Sigurður Sveinbjörnsson (1908-1999) forstjóri

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Sigurður Sveinbjörnsson (1908-1999) forstjóri

Parallel form(s) of name

  • Sigurður Kristján Sveinbjörnsson (1908-1999) forstjóri

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      13.11.1908 - 25.1.1999

      History

      Sigurður Kristján Sveinbjörnsson 13. nóv. 1908 - 25. jan. 1999. Vélasmiður á Laugavegi 147, Reykjavík 1930. Vélsmiður í Reykjavík 1945. Járniðnaðarmaður. Síðast bús. í Reykjavík. Sigurður var stofnandi skipasmíðastöðvarinnar Nökkva hf. í Garðabæ árið 1960 og skipasmíðastöðvarinnar Stálvíkur hf. í Garðabæ árið 1961. Var í Flögu með föður sínum 1910.
      Hann fæddist í Reykjavík 13. nóvember 1908. Hann lést á Landakotsspítala hinn 25. janúar 1999. Útför Sigurðar fór fram frá Laugarneskirkju mánudaginn 1. febrúar, og hófst athöfnin klukkan 13.30.

      Places

      Flögu 1910
      Reykjavík

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Sigurður hóf snemma sjálfstæðan atvinnurekstur og stofnaði Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar hf. árið 1940. Fyrirtækið flutti í Skúlatún 6 árið 1942, og í nýtt og stórt verksmiðjuhúsnæði í Garðabæ árið 1969, en þá störfuðu á milli þrjátíu og fjörutíu manns þar. Sigurður var stofnandi skipasmíðastöðvarinnar Nökkva hf. í Garðabæ árið 1960 og skipasmíðastöðvarinnar Stálvíkur hf. í Garðabæ árið 1961. Sigurður starfaði í Meistarafélagi járniðnaðarmanna, sat í stjórn þar í tíu ár og var prófdómari í vélvirkjun.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar; Sveinbjörn Kristjánsson, byggingameistari, f. 30. október 1883, d. 17. september 1965, var í Flögu 1910, og Sigríður Sigurðardóttir, f. 12. febrúar 1886, d. 7. júní 1963. Húsfreyja á Laugavegi 147, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Gestkomandi í Reykjavík.

      Systkini hans;
      1) Ingiberg Sveinbjörnsson 19. júní 1907 - 28. júní 1907.
      2) Sveinbjörn Hallgrímur Sveinbjörnsson 30.1.1911 - 5.4.1912.
      3) Óskar Sveinbjörnsson 22. ágúst 1915 - 14. sept. 1997. Trésmíðanemi á Laugavegi 147, Reykjavík 1930. Húsasmíðameistari og framkvæmdastjóri, síðast bús. í Reykjavík. Óskar kvæntist hinn 20. júní 1942 Jónu Guðrúnu Ágústsdóttur, f. 14. mars 1914, dóttur hjónanna Ágústar Pálssonar, sjómanns og verkamanns, f. 27. ágúst 1885, d. 3. ágúst 1962, og Ingibjargar Árnadóttur, f. 9. júlí 1876, d. 7. júlí 1948.
      4) Júlíus Hafsteinn Sveinbjörnsson f. 8. desember 1921, d. 8. mars 1990. Málari í Reykjavík 1945. Stórkaupmaður í Reykjavík. kvæntur Þóru Kristjánsdóttur
      5) Erla María Sveinbjörnsdóttir 3.12.1930 - 8.3.2020. Skrifstofustarfsmaður í Garðabæ. Maður hennar Ingólfur Jónsson.

      Kona Sigurðar var Ingibjörg Ingimundardóttir, f. 16.2. 1908, d. 26.11. 1989, húsmóðir.

      Börn Sigurðar og Ingibjargar:
      1) Karl Sigurðsson, f. 28.2. 1930, d. 13.9. 1947.
      2) Sveinbjörg Sigurðardóttir f. 23.3. 1938, skrifstofumaður, var gift Gunnari Þormar, þau skildu. Börn þeirra eru: Kristín, f. 1962, Andrea, f. 1964, Ólafur, f. 1967, og Sveinbjörn, f. 1968.
      3) Guðmundur Már Sigurðsson, vélsmiður, f. 27.4. 1951 (kjörsonur), kvæntur Mílu Sigurðsson. Börn þeirra eru: Sigurður Ingi, f. 1992, og María Theresa, f. 1993.
      4) Karl Frank Sigurðsson, f. 28.11. 1955 (kjörsonur), framkvæmdastjóri, kvæntur Svölu B. Jónsdóttur. Synir þeirra eru: Róbert Arnar, f. 1977, Sigurður Reynir, f. 1993, og Þórður Ágúst, f. 1995.

      General context

      Relationships area

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH07774

      Institution identifier

      IS-HAH

      Rules and/or conventions used

      Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ skráning 3.10.2022

      Language(s)

        Script(s)

          Maintenance notes