Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Gunnlaug Jónsdóttir (1915-1993) Ólafsfirði
Parallel form(s) of name
- Sigvalda Gunnlaug Jónsdóttir (1915-1993) Ólafsfirði
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
3.3.1915 - 19.1.1993
History
Sigvalda Gunnlaug Jónsdóttir 23. mars 1915 - 19. jan. 1993. Var á Ólafsfirði 1930. Fósturfor: Þorsteinn Þorsteinsson og Snjólaug Sigurðardóttir móðursystir hyennar. Húsfreyja á Vopnafirði, síðar í Keflavík. Var í Syðri-Vík í Vopnafirði 1938. Síðast bús. í Keflavík.
Hún ólst upp á Ólafsfirði. Um tvítugt var henni boðið að dvelja hjá vinkonu sinni á Hvanneyri. Það má segja að sú dvöl hafi orðið örlagarík því þar kynntist hún mannsefni sínu, Gunnari Steindórssyni (f. 11. mars 1915) frá Vopnafirði sem þá var við nám í bændaskólanum. Árið 1936 héldu þau bæði út til Danmerkur, Gunnar í framhaldsnám í búfræði en Gunnlaug til dvalar hjá Pálínu systur sinni sem þá var búsett í Kaupmannahöfn. Í Kaupmannahöfn lærði hún hárgreiðslu og eftir heimkomuna vann hún lengi við hárgreiðslustörf og fylgdist alltaf vel með nýjungum í hártískunni.
Þau hættu búskap árið 1946 og fluttu þá til Ólafsfjarðar, þau bjuggu fyrir norðan í nokkur ár en ákváðu síðan að flytja suður. Þau settust að í Keflavík árið 1964 og bjuggu lengst af á Vesturgötu 19.
Hún var jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. febrúar 1993 kl. 13.30.
Places
Hornbrekka í Ólafsfirði. Ólafsfjarðar kaupsstaður; Kaupmannahöfn 1936; Syðri-Vík í Vopnafirði; Keflavík 1964.
Legal status
Hún gekk í Barnaskóla Ólafsfjarðar og stundaði nám við Héraðsskólann á Laugum.
Hárgreiðslunám í Kaupmannahöfn 1937.
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Sigvalda Gunnlaug Jónsdóttir 23. mars 1915 - 19. jan. 1993. Var á Ólafsfirði 1930. Fósturfor: Þorsteinn Þorsteinsson og Snjólaug Sigurðardóttir móðursystir hennar. Húsfreyja á Vopnafirði, síðar í Keflavík. Var í Syðri-Vík í Vopnafirði 1938. Síðast bús. í Keflavík. Hún lést 19. janúar 1993 eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu
Foreldrar hennar; Jón Friðriksson 18.1.1873 - 5.1.1947. Bjó á Brimnesi og í Hornbrekku í Ólafsfirði. Sjómaður. Bóndi í Ártúni á Höfðaströnd, Skag. 1896. Bóndi í Jónshúsi, Kvíabekkjarsókn, Eyj. 1901 og kona hans Guðfinna Sigurðardóttir23.9.1876 - 1923. Ljósmóðir. Húsfreyja í Ártúni á Höfðaströnd, Skag. 1896. Húsfreyja í Jónshúsi, Kvíabekkjarsókn, Eyj. 1901.
Systkini hennar voru;
1) Sigurjón Jónsson 2. jan. 1903 - 9. apríl 1978. Útgerðarmaður í Vestmannaeyjum. Síðast bús. í Reykjavík.
2) Pálína Jónsdóttir 15.9.1905 - 19.1.1996, búsett í Reykjavík. Maður hennar Ingvar Einarsson 12.5.1897 - 20.8.1968. Var í Reykjavík 1910. Vélstjóri á Gufuskipinu „Lagarfossi“ frá Reykjavík á Sauðárkróki 1930. Heimili: Lindarg.43, Reykjavík. Yfirvélstjóri í Reykjavík.
3) Friðrik Ellert Jónsson 5.9.1913 - 30.10.1987. Vinnumaður á Ólafsfirði 1930. Sjómaður, síðast bús. á Ólafsfirði. Kona hans 26.4.1938; Sölvína Herdís Jónsdóttir 22.8.1916 - 2.7.2007. Var í Lónkoti, Fellssókn, Skag. 1930. Húsfreyja á Ólafsfirði, síðar í Njarðvík og loks í Hveragerði.
4) Jakobína Jónsdóttir 6.5.1920, býr í Kaupamannahöfn.
Maður hennar 1938; Jörgen Gunnar Steindórsson 11.3.1915 - 22.12.1988. Nemandi í framhaldsskóla á Ísafirði 1930. Heimili: Vopnafjörður. Bóndi í Syðri-Vík í Vopnafjarðarhr., N-Múl., síðar tollvarðstjóri við Tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli. Var í Syði-Vík 1938.
Þau eignuðust sex börn en þau eru:
1) Guðrún (f. 1938) þroskaþjálfi, ekkja Yngva Gestssonar;
2) Jónína Kolfinna (f. 1939) ritari, ekkja Ásgeirs Friðjónssonar;
3) Þórlaug Steingerður (f. 1941) verslunarmaður, gift John Toivonen;
4) Steindór Gunnarsson (f. 1945) verslunarmaður, kvæntur Kristínu Geirsdóttur
Eina dóttur misstu þau í bernsku,
5) Valgerði Salvöru (f. 7. febrúar 1947, d. 15. febrúar 1947).
6) Valgerður Salvör (f. 1951) hárgreiðslukona, gift Dale Schultz.
General context
Relationships area
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ skráning 2.1.2022
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði 2.1.2022
Íslendingabók
Mbl 31.1.1993. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/99825/?item_num=1&searchid=e4443d77c74daf55f1612efd0bddb290249dc372
Maintenance notes
Digital object metadata
Access
Filename
Gunnlaug_Jnsdttir1915-1993__lafsfir__i.jpg
Latitude
Longitude
Media type
Image
Mime-type
image/jpeg