Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        24.6.1922 -4.8.1987

        History

        Erlendur var fæddur í Bólstaðarhlið 24. júní 1922, sonur hjónanna Elísabetar Magnúsdóttur frá Kjartansstöðum í Skagafirði og Klemensar Guðmundssonar óðalsbónda í Bólstaðarhlíð. Þar ólst hann upp ásamt bræðrum sínum, Guðmundi og Ævari, og fósturbróður þeirra og frænda, Herbert Sigurðssyni. Uppvaxtarár þeirra munu hafa liðið við bústörfin og einhverja upplyftingu ef svo bar undir eins og títt varum börn og unglinga á þeim árum. Erlendur þótti nokkuð skapstór og óstýrilátur sem barn og unglingur en stilltist með árunum. Var fríður sýnum og framkoman einörð og geðfelld. Hafði gaman af að hreifa víni á góðum stundum og kunni vel með að fara. Hann leitaði sér ekki menntunar utan skyldunáms í barnaskóla. Gæddur var hann farsælum og hagnýtum gáfum og skrifaði fallega rithönd. Langar fjarverur frá heimaslóðum voru honum ekki að skapi. Bar órofatryggð til Bólstaðarhlíðar og sveitar sinnar. Það mun vart hafa hvarflað að honum að leita eftir öðru lífsstarfi en því sem jörðin og sveitin veitti og bjó sig undir það. Keypti hálfa Bólstaðarhlíð af föður sínum og fjölgaði skepnum. Erlendur kvæntist Þórönnu Kristjánsdóttur ættaðri úr Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði 3. okt. 1947 og hófu búskap á hálflendunni það sama ár. Þeim búnaðist strax vel. Byggðu íbúðarhús og skömmu síðar hlöðu við fjárhús þar upp á túninu. Bú skapur þeirra einkenndist af varfærnu öryggi í fjármálum og snyrtimennsku úti og inni svo á orði var haft. Skepnur voru ávallt vel fóðraðar og skiluðu góðum arði enda umgengnar af alúð og nærfærni manns, sem vel kunni til verka. Erlendur var víða kunnurfyrir hestamennsku og átti alltaf góða og fallega reiðhesta. Hann tók oft galdna fola af mönnum í tamningu og mun oftar en hitt hafa tekist að gera úr þeim meðfærilega reiðskjóta. Hestamennskan var hans líf og yndi. Félagsmálum sinnti hann lítt svo mér sé kunnugt. Starfaði þó af áhuga í Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps meðan heilsan entist. Hann hafði sterka og bjarta tenórrödd. Þau eignuðust tvo syni, Kolbein, sem nú er bóndi í Bólstaðarhlíð, kvæntur Sólveigu Friðriksdóttur frá Laugahvammi í Skagafirði, og Kjartan, bifvélavirkja á Sauðárkróki, kvæntur Stefaníu Stefánsdóttur frá Skriðu í Breiðdal. Erlendur og Þóranna slitu samvistir 1967 og fengu sonum sínum jörðina og búið í hendur.

        Places

        Bólstaðarhlíð A-Hún.

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Bóndi

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans; Klemenz Guðmundsson 14. mars 1892 - 8. júní 1986 Bóndi í Bólstaðarhlíð, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Bóndi, póstafgreiðslumaður, símstöðvarstjóri og kennari í Bólstaðarhlíð. Var á Botnastöðum, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957 og kona hans 17.6.1916; Elísabet Magnúsdóttir 27. apríl 1891 - 3. apríl 1964 Húsfreyja í Bólstaðarhlíð, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja í Bólstaðarhlíð, Bólstaðarhlíðarsókn, Hún. 1922.

        Bræður hans;
        1) Guðmundur Klemensson 9. janúar 1918 - 25. janúar 1926
        3) Guðmundur Magnús Klemenzson 18. febrúar 1927 - 24. desember 1998 Var í Bólstaðarhlíð, Bergstaðasókn, A-Hún. 1930. Kennari í Húnaveri í Bólstaðarhlíð og Varmahlíð í Skagafirði. Var í Bólstaðarhlíð, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Bólstaðarhlíðarhreppi 1994. Ógiftur barnlaus.
        4) Magnús Ævar Klemensson 28. apríl 1930 - 13. febrúar 2000 af slysförum. Var í Bólstaðarhlíð, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. á Dalvík. Kona hans 26.12.1954; Jónína Jónsdóttir 29. desember 1932 Var í Bólstaðarhlíð, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957.
        Uppeldisbróðir
        5) Herbert Sigurðsson 13. jan. 1921 - 5. feb. 2002. Fósturbarn í Bólstaðahlíð, Bergsstaðasókn, Hún. 1930. Húsasmíðasmeistari í Reykjavík.

