsson sem lést ungur og eignuðust þau sex börn en seinni maki er Halldór Jónsson verslunarmaður.
Erlingur kvæntist 8.6. 1957 Ásdísi Helgu Höskuldsdóttur, f. 18.7. 1937, d. 13.6. 1991, húsmóður. Hún var dóttir Höskuldar Jóhannessonar, bílstjóra í Reykjavík og Kópavogi, og konu hans Guðbjargar Þórðardóttur húsmóður frá Firði í Múlasveit.
Erlingur og Helga eignuðust sjö börn. Þau eru:
1) Jóhanna, f. 7.1. 1957, býr í Kópavogi og á hún tvær dætur en sambýlismaður hennar er Páll Garðarsson.
2) Ragnar Sævar, f. 4.4. 1958, búsettur í Reykjavík og á hann þrjár dætur.
3) Höskuldur Geir, f. 7.10. 1960, búsettur í Reykjavík og á hann tvö börn.
4) Hinrik, f. 23.9. 1962, d. 23.11. 1989 og átti soninn Erling Bjarna.
5) Guðbjörg Erna, f. 14.11. 1964 búsett í Garðabæ, gift Marinó Pálmasyni og eiga þau tvo syni.
6) Ellen Ásdís, f. 4.8. 1970, búsett í London, sambýlismaður hennar er Sigursteinn Gunnarsson og eiga þau þrjár dætur.
7) María Erla, f. 8.1. 1972 búsett í Hafnarfirði, sambýlismaður hennar er Kristinn Guðmundsson og eiga þau tvo syni.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Maintained by
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 12.2.2021
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði
mbl 26.3.2001. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/633539/?item_num=1&searchid=567f4fc19b189558631a1e1f62fced74096c9325