Nokkur Örnefni á landslaginu.
Landið er einnig nefnt ásar. Húnastaðasandur, Skinnastaðasandur og Flatir. Innan við Brandanes var Akursflugvöllur, þar uppaf eru miklir jökulruðningar sem nefnast Akurshólar. Nýr flugvöllur er á Hjaltabakkamóum Ásarnir eru talið að austan; Holtsbunga - Breiðás - Bæjarás - Meðalheimsbunga - Orrastaðaás. Ofan vegar eru Giljármelar Viða Sauðanes er Sauðanesflóinn Sunnan Hnjúkanna er Skýdalur Köldukinnarháls er á milli Laxárvatns og Blöndu Vestan við Ásamót er er Smyrlabergsbungan en austan vegar er Köldukinnarhólar, tilorðnir vegna framhlauos úr Langadalsfjalli Milli Fremri-Laxár og Laxárvatns er Hafrans lyngivaxið og nær að Hafratjörn skammt vestan Svínvetningabrautar. Kagaðarhólsbergið ber hæst austan vegar, þar sunnar er Hólsdalurinn landamörk Torfalækjarhrepps og Svínavatnshrepps.
Torfalækjarhreppur. Kolkumýrar
Torfalækjarhrepur hinn forn lá vestan Blöndu frá Svínavatnshreppi allt til sjávar og vestur í Húnavatn. Árið 1914 var Blönduóshreppur stofnaður og urðu þá mörk hreppsins frá Draugagili og austur í Fálkanöf við Blöndu. Árið 1931 keypti Blönduóshreppur Hnjúka og teljast þeir síðan til Blönduóss. Mörk Torfalækjarhrepps að vestan liggja um Húnavatn og áfram eins og segir í ´lýsingu Sveinsstaðahrepps. Sauðadalur tilheyrir hreppnum, síðan eru mörkin frá vesturenda Svínavatns, eftir vatninu að Fremri Laxá og fylgja henni að landamerkjum Kagaðarhóls og Tinda. Svo um Hafratjörn sunnanverða og Hóladala að Blöndu.
Í Torfalækjarhreppi áður til 1914, nú Blönduósbær.
til 1914 sameiginleg landamörk við Blöndu
Sameiginleg landamörk
Sameiginleg landamörk við Sauðadal
Sameiginleg landamörk við Svínavatn og Tinda