Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Böðvar Pétursson (1922-1999)
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
25.12.1922 - 27.8.1999
History
Böðvar Pétursson, verslunarmaður, Skeiðarvogi 99, Reykjavík, fæddist á Blönduósi 25. desember 1922.
Hann lést á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur 21. febrúar síðastliðinn, 76 ára að aldri.
Útför Böðvars fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Places
Hnjúkar: Pétursborg Blönduósi:
Legal status
Functions, occupations and activities
Böðvar vann verkamannavinnu á Blönduósi til 1942, þegar hann hóf störf hjá málningarvöruverksmiðjunni Júnó. Hann starfaði sem verslunarmaður hjá Bókaverslun Guðmundar Gamalíelssonar 19461949. Hann hóf störf hjá bókaútgáfunni Helgafelli 1949 og starfaði þar til ársins 1985 þegar útgáfan sameinaðist bókaútgáfunni Vöku. Hann vann hjá Vöku-Helgafelli frá 1985 til æviloka. Á þessum árum var Böðvar náinn samverkamaður Ragnars í Smára. Böðvar tók virkan þátt í félagsmálum. Hann tók þátt í stofnun Landssambands íslenskra verzlunarmanna og sat í fyrstu stjórn þess og lengi síðar. Hann sat í sambandsstjórn ASÍ um árabil. Árið 1978 var Böðvar kosinn í stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og átti þar sæti til dauðadags. Þegar hann lést var hann ritari stjórnar, en hann átti einnig sæti í stjórn sjúkrasjóðs félagsins og var formaður orlofssjóðs. Böðvar sat í þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur frá 19481978. Hann sat í stjórn Bandalags æskulýðsfélaga Reykjavíkur í mörg ár. Hann var forseti Sambands ungra sósíalista í tvö ár. Hann sat í stjórn Knattspyrnufélagsins Fram um árabil, átti sæti í stjórn KRON í 12 ár, sat í stjórn Félags íslenskra bókaútgefenda 1966 1988 og í stjórn Ferðafélags Íslands 19761985. Böðvar var heiðursfélagi í VR og í Félagi íslenskra bókaútgefenda.
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans voru Guðrún Soffía Bogadóttir, húsmóðir, f. 3.október 1876, d. 23.desember 1938, og maður hennar 24.2.1910 Pétur Guðmundsson, bóndi og verkamaður frá Hnjúkum við Blönduós, f. 17. júní 1875, d. 6.ágúst 1955. Sá sem Pétursborg er kennd við, bjó þar 1930 og 1941
Systkini Böðvars voru:
1) Guðmundur Pétursson f. 16. apríl 1910 - 5. nóvember 1978, Blönduósi 1930. Verkstjóri og verkamaður. Síðast bús. í Reykjavík.
2) Drengur Pétursson b. 20. mars 1911 - 20. mars 1911. Andvana fæddur.
3) Margrét Pétursdóttir f. 5.12.1912 - 15.4.2002. Eiginmaður Margrétar var Þorvaldur Guðnason Stefánsson frá Akureyri, f. 24. maí 1914 - 16.1967 Akureyri.
4) Ögn Pétursdóttir f. 11. október 1914 - 3. janúar 1988 verkakona og húsfreyja á Siglufirði. Vetrarstúlka á Blönduósi 1930. Síðast bús. í Hafnarfirði.
Böðvar kvæntist 23.11. 1946 eiginkonu sinni, Halldóru Jónsdóttur, f. 27. ágúst 1920 - 16. nóvember 2000 Var á Bjarnastöðum, Bessastaðasókn, Gull. 1930.
Börn þeirra eru:
1) Guðrún Auður, sjúkraliði, f. 11.7. 1946. Fyrri maður hennar er Kristinn Magnússon, f. 18.1. 1942. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: Magnús, f. 17.11. 1963, Dóra Birna, f. 20.1. 1969, Böðvar Örn, f. 24.3. 1970. Sambýlismaður Guðrúnar Auðar er Sigurður Elísson, f. 13.12. 1941.
Börn Sigurðar Elí með frænku Guðrúnar Auðar, dóttur Margrétar systur Böðvars eru; Elís Þór SIgurðsson, f. 12.8.1965, og Jóna Sigurðardóttir, f. 6.3.1967
2) Pétur, skólastjóri, f. 18.8. 1948. Maki Guðbjörg Úlfsdóttir, f. 9.11. 1955. Börn þeirra eru: Kolbrún Erla, f. 1.3. 1973, Hjördís, f. 4.7. 1975, Böðvar, f. 15.12. 1985. Dóttir Péturs er Íris Brynja, f. 28.7. 1972.
3) Margrét, kennari, f. 8.5. 1952. Maki: Sigurgeir Sveinbergsson, f. 11.3. 1951. Börn þeirra eru: Pétur, f. 2.7. 1970, Halla Dóra, f. 23.6. 1977, Sigmar Ingi, f. 10.3. 1989, Sævar Ingi, f. 10.3. 1989.
Böðvar átti tólf barnabarnabörn.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 27.8.2017
Language(s)
- Icelandic