Sigríður Thorlacius (1913-2009) Rithöfundur, blaðamaður, þýðandi og útvarpskona í Reykjavík.

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Sigríður Thorlacius (1913-2009) Rithöfundur, blaðamaður, þýðandi og útvarpskona í Reykjavík.

Parallel form(s) of name

  • Sigríður Stefánsdóttir Thorlacius (1913-2009)

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      13.11.1913 - 29.6.2009

      History

      Sigríður Thorlacius fæddist að Völlum í Svarfaðardal 13. nóvember 1913.
      Rithöfundur, blaðamaður, þýðandi og útvarpskona í Reykjavík. Gegndi fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum. Heiðursfélagi Kvenfélagasambands Íslands og Styrktarfélags vangefinna. Sigríður var gerð heiðursfélagi Kvenfélagasambands Íslands 19. apríl 1980 og heiðursfélagi Styrktarfélags vangefinna 5. ágúst 1993. Hún var sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 1971, stórriddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 1979 og Riddarakrossi Dannebrogs-orðunnar 4. júlí 1973.
      Sigríður verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, 8. júlí og hefst athöfnin kl. 15.

      Places

      Vellir í Svarfaðardal:

      Legal status

      Sigríður lauk prófi frá Samvinnuskólanum árið 1932.

      Functions, occupations and activities

      Hún vann við ýmis verslunarstörf árin 1933-1937. Hún starfaði hjá Tryggingastofnun ríkisins frá árinu 1937 til ársins 1942, var jafnframt þingskrifari auk þess sem hún starfaði á skrifstofu Alþingis. Eftir það vann hún við blaðamennsku á Tímanum og við ritstörf.
      Sigríður var varamaður í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Framsóknarflokkinn, og átti sæti í fræðslu- og félagsmálaráði. Hún var í fulltrúaráði framsóknarfélaganna í Reykjavík og í miðstjórn Framsóknarflokksins, þá sat hún í blaðstjórn Tímans. Sigríður var formaður Kvenfélagasambands Íslands um 8 ára skeið og formaður Nordens husmorforbund 1975 til 1980.

      Mandates/sources of authority

      Hún var afkastamikill þýðandi og vann að gerð útvarpsþátta. Ritaði Sigríður eftirtaldar bækur: Ferðabók, ásamt Birgi Thorlacius 1962, María Markan, endurminningar, 1965, Margar hlýjar hendur, árið 1981 og Saga Bandalags kvenna í Reykjavík, 1983.
      Hún var ritstjóri Húsfreyjunnar um árabil.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Sólveig Pétursdóttir Eggerz 1. apríl 1876 - 22. júní 1966 og séra Stefán Baldvin Kristinsson 9. desember 1870 - 7. desember 1951 Prestur á Völlum í Svarfaðardal, Eyj. 1901-1941 og í Stærra-Árskógi, Árskógshr., Eyj. Prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi 1928-1941. Bóndi og prófastur á Völlum, Vallasókn, Eyj. 1930 . Sigríður ólst upp að Völlum þar til að hún flutti til Reykjavíkur þar sem hún bjó upp frá því.
      Systkini Sigríðar voru Pétur Eggerz, f. 10. ágúst 1900, Kristinn Tryggvi, f. 8. október 1903, Sæmundur, f. 16. ágúst 1905, Ingibjörg, f. 31. desember 1908, Jón Cristinn, f. 29. júlí 1911 og Kristín, f. 8. júlí 1916, þau eru nú öll látin.
      Fóstursystir Sigríðar var Unnur Tryggvadóttir, f. 27. desember 1907.
      Sigríður giftist 13. maí 1939 Birgi Thorlacius 28. júlí 1913 - 2. október 2001, ráðuneytisstjóra í forsætis- og menntamálaráðuneytinu, f. að Búlandsnesi í Suður-Múlasýslu 28. júlí 1913, d. 2. október 2001. Foreldrar hans voru Ólafur Jón Thorlacius, héraðslæknir, alþingismaður og síðan lyfsölustjóri og Ragnhildur Pétursdóttir Eggerz Thorlacius.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Ásdís Kristinsdóttir (1939) Kleifum (29.4.1939 -)

      Identifier of related entity

      HAH03607

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      13.5.1939

      Description of relationship

      Birgir maður hennar var bróðir Sigurðar (1900-1945) föður Kristjáns manns Ásdísar

      Related entity

      Unnur Tryggvadóttir (1907-1987) (27.12.1907 - 24.5.1987)

      Identifier of related entity

      HAH02102

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Unnur Tryggvadóttir (1907-1987) is the cousin of Sigríður Thorlacius (1913-2009) Rithöfundur, blaðamaður, þýðandi og útvarpskona í Reykjavík.

      Dates of relationship

      13.11.1913

      Description of relationship

      feður þeirra voru bræður

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01911

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 18.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes