Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Sigurður Indriðason (1930-2021) bifreiðaeftirlitsmaður
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
4.12.1930 - 16.7.1930
History
Sigurður fæddist á Birningsstöðum í Hálshreppi S-Þing. 4. desember 1930. Starfaði hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins.
Fjölskylda Sigurðar bjó á Birningsstöðum, flutti og bjó í eitt ár á Vöglum í Hálshreppi og loks á Skógum í Hálshreppi í Fnjóskadal þar sem Sigurður ólst upp frá tveggja ára aldri.
Hann lést lést 16. júlí 2021. Útför hans fór fram í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 29. júlí klukkan 13.
Places
Birningsstöðum Hálshreppi 1930
Vöglum Hálshreppi
Skógum Hálshreppi 1932
Akureyri 1946
Legal status
Bifvélavirkjun
Functions, occupations and activities
16 ára fluttist hann til Akureyrar og hóf störf á bílaverkstæði KEA. 17 ára réð hann sig á bifreiðaverkstæði Þórshamars og starfaði við bifreiðaviðgerðir á Akureyri allt til ársins 1953, þó með hléum, s.s. til að fara á síldarvertíð árið 1951. Þá hóf hann að leysa af á Bifreiðaeftirliti ríkisins og fékk loks fastráðningu og starfaði þar óslitið þar til eftirlitið var lagt niður í lok árs 1989, þar af síðustu árin sem forstöðumaður. Sigurður var ráðinn sem prófdómari ökuprófa á Norðurlandi og starfaði þar til aldamóta eftir 11 ára starf, þá sjötugur að aldri.
Mandates/sources of authority
Sigurður var mjög virkur félagsmaður í Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð frá stofnun þess 1980 og lék með hljómsveit FHUE frá upphafi. Sigurður var í tvígang formaður FHUE. Auk þess var hann gjaldkeri Sambands íslenskra harmonikuunnenda og síðar varaformaður þeirra samtaka.
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans; Indriði Þorsteinsson 21. maí 1880 - 23. júní 1961. Með foreldrum í Lundi lengst af fram undir tvítugt. Var þar hjá móður 1901. Í vinnumennsku í Fnjóskadal um 1906-10. Bóndi á Birningsstöðum, Hálshreppi 1910-33 að undanskildu einu ári á Vöglum í sömu sveit og síðan í Skógum, Hálshreppi. Bóndi á Birningsstöðum 1930. Póstur í Fnjóskadal, sá um símstöð og bréfhirðingu og kona hans; Steinunn Sigurðardóttir 3. júlí 1895 - 27. maí 1963. Með foreldrum á Steinsstöðum til 1896 og síðan á Bakka í sömu sveit fram um 1906. Var síðan aftur á Steinsstöðum og í Skriðu í Hörgárdal. Var síðan á Akureyri talsvert á árunum 1910-16. Fluttist þá í Háls í Fnjóskadal, S-Þing. Ljósmóðir í Fnjóskadal 1917-19. Húsfreyja á Birningsstöðum þar í sveit um 1917-32 og frá 1933 í Skógum í Fnjóskadal. Sá um símstöð í Skógum lengi.
Systkini hans;
1) Árni Indriðason 1918
2) Bergljót Indriðadóttir 1920
3) María Indriðadóttir f. 1922,
4) Þorsteinn Indriðason f. 1924,
5) Þórey Indriðadóttir f. 1927,
Sigurður kynntist Rósu Kristínu Jónsdóttur um tvítugt. Þau gengu í hjónaband 31. maí 1952. Rósa lést hinn 6. október 1995.
Börn þeirra eru:
1) Steinunn, f. 1954, gift Árna Bjarnasyni. Börn þeirra eru: Sigurður Gáki. í sambúð með Sigríði Kristínu Davíðsdóttur og þau eiga þrjú börn; Heimir Örn, giftur Mörthu Hermannsdóttur og eiga þau þrjú börn; Rósa María í sambúð með Óttari Snædal Þorsteinssyni.
2) Jón Gunnar, f. 1958, giftur Sigrúnu Sigurgeirsdóttur. Börn þeirra eru: Alda Kristín, í sambúð með Einari Eiríki Hjálmarssyni, eiga fjögur börn; Sigurgeir, í sambúð með Margréti Jóhannsdóttur og eiga þau þrjú börn; Gunnar Steinn, giftur Elísabetu Gunnarsdóttur, þau eiga tvö börn.
3) Sigurður Unnsteinn, f. 1963, giftur Þórdísi Jónsdóttur Börn þeirra eru: Geir, giftur Stellu Bryndísi Karlsdóttur, þau eiga tvö börn; María, gift Valdimar Daníelssyni og eiga þau þrjú börn; Jón Heiðar.
General context
Relationships area
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ skráning 3.7.2022
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði 3.7.2022
Íslendingabók
Mbl 29.7.2021. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1786317/?item_num=0&searchid=75cb06560db10d22d5616a643259df33f3ff5600
Maintenance notes
Digital object metadata
Access
Filename
Sigur__ur_Indriason1930-2021bifreiaeftirlitsma__ur.jpg
Latitude
Longitude
Media type
Image
Mime-type
image/jpeg