Álfþór Jóhannsson (1933) fulltrúi Seltjarnarnesi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Álfþór Jóhannsson (1933) fulltrúi Seltjarnarnesi

Parallel form(s) of name

  • Álfþór Brynjarr Jóhannsson (1933) fulltrúi Seltjarnarnesi

  • Álfþór Brynjarr Jóhannsson fulltrúi Seltjarnarnesi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      12.1.1933 -

      History

      Álfþór fæddist á Siglufirði og ólst þar upp og á Seyðisfirði til tíu ára aldurs en flutti þá með foreldrum sínum til Reykjavíkur og bjó þar lengst af til 1969 er hann flutti á Seltjarnarnesið.

      Places

      Siglufjörður; Seyðisfjörður; Reykjavík; Seltjarnarnes:

      Legal status

      Stúdentsprófi frá VÍ 1953:

      Functions, occupations and activities

      Hann var fulltrúi hjá Innflutningsskrifstofunni til 1960, aðalbókari Tóbakseinkasölu ríkisins 1960-61, fulltrúi hjá Ríkisendurskoðun 1961-66, skrifstofustjóri hjá Fosskrafti við Búfellsvirkjun 1966-69, skrifstofustjóri Heildverslunar Alberts Guðmundssonar 1969-73, aðalbókari Seltjarnarnesshrepps frá 1973 og hefur verið bæjarritari Seltjarnarnesshrepps frá 1976. Álfþór sat í stjórn Gróttu 1971-73 og 1978-82 og sat í stjórn UMSK 1980-82.

      Mandates/sources of authority

      Foreldrar hans fórust af slysförum 23.10.1963, eftirfarandi minningarljóð er eftir Hjört Kristmundsson (1907-1983);

      Silfruð voru hjónin,
      en ást þeirra ung.
      Þau aldurtila biðu,
      og sorgin er þung.
      Þeim var ekki skapað að skilja.

      Ung þau bundust tryggðum
      og ást þeirra var heit.
      Enginn skyldi rjála
      við tveggja blómareit.
      Þeim var ekki skapað að skilja.

      Af lundi þeirra ásta
      liljur spruttu tvær,
      yndisfagrar dætur
      með augun djúp og skær.
      Þeim var ekki skapað að skilja.

      Sólin hló í heiði
      og sex liðu ár.
      Þá fölnaði önnur liljan
      og luktust hennar brár.
      Systrunum var skapað að skilja.

      Til eru lífgrös,
      sem lækna ofurmein.
      Þá eldsár var treginn
      þau eignuðust svein.
      Þeim var ekki skapað að skilja.

      Lífið þeim færði
      lítinn augastein.
      Og liljan önnur spratt
      vo f ögur og hrein.
      Þeim var ekki skapað að skilja.

      Silfruð voru hjónin,
      en ást þeirra ung,
      þau aldurtila biðu
      og sorgin er þung.
      Þeim var ekki skapað að skilja.

      Lesbók Morgunblaðsins, 42. tölublað (27.11.1966), Blaðsíða 12 http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3290390

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans; Jóhann Frímann Guðmundsson 14. jan. 1899 - 23. okt. 1966. Fulltrúi í Reykjavík. Verzlunarmaður á Siglunesi, Siglufirði 1930 og kona hans; Þóra Aðalbjörg Jónsdóttir 23. ágúst 1895 - 23. okt. 1966. Var í Kirkjubæ, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Siglunesi, Siglufirði 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Skáld frá Kirkjubæ.
      Systir Þóru var; Einara Andrea Jónsdóttir (1902-1986).

      Systur Álfþórs;
      1) Álfhildur Helena Jóhannsdóttir 21. ágúst 1926 - 14. nóv. 1932. Var á Siglunesi, Siglufirði 1930.
      2) Brynhildur Hjördís Jóhannsdóttir 22. ágúst 1926 - 22. júlí 2006. Var á Siglunesi, Siglufirði 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Maður hennar 1946; Albert Sigurður Guðmundsson 5. okt. 1923 - 7. apríl 1994. Var á Óðinsgötu 28 b, Reykjavík 1930. Nemi í Reykjavík 1945. Knattspyrnumaður, síðar sendiherra og ráðherra 1983-87. Síðast bús. í Reykjavík.

      Kona Álfþórs 6.10.1956; Björg Bjarnadóttir 7.7.1932. Faðir hennar Bjarni Björnsson gamanleikari.

      Börn þeirra;
      1) Þóra Björg, f. 19.9. 1962, húsmóðir á Seltjarnarnesi, gift Kjartani Felixsyni húsasmíðameistara og eiga þau fimm börn;
      2) Bergur Brynjar, f. 20.7. 1964, útflytjandi, búsettur í Vogum á Vatnsleysuströnd, kvæntur Svanborgu Svavarsdóttur, þjónustufulltrúa hjá SPK, og eiga þau fjögur börn og eitt barnabarn;
      3) Jóhann Frimann, f. 24.9. 1968, píanó- og sembalsmiður, búsettur á Seltjarnarnesi, og á hann þrjú börn.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Kirkjubær á Norðurárdal ((1900))

      Identifier of related entity

      HAH00682

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Móðir hans var þaðan

      Related entity

      Brynhildur Jóhannsdóttir (1926-2006) Reykjavík (22.8.1926 -)

      Identifier of related entity

      HAH06131

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Brynhildur Jóhannsdóttir (1926-2006) Reykjavík is the sibling of Álfþór Jóhannsson (1933) fulltrúi Seltjarnarnesi

      Dates of relationship

      12.1.1933

      Description of relationship

      Related entity

      Einara Andrea Jónsdóttir (1902-1986) (8.2.1902 - 27.3.1986)

      Identifier of related entity

      HAH03135

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Einara Andrea Jónsdóttir (1902-1986) is the cousin of Álfþór Jóhannsson (1933) fulltrúi Seltjarnarnesi

      Dates of relationship

      12.1.1933

      Description of relationship

      Einara var móðursystir hans.

      Related entity

      Þóra Jónsdóttir (1895-1966) skáldkona Siglunesi, frá Kirkjubæ í Norðurárdal (23.8.1895 - 23.10.1966)

      Identifier of related entity

      HAH06452

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þóra Jónsdóttir (1895-1966) skáldkona Siglunesi, frá Kirkjubæ í Norðurárdal is the parent of Álfþór Jóhannsson (1933) fulltrúi Seltjarnarnesi

      Dates of relationship

      12.1.1933

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH03840

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 10.8.2019

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        Maintenance notes