Eining 06839b - Kvöldvaka í torfbæ

Original Stafræn eining not accessible

Auðkenni

Tilvísunarkóði

IS HAH 2018/036-D-06839b

Titill

Kvöldvaka í torfbæ

Dagsetning(ar)

  • (1940) (Sköpun)

Þrep lýsingar

Eining

Umfang og efnisform

Teikning
1 ljósmynd, pappírskópía. Skannað í tiff.

Samhengi

Nafn skjalamyndara

(13.2.1949 - 25.6.2018)

Varðveislusaga

Um aðföng eða flutning á safn

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Grisjun, eyðing og áætlun

Viðbætur

Skipulag röðunar

Skilyrði um aðgengi og not

Skilyrði er ráða aðgengi

Skilyrði er ráða endurgerð

Tungumál efnis

Leturgerð efnis

Athugasemdir um tungumál og letur

Umfang og tæknilegar þarfir

Leiðarvísir

Tengd gögn

Staðsetning frumrita

Staðsetning afrita

Tengdar einingar

Related descriptions

Athugasemdir

Annað auðkenni

Aðgangsleiðir

Staðir

Nöfn

Genre access points

Um lýsinguna

Lýsinganúmer

GPJ

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Dates of creation revision deletion

GPJ skráning 30.6.2020

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemd skjalavarðar

Hefðbundnar kvöldvökur hófust yfirleitt að haustinu þegar daginn tók að stytta þannig að kveikja þurfti vinnuljós á kvöldin og var þá gjarnan talað um að setjast að eða að kveikja. Eftir að sláturtíð lauk á haustin tók ullarvinnan við og sat þá fólk inni og kembdi ull, spann, óf vaðmál og prjónaði föt, en verkefnin voru bæði mörg og tímafrek. Vökunum lauk svo á vorin þegar daginn tók aftur að lengja. Þær vinnustundir sem bættust við sólarhringinn með kvöldvökunum voru dýrmætar á sveitaheimilunum, en þær voru ekki síður mikilvægar samverustundir heimilisfólksins þar sem allir komu saman í baðstofunni, hjálpuðust að við ýmis störf og skemmtu sér við lestur og leiki. Hinar árstíðabundnu vökur í vetrarmyrkrinu höfðu því einnig það hlutverk að létta fólki lundina yfir dimmustu mánuðina.
Vinna og skemmtun í rökkrinu.

Á kvöldvökunum höfðu allir sín verk að vinna og börn höfðu ekki síður hlutverki að gegna en þeir fullorðnu. Í harðri lífsbaráttu skipti máli að börnum væri snemma kennt að vinna og börn niður í fimm til sex ára aldur voru vanin við vinnu, yfirleitt létta ullarvinnu og prjónaskap til að byrja með. Smátt og smátt breyttust verkin og jukust með aldri barnanna og fólst í þeim sú þjálfun og lærdómur sem nauðsynlegur var til að þau gætu tekið við búrekstrinum einhvern daginn. Enginn vinnukraftur mátti vera ónotaður, fjölbreytt verkleg kunnátta var álitin lífsskilyrði og börnum því fyrir bestu að venjast sem fyrst að taka þátt í flestum eða öllum störfum sem unnin voru á heimilinu eftir því sem kraftar þeirra leyfðu. Árangurinn var sá að um fermingu voru flest börn fær til allrar vinnu sem á heimilinu var unnin. Þrátt fyrir að nokkur kynjaskipting væri á störfum þá lærðu stúlkur yfirleitt líka karlastörf og drengir kvennastörf og voru prjónaskapur og vefnaður til dæmis ekki síður karlmannsverk. Enda hefði varla gengið að reka heimili þar sem hætta var á að fólki félli einfalt verk úr hendi vegna kunnáttuleysis.

Auk þjálfunar í bústörfum var börnum einnig kennt að lesa og skrifa heima við og á vetrum fór sú fræðsla fram á kvöldvökunum. Yfirleitt hófst kennslan um 5-7 ára aldur og voru allt fram á síðustu öld til dæmi þess að börn hefðu alla sína fræðslu frá foreldrum og hefðu aldrei sótt formlega kennslu í skóla. Húslestur var fastur liður á mörgum heimilum og voru þá lesnar upp skáldsögur, fornsögur, lesin blöð og sagðar þjóðsögur, en kvöldvökur voru víða einu tækifæri fólks til að komast í snertingu við bókmenntir. Einnig voru oft kveðnar rímur eða kveðist á. Á kvöldvökunum lifði menningararfurinn þegar þjóðsögurnar sem gengu frá manni til manns voru fluttar og lærðar af næstu kynslóð. Góðir sögumenn færðu sögurnar í lifandi búning og kenndu ekki bara texta sagnanna heldur einnig frásagnartæknina. Sú menning sem baðstofan geymdi og lifnaði við í vetrarmyrkrinu varðveitti ekki aðeins munnlegan arf fortíðar, hún fóstraði einnig þá sköpunargáfu sem braust síðar út í bókmenntaverkum og er enn eitt af höfuðeinkennum þjóðarinnar.

Eftir því sem þéttbýlið óx á kostnað sveitanna, fólki fækkaði á bæjum og vinnuálag minnkaði hætti að vera þörf fyrir kvöldvökur. Þær lögðust smám saman af með baðstofulífinu og gamla sveitasamfélaginu. Framfarir og aukin velmegun minnkuðu þörfina fyrir kvöldvinnu, og útvarp og síðar sjónvarp tóku við sem skemmtiefni. Stærri og betri húsakynni urðu til þess að fólk fjarlægðist hvert annað inni á heimilunum og smám saman hvarf sú kynslóð sem ólst upp í baðstofum. Þó gamla kvöldvakan hafi lagst af vegna framfara og fæstir vildu vera án þeirra nútímaþæginda sem hafa komið í staðinn þá er ljóst að vökurnar voru gæðastundir þar sem fólk kom saman, lærði, lék og skemmti hvert öðru um leið og það hjálpaðist að við heimilisverkin.

Stafræn eining (Master) rights area

Stafræn eining (Tilvísun) rights area

Stafræn eining (Smámynd) rights area

Aðföng

Related subjects

Tengdir einstaklingar og stofnanir

Related genres

Tengdir staðir