Ásthildur Teitsdóttir (1921-2006) Hjarðarfelli Snæfellsnesi

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Ásthildur Teitsdóttir (1921-2006) Hjarðarfelli Snæfellsnesi

Hliðstæð nafnaform

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

9.4.1921 - 4.8.2006

Saga

Ásthildur Teitsdóttir fæddist í Reykjavík 9. apríl 1921. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 4. ágúst 2006. Ásthildur og Gunnar ráku búskap á Hjarðarfelli frá 1942 til 1989, hin síðari ár í samstarfi við syni sína Guðbjart og Högna og eiginkonur þeirra. Þau áttu annað heimili frá árinu 1977 á Kaplaskjólsvegi 39 í Reykjavík en voru heima á Hjarðarfelli hvenær sem tækifæri gafst. Ásthildur dvaldi á hjúkrunarheimilinu Skjóli frá haustinu 2003.
Ásthildur verður jarðsungin frá Fáskrúðarbakkakirkju í dag 12. ágúst 2006 og hefst athöfnin klukkan 14.

Staðir

Reykjavík: Böðmóðsstaðir 1921: Eyvindartunga Laugardal 1923: Hjarðarfelli Snæfellsnes. Reykjavík.

Réttindi

Ásthildur nam við Héraðsskólann á Laugarvatni 1937-38. Hún stundaði nám í saumum í Reykjavík veturinn 1940-41 og við Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði veturinn 1941-42.

Starfssvið

Húsfreyja: Ásthildur var félagi í Kvenfélaginu Liljunni í Miklaholtshreppi og formaður þess um skeið. Þá sat hún í stjórn Orlofsnefndar húsmæðra á Snæfellsnesi í nokkur ár.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Ásthildur var dóttir hjónanna Sigríðar Jónsdóttur, húsfreyju, sem var fædd í Stíflisdal í Þingvallasveit 8. mars 1894, d. 14. sept. 1969, og Teits Eyjólfssonar, bónda og síðar oddvita og framkvæmdastjóra í Hveragerði, sem var fæddur á Háteigi í Garðahreppi 12. júlí 1900, d. 11. júlí 1966. Hún var næstelst sjö systkina. Hin eru:
1) Ásbjörg, f. 21. okt. 1918, d. 15. júní 1994, gift Eiríki Eyvindssyni, f. 9. maí 1917, d. 11. jan. 2000;
2) Jón, f. 26. apríl 1923, d. 8. apríl 2004, kvæntur Ingunni Arnórsdóttur, f. 16. maí 1930, d. 21. júní 1961;
3) Eyjólfur, f. 30. júlí 1925, d. 4. sept. 1993, kvæntur Soffíu Ármannsdóttur, f. 15. mars 1928, d. 20. júlí 2002;
4) Baldur, f. 28. ágúst 1928, d. 5. júní 1992, kvæntur Sigurveigu Þórarinsdóttur, f. 9. mars 1919;
5) Ársæll, f. 25. janúar 1930, kvæntur Guðrúnu Sigurjónsdóttur, f. 18. júní 1924;
6) Hallbjörg, f. 18. mars 1933, d. 30. mars 1998, gift Helga Jónssyni, f. 19. febr. 1928.
Á Laugarvatni kynntist hún eiginmanni sínum, Gunnari Guðbjartssyni frá Hjarðarfelli á Snæfellsnesi. Gunnar var fæddur 6. júní 1917 og lést 17. mars 1991, sonur hjónanna Guðbröndu Þorbjargar Guðbrandsdóttur, f. 22. nóvember 1884, d. 19. ágúst 1957, og Guðbjarts Kristjánssonar, bónda og hreppstjóra, f. 18. nóvember 1878, d. 9. september 1950. Gunnar var bóndi á Hjarðarfelli um árabil og formaður Stéttarsambands bænda í 18 ár, og síðar framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Þau giftu sig á 25 ára afmæli Gunnars, hinn 6. júní 1942.
Börn þeirra eru:
1) Guðbjartur, bóndi á Hjarðarfelli, f. 7. júlí 1943, kvæntur Hörpu Jónsdóttur, f. 1.4. 1954. Þeirra börn eru: a) Árni, f. 1982; b) Gunnar, f. 1984; og c) Sigríður, f. 1988.
2) Högni, bóndi á Hjarðarfelli, f. 20. október 1944, kvæntur Báru Katrínu Finnbogadóttur, f. 6.5. 1958. Þeirra börn eru: a) Indriði, f. 1976, kvæntur Rakel Rögnvaldsdóttur og eiga þau Ester; b) Heiðrún, f. 1978, sambýlismaður Guðmundur Gunnarsson, eiga þau Sunnu Dögg og Elísabetu; og c) Gunnar, f. 1981, sambýliskona hans er Rannveig Guðmundsdóttir og eiga þau Steinar Braga og Snædísi Lilju.
3) Sigríður, BA., húsmóðir í Frakklandi, f. 22. mars 1946, gift Michel Sallé, f. 11.1. 1943. Þeirra börn eru: a) Silja, f. 1970; b) Edda, f. 1975; og c) Jón, f. 1982.
4) Hallgerður, lögfræðingur, f. 13. desember 1948, gift Sturlu Böðvarssyni, f. 23.11. 1945. Þeirra börn eru: a) Gunnar, f. 1967, sambýliskona Guðrún Margrét Baldursdóttir, og eiga þau Borghildi; b) Elínborg, f. 1968, gift Jóni Ásgeiri Sigurvinssyni, og eiga þau Hallgerði Kolbrúnu og Sturlu; c) Ásthildur, f. 1974, d) Böðvar, f. 1983; og e) Sigríður Erla, f. 1992.
5) Teitur, efnaverkfræðingur, f. 30. mars 1954, kvæntur Guðbjörgu Björnsdóttur Bjarman, f. 14.9. 1954, d. 14. desember 1991. Þeirra börn eru: a) Björn, f. 1981, sambýliskona Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir; b) Ásthildur, f. 1985; og c) Baldur, f. 1990. Sambýliskona Teits er Lilja Guðmundsdóttir, f. 18.9. 1954, hennar börn eru Gerhard Olsen, f. 1977, kvæntur Söndru Ósk Sigurðardóttur, og Andrea Olsen, f. 1980, gift Einari Erni Ævarssyni. Sonur þeirra er Alexander.
6) Þorbjörg, bókasafnsfræðingur, f. 23. nóvember 1961, gift Erlendi Steinþórssyni, f. 3.10. 1961. Þeirra börn eru: a) Atli Þór, f. 1987; b) Elísabet, f. 1992; og c) Rannveig, f. 1998.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Benedikt Þórðarson Gröndal (1899-1984) Verkfræðingur í Reykjavík (27.8.1899 - 11.9.1984)

Identifier of related entity

HAH02588

Flokkur tengsla

fjölskylda

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01093

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Lágmarks

Skráningardagsetning

GPJ 13.5.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir