Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Aðalheiður Jóhannesdóttir (1931-1997) píanókennari
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
9.2.1931 - 15.6.1997
History
Aðalheiður Jóhannesdóttir fæddist í Reykjavík 9. febrúar 1931. Hún lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 15. júní 1997. . Aðalheiður lauk prófi frá Verslunarskóla Íslands 1949. Hún stundaði jafnframt tónlistarnám í píanóleik, síðast við Tónlistarskólann í Reykjavík, og kenndi síðar píanóleik um nokkurra ára skeið. Haukur og Aðalheiður bjuggu fyrstu hjúskaparárin í Svíþjóð þar sem Aðalheiður vann við skrifstofustörf. Þau fluttust heim árið 1957. Aðalheiður tók próf sem leiðsögumaður ferðamanna árið 1973. Auk húsmóðurstarfa vann hún við ferðaleiðsögn í 5 ár, en var síðan skrifstofumaður, lengst af sem fulltrúi á Orkustofnun. Aðalheiður var um árabil félagi í International Training in Communication og einn af stofnfélögum ITC-deildarinnar Kvists. Útför Aðalheiðar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag 26. júní 1997 og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Places
Reykjavík.
Legal status
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hennar voru Jóhannes Nordal Þorsteinsson, f. 18. október 1905 á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, d. 12. júní 1937, iðnrekandi í Reykjavík, og Anna Gísladóttir, f. 26. apríl 1906 í Stóradal í Svínahreppi, Austur-Húnavatnssýslu, d. 27. desember 1993, húsmóðir og starfsstúlka í Reykjavík.
Systir Aðalheiðar er;
1) Jóhanna, tæknifræðingur, f. 28. nóvember 1937. Maður hennar Þór Jakobsson
Aðalheiður giftist Hauki Pálmasyni, rafmagnsverkfræðingi, aðstoðarrafmagnsstjóra, 17. júlí 1954. Hann er f. 7. febrúar 1930 í Reykjavík. Þau eignuðust þrjú börn:
1) Anna Soffía, rafmagnsverkfræðingur og prófessor, f. 7. júní 1958. Hún er gift Þorgeiri Óskarssyni, sjúkraþjálfara, f. 8. mars 1955. Þeirra börn eru Haukur Óskar, f. 6. desember 1992, og Margrét Aðalheiður, f. 11. maí 1996,
2) Jóhannes, viðskiptafræðingur, fjárhagsáætlunarfulltrúi Reykjavíkurborgar, f. 11. nóvember 1963,
3) Helga, lögfræðingur, fulltrúi sýslumannsins í Vestmannaeyjum, f. 18. febrúar 1969. Hennar maður er Hafþór Þorleifsson, þjónustu- og verðbréfafulltrúi í Íslandsbanka í Vestmannaeyjum, f. 7. nóvember 1967
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the child of
Aðalheiður Jóhannesdóttir (1931-1997) píanókennari
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Aðalheiður Jóhannesdóttir (1931-1997) píanókennari
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the spouse of
Aðalheiður Jóhannesdóttir (1931-1997) píanókennari
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 12.5.2017
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði
Íslendingabók
26.6.1997. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/339408/?item_num=10&searchid=b30afce70611a03ed668d4c4d7a93dda1a2032b0