        Kona hans 23.10.1947; Kristjánsdóttir 23. okt. 1926 - 14. jan. 2008. Var á Lýtingsstöðum, Mælifellssókn, Skag. 1930. Var í Bólstaðarhlíð, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. 1957. Verkakona og sjúkrahússtarfsmaður á Sauðárkróki.

        Börn þeirra;
        1) Kolbeinn, f. 2.6. 1948, kvæntur Sólveigu Friðriksdóttur, f. 5.1. 1952. Börn þeirra: a) Erlendur Ingi, f. 28.6. 1970, unnusta Christine Weinert, f. 21.11. 1982. b) Einar, f. 5.9. 1973, kvæntur Hafdísi Vilhjálmsdóttur, f. 18.3. 1972. Börn þeirra Atli, Alma og Dögun.
        2) Kjartan, f. 9.9. 1949, kvæntur Stefaníu Ósk Stefánsdóttur, f. 31.12. 1952. Börn þeirra: a) Arnar, f. 15.4. 1971, unnusta Sólveig Olga Sigurðardóttir, f. 31.12. 1973. Dóttir þeirra Katrín Sif. Sonur Arnars frá fyrra sambandi er Orri, dóttir Sólveigar frá fyrra sambandi Sunna Líf. b) Vignir, f. 10.3. 1976, unnusta Áslaug Helga Jóhannsdóttir, f. 9.1. 1975, börn þeirra Víkingur Ævar og Vigdís Kolka. c) Elísabet, f. 25.8. 1980, gift Páli Hlífari Bragasyni, f. 15.8. 1975. Synir þeirra Styrmir og Hrannar, sonur Páls frá fyrra sambandi Kristján Már.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Guðrún Guðmundsdóttir (1900-1984) Bergsstöðum (19.6.1900 - 26.10.1984)

        Identifier of related entity

        HAH04303

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        23.10.1947

        Description of relationship

        Erlendur var sm Kristínar dóttur Guðrúnar

        Related entity

        Ævar Klemenzson (1930-2000) Bólstaðarhlíð og Dalvík (28.4.1930 - 13.2.2000)

        Identifier of related entity

        HAH02192

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Ævar Klemenzson (1930-2000) Bólstaðarhlíð og Dalvík is the sibling of Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

        Dates of relationship

        28.4.1930

        Description of relationship

        Related entity

        Guðmundur Klemenzson (1927-1998) Bólstaðarhlíð (27.2.1927 - 24.12.1998)

        Identifier of related entity

        HAH01288

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Guðmundur Klemenzson (1927-1998) Bólstaðarhlíð is the sibling of Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

        Dates of relationship

        18.2.1927

        Description of relationship

        Related entity

        Þóranna Kristjánsdóttir (1926-2008) Bólstaðarhlíð (23.10.1926 - 14.1.2008)

        Identifier of related entity

        HAH02167

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Þóranna Kristjánsdóttir (1926-2008) Bólstaðarhlíð is the spouse of Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

        Dates of relationship

        23.10.1947

        Description of relationship

        þau skildu, börn þeirra 1) Kolbeinn, f. 2.7. 1948, kvæntur Sólveigu Ingu Friðriksdóttur, f. 5.1. 1952. 2) Kjartan, f. 9.9. 1949, kvæntur Stefaníu Ósk Stefánsdóttur, f. 31.12. 1952.

        Related entity

        Erlendur Guðmundsson (1897) Bólstaðarhlíð (29.3.1897 -)

        Identifier of related entity

        HAH03341

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Erlendur Guðmundsson (1897) Bólstaðarhlíð is the cousin of Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

        Dates of relationship

        24.6.1922

        Description of relationship

        föðurbróðir

        Related entity

        Erlendur Ingi Kolbeinsson (1970) (28.6.1970)

        Identifier of related entity

        HAH03345

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Erlendur Ingi Kolbeinsson (1970) is the grandchild of Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

        Dates of relationship

        28.6.1970

        Description of relationship

        Related entity

        Bólstaðarhlíð ([900])

        Identifier of related entity

        HAH00148

        Category of relationship

        hierarchical

        Type of relationship

        Bólstaðarhlíð is controlled by Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

        Dates of relationship

        1954

        Description of relationship

        1954-1967

        Related entity

        Elísabet Magnúsdóttir (1891-1964) Bólstaðahlíð (27.4.1891 - 3.4.1964)

        Identifier of related entity

        HAH03264

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Elísabet Magnúsdóttir (1891-1964) Bólstaðahlíð is the parent of Erlendur Klemensson (1922-1987) Bólstaðarhlíð

        Dates of relationship

        18.2.1927

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH01213

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 17.5.2017

        Language(s)

          Script(s)

            Maintenance notes