Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Björney Hallgrímsdóttir (1904-1995)
Parallel form(s) of name
- Björney Jakobína Hallgrímsdóttir (1904-1995)
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
26.4.1904 - 22.4.1995
History
Björney Jakobína Hallgrímsdóttir fæddist 26.4.1904 að Baldursheimi í Mývatnssveit. Hún lést á Landspítalanum laugardaginn 22. apríl 1995.
Útför Björneyjar fer fram frá Fossvogskapellu í dag 4.5.1995 og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Places
Baldursheimur í Mývatnssveit. Urriðaá á Mýrum. Reykjavík. Hafnarfirði.
Legal status
Björney nam við Kvennaskólann á Blönduósi 1920-1921 og 1922-1923, en tók síðan kennarapróf frá Kennaraskólanum í Reykjavík 1925.
Functions, occupations and activities
Hún stundaði heimiliskennslu á Urriðaá á Mýrum 1925-1926, kenndi í Nauteyrarhreppi N-Ísafjarðarsýslu 1926-1927 og var við smábarnakennslu í Reykjavík 1929-1930, og starfaði jafnframt við verslunarstörf í Reykjavík 1927-1929.
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hennar voru Hallgrímur Jónsson sjómaður í Holti í Mjóafirði, f. 7.10.1875, d. 6.6.1910 og Sigríður Björnsdóttir, f. 11.11. 1881, d. í Hafnarfirði 5.7.1959. Björney giftist 15.5.1930 eftirlifandi manni sínum Jóni Jónssyni f. 25.9.1908 - 13.8.2002 sem lengi var kenndur við útgerðarfyrirtækið Akurgerði í Hafnarfirði, síðar framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins í Innri-Njarðvík.
Faðir Jóns var Jón bóndi á Ekru á Rangárvöllum, síðar kaupmaður í Versluninni Rangá á Hverfisgötu í Reykjavík, síðan flutt í Skipasund 57 þar sem verslunin er enn. Björney og Jón bjuggu lengst af á Öldugötu 12 í Hafnarfirði eða fram til 1991 er þau keyptu sér íbúð í Sunnuhlíð í Kópavogi.
Þau eignuðust þrjú börn:
1) Þórhallur Þrastar, verkfræðingur, fæddur 7.2.1931. Hann á sex börn og fimmtán barnabörn. Kona hans er Elín Guðjónsdóttir og búa þau í Kópavogi. Þórhallur var bæjarverkfræðingur í Vestmannaeyjum 1960-1964.
2) Steinunn, fædd 6.11.1933, á þrjú börn og tvö barnabörn. Maður hennar er Þorvaldur S. Þorvaldsson. Þau búa í Reykjavík.
3) Hallbera Kolbrún, fædd 14.5.1944. Hún á eina dóttur og þrjú barnabörn. Hennar maður er Pétur Axelsson og búa þau á Álftanesi.
General context
Relationships area
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 13.5.2017
Language(s)
- Icelandic