Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Björg Karitas Þorláksdóttir Blöndal (1874-1934) dr.phil
Parallel form(s) of name
- Björg Caritas Þorláksdóttir Blöndal (1874-1934) dr.phil
- Björg C Thorlaksson (1874-1934) dr.phil
- Björg Karitas Þorláksdóttir Blöndal dr.phil
- Björg Caritas Þorláksdóttir Blöndal dr.phil
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
30.1.1874 - 25.2.1934
History
Björg Karítas (Caritas) Þorláksdóttir Blöndal 30. janúar 1874 - 25. febrúar 1934. Húsfreyja í Kaupmannahöfn, síðar dr.phil. við Sorbonneháskóla í París. Var í Vesturhópshólum, Vesturhópshólasókn, Hún. 1880.
Places
Vesturhópshólar; París; Kaupmannahöfn;
Legal status
Dr. phil. Fyrsta íslenska konan til að ljúka doktorsnámi. 17. júní 1926 varði hún doktorsritgerð sína í sálfræði við Sorbonne-háskóla og hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu sama ár.
Functions, occupations and activities
Starfaði ásam Sigfúsi manni sínum að Orðabók Sigfúsar Blöndal, talið er þó að bókin hafi að mestu verið hennar verk.
Mandates/sources of authority
Ó, þrautirnar unnar, sem Skapanorn mér skóp
er skráfesti´ hún urðarrúnir mínar!
Þó orðabókin þegi um anda míns óp
um aldir þögul ber hún minjar sínar.
Internal structures/genealogy
Foreldrar hennar; Þorlákur Símon Þorláksson 28. mars 1849 - 22. nóvember 1908. Var á Undirfelli, Undirfellssókn, Hún. 1860. Grashúsmaður í Undirfelli, Undirfellssókn, Hún. 1870. Bóndi og hreppstjóri í Vesturhópshólum, Vesturhópshólasókn, Hún. 1880 og kona hans 26.10.1870; Margrét Jónsdóttir 27. nóvember 1835 - 15. september 1927. Húsmóðir í Vesturhópshólum, Vesturhópshólasókn, Hún. 1880. Var í Reykjavík 1910.
Systkini Bjargar
1) Margrét María Þorláksdóttir 12. apríl 1872 - 26. febrúar 1881.
2) Þorlákur Magnús Þorláksson 19. nóvember 1875 - 12. apríl 1942. Bóndi á Blikastöðum, Lágafellssókn, Kjós. 1930. Bóndi á Blikastöðum í Mosfellssveit.
3) Jón Þorláksson 3. mars 1877 - 20. mars 1935. Verkfræðingur og ráðherra. Húsbóndi í Reykjavík 1910. Verkfræðingur og kaupmaður í Bankastræti 11, Reykjavík 1930. Forsætisráðherra. Kjördætur: Anna Margrét, f. 21.7.1915 og Elín Kristín, f. 18.11.1920, kona hans 10.8.1904; Ingibjörg Frederick Claessen Þorláksson 13. desember 1878 - 7. ágúst 1970 Húsfreyja í Reykjavík
Maður Bjargar 1903 var; Sigfús Benedikt Björnsson Blöndal 2. október 1874 - 19. mars 1950 Skáld, orðabókarritsjóri og bókavörður í Kaupmannahöfn. Var á Heggstöðum, Melstaðarsókn, Hún. 1880. Hún tók þá nafnið Blöndal en eftir að þau Sigfús skildu 1923 tók hún upp nafnið Björg C. Þorláksson. Björg birti fjölda þýðinga á ýmsum greinum í tímaritum á borð við Skírni. Ásamt Sigfúsi manni sínum vann hún að gerð dansk-íslenskrar orðabókar. Foreldrar Sigfúsar voru; Björn Lúðvíksson Blöndal 14. nóvember 1847 - 29. mars 1887 Bóndi á Heggstöðum, Melstaðarsókn, Hún. 1880. Bóndi, smiður og sundkennari. Drukknaði á Viðeyjarsundi og kona hans 4.10.1873; Guðrún Blöndal Sigfúsdóttir 27. apríl 1847 - 5. janúar 1925 Húsfreyja á Heggstöðum, Melstaðarsókn, Hún. 1880. Húsfreyja á Snæringsstöðum og víðar í Vatnsdal.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Björg Karitas Þorláksdóttir Blöndal (1874-1934) dr.phil
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the spouse of
Björg Karitas Þorláksdóttir Blöndal (1874-1934) dr.phil
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the cousin of
Björg Karitas Þorláksdóttir Blöndal (1874-1934) dr.phil
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 11.12.2017
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði
Íslendingabók
Föðurtún bls. 333, 487
Blöndalsætt